Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 405/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 405/2024

Þriðjudaginn 29. október 2024

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. ágúst 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til og með september 2023. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2023 þar sem fram kom að hún hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 172.815 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 30. ágúst 2024. Með bréfi, dags. 1. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 4. október 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 8. október 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi sent henni innheimtu vegna skuldar við stofnunina. Þar sem allar upplýsingar um tekjur hafi legið fyrir við útreikning húsnæðisbóta hafi það komið kæranda á óvart að fá bakreikning. Kærandi óski því eftir skýringu.

 

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 9. febrúar 2021 vegna leigu á húsnæðinu B. Auk kæranda hafi C, verið skráð sem heimilismaður á umsókn. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 19. febrúar 2021. Við útreikning á áætluðum húsnæðisbótum hafi verið miðað við meðaltekjur á tímabilinu janúar til desember. Í samþykktarbréfi hafi athygli kæranda verið vakin á því að breytingar á forsendum húsnæðisbóta hefðu áhrif á rétt til bóta.

Á árinu 2023 hafi kæranda verið send uppfærð tekju- og eignaáætlun í febrúar, apríl og ágúst og áætlanirnar hafi verið byggðar á fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum.

Með bréfi, dags. 16. október 2023, hafi kæranda verið sent bréf um frestun á afgreiðslu umsóknar um húsnæðisbætur þar sem tekjur væru farnar að skerða húsnæðisbætur að fullu. Við útreikning húsnæðisbóta kæranda hafi verið byggt á upplýsingum frá Ríkisskattstjóra vegna tekna í september 2023 en tekjur heimilismanna sem fari umfram frítekjumörk skerði húsnæðisbætur. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun byggi áætlanir sínar á nýjustu upplýsingum á hverjum tíma og til grundavallar útreikningi húsnæðisbóta hvers mánaðar séu lagðar 1/12 af áætluðum tekjum og eignum á því almanaksári þegar húsnæðisbætur séu greiddar, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um húsnæðisbætur. Óskað hafi verið eftir afstöðu kæranda til fyrirliggjandi upplýsinga um tekjur og eignir heimilismanna og jafnframt hafi verið óskað eftir gögnum og/eða skýringum innan 15 daga. Kærandi hafi ekki brugðist við bréfi stofnunarinnar né nýtt sér andmælarétt og því hafi verið byggt á þeim áætlunum sem stofnunin hafi sent kæranda.

Hinn 6. nóvember 2023 hafi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fjallað um umsókn kæranda um húsnæðisbætur og tekin hafi verið ákvörðun um að hafna umsókninni þar sem tekjur heimilismanna skertu bætur að fullu. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur. Í ákvörðunarbréfi til kæranda hafi athygli hennar verið vakin á því að synjun kæmi ekki í veg fyrir að hægt væri að sækja um að nýju ef aðstæður myndu breytast, svo sem ef tekjur eða eignir myndu lækka eða breyting yrði á fjölda heimilismanna. Jafnframt hafi kærandi verið upplýst um rétt til endurupptöku á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og heimild til að kæra niðurstöðuna til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. 6. gr. laga um húsnæðisbætur.

Með bréfi, dags. 3. júlí 2024, hafi kærandi fengið lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2023. Heildartekjur ársins 2023 samkvæmt framtali hafi numið 10.856.235 kr. (stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars) og fjármagnstekjur 4.872 kr. Miðað sé við samanlagðar tekjur heimilismanna, 18 ára og eldri, sbr. 17. gr. laga um húsnæðisbætur. Þær upplýsingar sem notaðar séu í lokauppgjöri séu fengnar frá Ríkisskattstjóra, úr skattframtali og staðgreiðsluskrá. Rétt sé að benda á að dóttir kæranda, C, hafi ekki náð 18 ára aldri á árinu 2023. Í því sambandi sé litið til þess að börn séu á framfæri foreldra sinna til 18 ára aldurs, sbr. 53. gr. barnalaga, og því eðlilegt að tekjur þeirra hafi ekki áhrif til lækkunar á húsnæðisbótum.

Í lokauppgjöri hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem næmu 172.815 kr. Endurreikningurinn hafi verið byggður á skattskyldum tekjum og eignastöðu kæranda samkvæmt skattframtali 2024 vegna tekna 2023. Þar sem kærandi hafi einungis fengið greiddar húsnæðisbætur hluta úr árinu, eða á tímabilinu janúar til september 2023, hafi endurreikningurinn verið byggður á tekjum samkvæmt staðgreiðsluyfirliti á umræddu tímabili.

Skattframtal - tekjuár 2023

Heildartekjur              10.856.235                  m.t. á mán. 904.686 kr.

Fjármagnstekjur                  4.872                  m.t. á mán. 406 kr.

 

Staðgreiðsluyfirlit jan-sept (leigutímabilið) m.t. á mán.

Heildartekjur             7.903.368                    878.152

Í samræmi við útreikning lokauppgjörsins hafi skerðing vegna tekna numið 31.263 kr. á mánuði.

Í bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna lokauppgjörsins hafi komið fram að ef kærandi teldi upplýsingarnar sem notaðar væru við uppgjörið ekki endurspegla réttar tekjur eða eignir gæti hún sent stofnuninni athugasemdir innan 10 daga. Kærandi hafi verið upplýst um að ef engar athugasemdir bærust innan þess tíma yrði farið eftir þeim upplýsingum sem hafi verið notaðar við endurreikninginn við endanlega ákvörðun lokauppgjörs húsnæðisbóta fyrir árið 2023. Kærandi hafi ekki brugðist við bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eða nýtt sér andmælarétt og því hafi verið byggt á þeim áætlunum sem stofnunin hafi sent kæranda.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2023. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2023 vegna tekna. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. 25. gr. komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum að framkvæmdaraðili skuli endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga.

Kæranda hafi í október 2023 verið sent bréf þar sem upplýst hafi verið að stofnunin hefði fjallað um rétt hennar til húsnæðisbóta og frestunar afgreiðslu þar sem tekjur væru farnar að skerða húsnæðisbætur að fullu. Jafnframt hafi kæranda verið bent á að koma athugasemdum á framfæri við stofnunina teldi hún þær upplýsingar sem notaðar væru við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla komandi tekjur og eignir ársins. Rétt sé að benda á að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Engar upplýsingar hafi borist stofnuninni um breytta tekju- eða eignastöðu.

Hver sá sem leigi íbúðarhúsnæði eigi rétt til húsnæðisbóta að uppfylltum skilyrðum laga um húsnæðisbætur og umsækjandi skuli sækja um húsnæðisbætur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Ekki þurfi að endurnýja umsókn eftir að hún hafi verið samþykkt í upphafi á meðan skilyrði sem séu sett fyrir rétti til húsnæðisbóta séu uppfyllt og leigusamningur sem sem liggi til grundvallar rétti til húsnæðisbóta sé enn í gildi. Samkvæmt 5. mgr. 21. gr. laga um húsnæðisbætur falli greiðslur húsnæðisbóta niður frá og með næstu mánaðarmótum eftir að skilyrði laganna séu ekki lengur uppfyllt. Í VII. kafla laga um húsnæðisbætur sé kveðið á um samtímaeftirlit og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sé gert að sannreyna reglulega þær upplýsingar sem ákvörðun um rétt til húsnæðisbóta byggi á. Ljóst sé að breytingar hafi orðið á högu kæranda eftir að greiðslur húsnæðisbóta hafi hafist og að breytingarnar hafi haft áhrif á rétt hennar til húsnæðisbóta.

Eins og áður segi skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta þegar endanlegar upplysingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur.

Eftir lokauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur og beri henni að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd, sbr. 26. gr. laga um húsnæðisbætur.

Af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sé byggt á því að málsmeðferðin hafi að öllu leyti verið í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að ákvörðunin hafi verið gerð í samræmi við ákvæði laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, með síðari breytingum. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna tímabilsins janúar til september 2023, að fjárhæð 172.815 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekju- og eignabreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til september 2023. Samkvæmt útreikningi húsnæðisbóta, dags. 15. febrúar 2023, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 705.673 kr. á mánuði. Samkvæmt endurútreikningi, dags. 25. apríl 2023, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 658.549 kr. á mánuði. Þá voru heildartekjur kæranda áætlaðar 790.576 kr. á mánuði samkvæmt endurútreikningi, dags. 23. ágúst 2023. Við lokauppgjör ársins 2023 reyndust tekjur kæranda á tímabilinu, þ.e. janúar til desember 2023, vera hærri en framangreindar áætlanir gerðu ráð fyrir, eða 878.152 kr. á mánuði. Samkvæmt útreikningi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar nam skerðing vegna tekna því 172.815 kr. á leigutímabilinu. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta