Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 189/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 189/2024

Fimmtudaginn 11. júlí 2024

A

gegn

Hafnarfjarðarbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Björn Jóhannesson lögfræðingur.

Með bréfi, dags. 22. apríl 2024, framsendi Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála erindi A, vegna afgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar á umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi hefur verið á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ frá ágúst 2018. Frá júlí 2019 og þar til síðari hluta árs 2023 var kærandi búsettur í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði en hefur frá þeim tíma verið húsnæðislaus.

Kærandi lagði fram kvörtun hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála 5. mars 2024 vegna afgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar á umsókn hans. Stofnunin framsendi kvörtun kæranda til úrskurðarnefndar velferðarmála 22. apríl 2024. Með bréfi, dags. 24. apríl 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Hafnarfjarðarbæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Hafnarfjarðarbæjar barst úrskurðarnefndinni 2. maí 2024 og var hún kynnt kæranda rafrænt með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. maí 2024. Greinargerðin var send kæranda á ný með bréfpósti 28. maí 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kvörtun til Gæða- og eftirlitsstofnunar kemur fram að kærandi hafi verið á lista til að fá úthlutað húsnæði frá árinu 2018. Hann hafi ekki í önnur hús að venda og þurfi nauðsynlega að fá úthlutaðri íbúð til búsetu. Hann gisti nú á þunnum tjalddýnum á þvottahúsgólfi hjá aldraðri móður sinni sem séu algjörlega óviðunandi aðstæður. Rætt hafi verið við Hafnarfjarðarbæ varðandi úthlutun en engin skýr svör hafi fengist.

III.  Sjónarmið Hafnarfjarðarbæjar

Í greinargerð Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að kærandi hafi verið á biðlista eftir tveggja herbergja íbúð í félagslegu leiguhúsnæði hjá sveitarfélaginu frá 22. ágúst 2018 en á þeim tíma hafi hann búið á gistiheimili í B og fengið þjónustu þaðan. Kærandi hafi búið í búsetuúrræði á vegum B fram í júlí 2019 þegar hann hafi flutt í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Umsókn kæranda hafi upphaflega verið metin til 10 stiga á 10 stiga matskvarða og hafi verið endurmetin árlega og hlotið sömu afgreiðslu, þ.e. 10 stig. Við mat á umsóknum sé litið til húsnæðisaðstæðna, tekna og félagslegra aðstæðna. Þegar íbúðir komi til úthlutunar á fjölskyldu- og barnamálasviði séu haldnir fundir í húsnæðisteymi sviðsins og lagðar fram þær umsóknir sem brýnast þyki að fái afgreiðslu. Þá sé höfð hliðsjón af stigafjölda umsækjenda og hve lengi þeir hafi verið á biðlista, svo og aðstæðum umsækjenda með hliðsjón af þeirri íbúð sem sé til úthlutunar, svo sem stærð íbúðar, staðsetningu, aðgengi og fleira. Á fundunum sé svo tekin ákvörðun um hvaða umsókn þyki best henta með tilliti til allra þessara atriða.

Síðari hluta árs 2023 hafi iðnaðarhúsnæði þar sem kærandi hafi átt heimili sitt brunnið og þar með hafi hann orðið húsnæðislaus. Eftir það hafi umsókn kæranda þrisvar verið lögð fyrir úthlutunarfund húsnæðisteymis með tillögu um úthlutun en í öll skiptin hafi aðrir umsækjendur þótt skora hærra eða vera í meiri þörf. Hafnarfjarðarbær taki fram að mjög fáar tveggja herbergja íbúðir hafi komið til úthlutunar síðustu mánuði, auk þess hafi það haft áhrif á möguleika kæranda til úthlutunar að hann hafi afplánað dóma vegna tiltekinna afbrota. Starfsfólk fjölskyldu- og barnamálasviðs hafi í huga ákveðið húsnæði fyrir kæranda og gert sé ráð fyrir að það losni einhvern tímann á næstu mánuðum, þó ekki sé unnt að segja nákvæmara fyrir hvenær það verði. Fundur verði haldinn á fjölskyldu- og barnamálasviði með aðstandendum kæranda í næstu viku vegna málsins.

IV.  Niðurstaða

Kærð er afgreiðsla Hafnarfjarðarbæjar vegna umsóknar kæranda um félagslegt leiguhúsnæði sem var samþykkt á biðlista 22. ágúst 2018. Kærandi bíður úthlutunar húsnæðis og kærir því drátt á afgreiðslu málsins, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til æðra stjórnvalds óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls.

Í XII. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.

Í reglum Hafnarfjarðarbæjar um úthlutun á almennu leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 1. gr. reglnanna kemur fram að rétt til að sækja um almennar leiguíbúðir hjá Hafnarfjarðarbæ eigi þeir sem búi við erfiðar félagslegar aðstæður. Almennar leiguíbúðir séu hugsaðar sem tímabundið úrræði fyrir fólk í húsnæðiserfiðleikum eða neyðarúrræði.

Í 1. mgr. 5. gr. reglnanna kemur fram að við mat á umsóknum sé farið eftir ákveðnu matskerfi og hverjum umsækjanda um leiguíbúð reiknuð stig á 10 stiga kvarða. Umsækjandi með sex stig eða fleiri sé skráður á biðlista. Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. skal við forgangsröðun hafa til viðmiðunar tekjur umsækjanda, húsnæðisaðstæður og félagslegar aðstæður. Þá segir í 6. gr. reglnanna að starfsmenn fjölskylduþjónustunnar meti umsóknir á afgreiðslufundi í húsnæðisteymi og taki ákvörðun um úthlutun í umboði fjölskylduráðs. Úthlutun skuli taka mið af því húsnæði sem sé í boði, þörfum umsækjenda og stigagjöf.

Hvorki í lögum nr. 40/1991 né framangreindum reglum Hafnarfjarðarbæjar er kveðið á um lögbundinn frest til að úthluta félagslegu leiguhúsnæði til þeirra sem uppfylla skilyrði til að vera á biðlista. Að mati úrskurðarnefndarinnar ber því að líta til málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við mat á því hvort afgreiðsla á máli kæranda hefur dregist. Þar kemur fram sú meginregla að ákvarðanir í málum innan stjórnsýslunnar skuli teknar eins fljótt og auðið er. Í ákvæðinu kemur ekki fram hvaða tímafrest stjórnvöld hafa til afgreiðslu mála en af því leiðir að aldrei má vera um ónauðsynlegan drátt á afgreiðslu máls að ræða. Með hliðsjón af þessari meginreglu verður að telja að stjórnvöldum sé skylt að haga afgreiðslu þeirra mála sem þau fjalla um í samræmi við þessa meginreglu og gera eðlilegar ráðstafanir til þess að þau séu til lykta leidd af þeirra hálfu eins fljótt og unnt er. Hvað talist getur eðlilegur afgreiðslutími verður að meta í hverju tilviki fyrir sig. Þannig verður að líta til umfangs máls og atvika hverju sinni, auk þess sem mikilvægi ákvörðunar fyrir aðila getur einnig haft þýðingu í þessu sambandi.

Líkt og að framan greinir hefur kærandi verið á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ frá 22. ágúst 2018. Sveitarfélagið hefur vísað til þess að á þeim tíma hafi kærandi búið í búsetuúrræði á vegum B og fram í júlí 2019 þegar hann hafi flutt í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Umsókn kæranda hafi upphaflega verið metin til 10 stiga og hafi verið endurmetin árlega með sama hætti. Einnig hefur sveitarfélagið vísað til þess að kærandi hafi frá síðari hluta árs 2023 verið húsnæðislaus þar sem iðnaðarhúsnæðið hafi brunnið. Eftir það hafi umsókn kæranda þrisvar sinnum verið lögð fyrir úthlutunarfund húsnæðisteymis en í öll skiptin hafi aðrir umsækjendur skorað hærra eða verið í meiri þörf. Þó sé gert ráð fyrir að ákveðið hentugt húsnæði losni á næstu mánuðum.

Af framangreindu má ráða að ekki hafi verið unnið sérstaklega í húsnæðismálum kæranda á meginþorra biðtímans, eða ekki fyrr en síðari hluta ársins 2023. Úrskurðarnefndin getur fallist á að skortur á viðeigandi húsnæði valdi töf á úthlutun en að mati nefndarinnar getur það ekki réttlætt bið um ókomna tíð án þess að fyrir liggi einhver áætlun í þeim efnum eða virk upplýsingagjöf til umsækjanda um stöðu biðlistans. Verður þannig að gera þá kröfu til sveitarfélagsins að markvisst séu gerðar ráðstafanir til úthlutunar húsnæðis og að unnið sé sérstaklega að lausn í hverju máli. Ekki verður séð að svo hafi verið í máli kæranda. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að afgreiðsla máls kæranda hafi dregist óhæfilega í skilningi 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Lagt er fyrir Hafnarfjarðarbæ að hraða afgreiðslu málsins og veita kæranda samþykkta þjónustu svo fljótt sem auðið er. Ef fyrirséð er að á afgreiðslu málsins verði frekari tafir ber sveitarfélaginu að skýra kæranda með reglubundnum hætti frá því, upplýsa um ástæður tafanna, stöðu á biðlista og auk þess hvenær ákvörðunar um úthlutun viðeigandi húsnæðis sé að vænta, sbr. 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Hafnarfjarðarbæjar í máli A, var ekki í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Lagt er fyrir Hafnarfjarðarbæ að hraða afgreiðslu máls kæranda og taka ákvörðun um úthlutun viðeigandi húsnæðis svo fljótt sem auðið er.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta