Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 140/2011

Miðvikudaginn 14. desember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 140/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 26. september 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 19. september 2011 vegna synjunar á umsókn um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði ákvörðun um synjun á endurútreikningi lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 19. september 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 9.980.000 kr. Verðmat íbúðarinnar var 110% af skráðu fasteignamati, eða 10.978.000 kr. Áhvílandi veðlán á íbúðinni voru 10.630.449 kr. Var því ekki fallist á umsókn kæranda þar sem áhvílandi veðlán voru lægri en verðmæti íbúðarinnar.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 3. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 11. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 13. október 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir synjun Íbúðalánasjóðs um leiðréttingu lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 26. september 2011, segir kærandi að hún telji að fasteignamat íbúðarinnar vera of hátt. Kærandi hafi búið í íbúðinni að í sex ár og hafi tekið 6.000.000 kr. lán hjá Íbúðalánasjóði ásamt 10% láni hjá sparisjóði við kaupin. Kaupverð íbúðarinnar hafi verið 7.600.000 kr. Kærandi vísar til þess að staða áhvílandi lána hjá Íbúðalánasjóði sé núna 10.630.449 kr. auk láns hjá sparisjóðinum, en skráð fasteignamat íbúðarinnar sé 9.980.000 kr., og uppreiknað miðað við 110% sé það 10.978.000 kr. Því hafi ekki verið fallist á umsókn hennar þar sem áhvílandi veðskuldir teljist samkvæmt framansögðu nema 107% af uppreiknuðu verðmæti íbúðarinnar. Við það sé hún ekki sátt.

Kærandi tekur fram að íbúð hennar sé í mikilli niðurníðslu og það sé mat hennar að hún sé ekki 10–11 milljóna króna virði. Til stuðnings því greinir kærandi frá því að hún hafi fengið staðfestingu pípulagningarmanns á því að endurnýja þurfi skólplagnir íbúðar, þakið sé ónýtt, gluggar séu einnig ónýtir og einnig séu margir ofnar ónýtir.

Kærandi fer því fram á verðmat fasteignasala á íbúð hennar og endurskoðun á ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að sjóðurinn hafi lagt fasteignamat íbúðarinnar til grundvallar þar sem sjóðurinn taldi það verð gefa rétta mynd af verðmæti eignarinnar. Hafa beri í huga að ef verðmat fasteignasala er lægra en opinbert skráð fasteignamat, beri samt sem áður að leggja fasteignamatið til grundvallar samkvæmt ákvæði 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011. Þá bendir Íbúðalánasjóður á að eigandi sem telur skráð fasteignamat vera rangt, sæki um leiðréttingu til Þjóðskrár. Það hafi kærandi ekki gert.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu er ágreiningur um verðmat íbúðar kærenda í tengslum við umsókn hennar um niðurfærslu lána Íbúðalánasjóðs sem hvíla á fasteign hennar. Kærandi telur verðmat fasteignar hennar sem grundvallaðist á 110% af skráðu fasteignamati, ekki gefa rétt mat af raunvirði hennar. Í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæðinu skuli miða við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra. Telji Íbúðalánasjóður skráð fasteignamat fyrir 2011 ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignar skuli hann á eigin kostnað afla verðmats löggilts fasteignasala. Sama regla kemur fram í lið 1.3 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að við afgreiðslu umsókna skuli miða við skráð fasteignamat eða markaðsverð fasteigna, hvort sem er hærra.

Eins og fram hefur komið hefur við mat fasteignar kæranda verið byggt á skráðu fasteignamati íbúðar kæranda sem kærða er heimilt að leggja til grundvallar samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum nr. 44/1998. Verður í máli þessu ekki hróflað við því mati kærða af hálfu úrskurðarnefndarinnar, enda getur verðmat löggilts fasteignasala samkvæmt ákvæðinu einungis leitt til þess að verðmæti fasteignar verði hækkað við afgreiðslu umsóknar kæranda.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í 1.3 í 1. gr. í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun á endurútreikningi á lánum A, áhvílandi á fasteigninni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta