Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Greiðsluaðlögunarmál

Mál nr. 163/2013

Fimmtudaginn 15. október 2015

 

A

gegn

umboðsmanni skuldara

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Eggert Óskarsson og Lára Sverrisdóttir.

Þann 11. október 2013 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 27. september 2013 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda voru felldar niður.

Með bréfi 26. nóvember 2013 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 20. desember 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi 13. janúar 2014 og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi 19. mars 2014. Voru þær sendar umboðsmanni skuldara með bréfi 20. mars 2014 en embættið taldi ekki ástæðu til að gera frekari athugasemdir.

 

I. Málsatvik

Kærandi er fæddur 1949. Hann býr ásamt systur sinni í 105 fermetra íbúð þeirra systkina að B götu nr. 5 í sveitarfélaginu C. Eignarhlutur þeirra er jafn.

Kærandi hefur lengi verið lagerstarfsmaður hjá X. Auk tekna fær kærandi vaxtabætur.

Heildarskuldir kæranda, samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara 30. maí 2011, eru 40.507.501 króna. Að auki er kærandi ábyrgðarmaður vegna skulda að fjárhæð 6.284.591 króna.

Að mati kæranda má rekja fjárhagserfiðleika hans til erfiðleika við sölu fyrri íbúðar hans, veikinda og tekjulækkunar.

Kærandi lagði fram umsókn um heimild til greiðsluaðlögunar 1. apríl 2011. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 23. maí 2011 var kæranda veitt heimild til greiðsluaðlögunar og umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum hans. Í fylgiskjali með ákvörðun umboðsmanns var upplýst um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun samkvæmt 12. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 17. desember 2012 tilkynnti umsjónarmaður að fram væru komnar upplýsingar sem ætla mætti að hindruðu að greiðsluaðlögun væri heimil. Umsjónarmaður hefði sent kröfuhöfum frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun. Mótmæli hefðu borist frá kröfuhöfum á þeim forsendum að kærandi hefði brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. um að leggja til hliðar fé á tímabili frestunar greiðslna, eða í svokölluðu greiðsluskjóli. Kærandi hefði ekkert lagt fyrir í greiðsluskjólinu og ástæða þess væri að sögn kæranda lægri tekjur og mikill kostnaðar vegna veikinda. Þar sem greiðslugeta kæranda hefði verið jákvæð á tímabilinu væri það tillaga umsjónarmanns að greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda yrðu felldar niður á grundvelli 1. mgr. 15. gr. lge.

Með bréfi umboðsmanns skuldara til kæranda 11. september 2013 var honum gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan tilskilins frests og leggja fram frekari gögn áður en umboðsmaður skuldara tæki ákvörðun um hvort fella skyldi niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Kærandi kom andmælum sínum á framfæri símleiðis 16. september 2013.

Með bréfi til kæranda 27. september 2013 felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

 

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi fer fram á að hinni kærðu ákvörðun verði snúið við og að umboðsmanni skuldara verði falið að hjálpa honum að finna lausn á skuldamálum sínum í samræmi við lge. Skilja verður þetta svo að kærandi krefjist þess að ákvörðun umboðsmanns skuldara verði felld úr gildi. Einnig fer kærandi fram á að honum verði greiddur málskostnaður að mati kærunefndarinnar. Vísar kærandi sérstaklega til þess að umboðsmaður skuldara virtist ekki hafa virt stjórnsýslulög og með því hafi embættið bakað honum ómæld óþægindi og tjón. Þá hafi kærandi þurft að leita sér aðstoðar við að kæra málið til kærunefndar greiðsluaðlögunarmála.

Kærandi kveðst gera alvarlegar og verulegar athugasemdir við ákvörðun umboðsmanns skuldara.

Í hinum kærða úrskurði sé gert ráð fyrir því að framfærslukostnaður kæranda hafi mest verið 91.464 krónur á mánuði og í því samhengi vísað til septembermánaðar 2013. Samkvæmt þeim framfærsluviðmiðum, sem nú séu birt á heimasíðu embættis umboðsmanns skuldara, teljist framfærslukostnaður einstaklings 134.440 krónur á mánuði. Það sé um 47% hærri fjárhæð en kæranda hafi verið gert að lifa á.

Velferðarráðuneytið hafi reiknað út sín eigin framfærsluviðmið. Samkvæmt því sé gert ráð fyrir því að mánaðarlegur framfærslukostnaður kæranda sé 234.564 krónur. Sé það 156% hærri tala en umboðsmaður skuldara notist við í hinum kærða úrskurði. Ef marka megi framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara gætu 2,5 einstaklingar lifað á framfærsluviðmiði velferðarráðuneytisins.

Íbúðalánasjóður hafi einnig reiknað út framfærslukostnað sem sé 235.421 króna á mánuði fyrir einstakling. Þetta þýði að einstaklingur þurfi að hafa að lágmarki 235.421 krónu á mánuði til að fá lán hjá sjóðnum.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Umboðsmaður skuldara haldi því fram að framfærsluviðmið þessi séu byggð á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Einnig skuli lagt til grundvallar að skuldurum sé jafnan veitt nokkuð svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé almennt tekið tillit til annarra útgjaldaliða sem fella megi undir almennan heimilisrekstur. Hvergi sé þó að finna skýringu á þessu viðmiði eða rökstuðning fyrir því að viðmið umboðsmanns skuldara séu svo miklu lægri en viðmið sem aðrir opinberir aðilar hafi reiknað út.

Kærandi telur að réttur hans til upplýsinga samkvæmt stjórnsýslulögum hafi verið brotinn, enda byggi umboðsmaður skuldara einungis á því að kærandi hefði átt að leggja fyrir rúmar 5.000.000 króna. Kærandi hafi á hinn bóginn aðeins haft tekjur sem dugað hafi sér til framfærslu samkvæmt viðmiðum velferðarráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs. Kærandi telur ákvörðun umboðsmanns skuldara beinlínis andstæða markmiði og tilgangi lge. Þá sé hún án skýringa og rökstuðnings og sé það í andstöðu við stjórnsýslulög.

Álítur kærandi að ákvörðun umboðsmanns skuldara sé verulega íþyngjandi fyrir hann í ljósi aldurs og heilsufars. Hafi umboðsmaður skuldara ekki gætt hagsmuna kæranda og ekki sinnt leiðbeiningaskyldu sinni.

 

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Af hálfu umboðsmanns skuldara er vísað til þess að komi fram upplýsingar sem ætla megi að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna um það til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Skuldara skuli gefið tækifæri til að láta álit sitt í ljós áður en slík ákvörðun sé tekin. Í 12. gr. lge. sé fjallað um skyldur skuldara meðan hann njóti greiðsluskjóls. Samkvæmt a-lið 1. mgr. lagagreinarinnar skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Kærandi hafi leitað greiðsluaðlögunar 1. apríl 2011. Frá þeim degi hafi greiðsluskjól hans samkvæmt 11. gr. lge. hafist. Frá sama tíma hafi skyldur kæranda samkvæmt 12. gr. lge orðið virkar en upplýsingar um þessar skyldur hafi verið að finna á heimasíðu umboðsmanns skuldara. Að auki séu skyldur skuldara í greiðsluskjóli samkvæmt 12. gr. lge. ávallt útskýrðar og ítrekaðar á fyrsta fundi umsjónarmanns og skuldara. Þá hafi skriflegar leiðbeiningar um 12. gr. lge. fylgt með ákvörðun um samþykki á umsókn kæranda um að leita greiðsluaðlögunar 23. maí 2011 sem borist hafi kæranda með ábyrgðarbréfi. Hafi kæranda því mátt vera ljóst að hann skyldi halda til haga þeim fjármunum sem hann hafi átt aflögu í lok hvers mánaðar til greiðslu af skuldum sínum þegar að því kæmi að semja við kröfuhafa.

Greiðsluskjól kæranda hafi staðið yfir í rúmlega 29 mánuði en miðað sé við tímabilið 1. apríl 2011 til 31. ágúst 2013. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi haft neðangreindar tekjur á tímabilinu í krónum:

 

Heildartekjur frá 1. apríl 2011 til 31. ágúst 2013 að frádregnum skatti 7.501.514
Vaxtabætur og sérstök vaxtaniðurgreiðsla 307.798
Samtals 7.809.312
Mánaðarlegar meðaltekjur 269.287
Framfærslukostnaður á mánuði 91.646
Greiðslugeta að meðaltali á mánuði 177.641
Samtals greiðslugeta í 29 mánuði 5.151.578

 

Samkvæmt þessu verði lagt til grundvallar að kærandi hafi haft 269.287 krónur í meðaltekjur á mánuði hið minnsta á 29 mánaða tímabili sem notað sé til viðmiðunar á þeim tíma er kærandi naut greiðsluskjóls.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara byggist á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar að við mat á því hvort skuldarar hafi sinnt skyldum sínum á meðan frestun greiðslna standi sé þeim jafnan játað nokkuð svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé almennt tekið tillit til annarra útgjaldaliða sem fella megi undir almennan heimilisrekstur sem skuldarar geti fært sönnur á með haldbærum gögnum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Miðað við framangreindar forsendur megi ætla að mánaðarleg heildarútgjöld kæranda hafi mest verið 91.646 krónur á meðan hann naut greiðsluskjóls. Miðað sé við nýjustu framfærsluviðmið kæranda í hag. Samkvæmt þessu sé miðað við framfærslukostnað septembermánaðar 2013 fyrir fullorðinn einstakling. Samkvæmt þessu sé gengið út frá því að kærandi hafi haft getu til að leggja til hliðar 5.151.578 krónur á fyrrnefndu tímabili. Þrátt fyrir beiðnir þar að lútandi hafi kærandi ekki framvísað gögnum sem veitt gætu skýringar á því hvers vegna hann hafi enga fjármuni lagt til hliðar á tímabilinu. Sé því óhjákvæmilegt annað en að líta svo á að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum í greiðsluskjóli, sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Að framangreindu virtu og með hliðsjón af gögnum málsins hafi ekki verið hjá því komist að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda samkvæmt 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Umboðsmaður skuldara fer fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest með vísan til forsendna sem fram komi í henni.

 

IV. Niðurstaða

Kærandi telur að embætti umboðsmanns skuldara hafi ekki sinnt leiðbeiningarskyldu sinni að því er varðar þau framfærsluviðmið er honum bæri að fara eftir.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald veita þeim sem til þess leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál er snerta starfssvið þess. Af reglunni leiðir að stjórnvaldi ber að leiðbeina aðilum að eigin frumkvæði. Engar formkröfur eru fyrir hendi varðandi leiðbeiningarskylduna. Þannig geta upplýsingar verið bæði skriflegar og munnlegar, almennar eða sérstakar, komið fram í bæklingum eða á vefsíðum.

Með setningu laga nr. 128/2010 tók gildi tímabundin frestun greiðslna samkvæmt 11. gr. lge. þegar umboðsmaður skuldara tók á móti umsókn hjá þeim einstaklingum sem sóttu um heimild til greiðsluaðlögunar fram til 1. júlí 2011. Þegar umsókn var lögð fram afhenti umboðsmaður skuldara umsækjendum sérstakt upplýsingaskjal þar sem greint var frá skyldum umsækjenda í greiðsluskjóli í samræmi við 12. gr. lge. Þar á meðal var greint frá því að umsækjendum bæri að leggja fyrir fé sem væri umfram það sem þyrfti til reksturs heimilis, sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Í upplýsingaskjalinu var einnig greint frá því að umsækjendur mættu greiða það sem tengdist daglegum rekstri heimils og nota skyldi neysluviðmið umboðsmanns skuldara til viðmiðunar um hvað teldist eðlilegur kostnaður í því sambandi. Þá var sérstaklega vakin athygli á því að uppfyllti umsækjandi ekki skyldur sínar meðan á frestun greiðslna stæði gæti það leitt til þess að samningur um greiðsluaðlögun kæmist ekki á.

Þá sendi umboðsmaður skuldara umsækjendum, sem voru í greiðsluskjóli, bréf 8. apríl 2011 og 27. nóvember 2012 þar sem meðal annars var minnt á skyldur umsækjenda um að leggja til hliðar fjármuni sem voru umfram framfærslu samkvæmt 12. gr. lge.

Á vefsíðu umboðsmanns skuldara á þeim tíma er kærandi sótti um heimild til greiðsluaðlögunar voru upplýsingar um skyldur umsækjenda við greiðsluaðlögunar-umleitanir. Eftirfarandi texta var að finna á vefsíðunni undir liðnum greiðsluaðlögun einstaklinga:

Þegar umsókn um greiðsluaðlögun er móttekin af umboðsmanni skuldara hefst frestun greiðslna. Með frestuninni eru lagðar ákveðnar skyldur á herðar kröfuhöfum og umsækjendum. Á fresttíma má umsækjandi einungis greiða það sem viðkemur rekstri heimilsins og framfærslu. Framfærslan innifelur mat, hreinlætisvörur, tómstundir, fatnað, lækniskostnað skv. neysluviðmiði umboðsmanns og fastra liða í framfærslu s.s. síma, hita, rafmagn, dagvistun og fleira. Umsækjandi þarf einnig að leggja til hliðar allar afgangstekjur sínar. Á fresttíma er kröfuhöfum óheimilt að taka við greiðslum vegna skulda hvort sem umsækjandi er í skilum eða vanskilum. Þetta á við um greiðslur af veðlánum og öðrum lánum s.s. bílakaupalánum, yfirdráttarlánum og fleira. Þá er kröfuhöfum einnig óheimilt að krefjast nauðungarsölu á eigum umsækjenda og hjá þeim sem kynnu að vera í ábyrgðum fyrir umsækjenda. Frestun greiðslna lýkur með samningi, afturköllun eða synjun umsóknar.“

Kærunefndin telur að kæranda hafi mátt vera ljóst að honum bar að haga framfærslukostnaði sínum eftir sérstökum framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara þegar hann sótti um greiðsluaðlögun. Í því sambandi var sérstaklega tilgreint á umsóknareyðublaði um greiðsluaðlögun hvaða fjárhæðir framfærslukostnaður hans skyldi miðast við og að frekari upplýsingar um framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara væri að finna á vefsíðu embættisins. Í umsókninni segir „Þú finnur framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara á heimasíðunni www.ums.is

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi einnig upplýstur um skyldur sínar í samræmi við 1. mgr. 12. gr. lge. með skriflegum leiðbeiningum sem fylgdu með ákvörðun umboðsmanns skuldara 23. maí 2011 þar sem honum var veitt heimild til greiðsluaðlögunar. Samkvæmt greiðsluáætlun, sem einnig fylgdi ákvörðun umboðsmanns skuldara, var mánaðarleg greiðslugeta kæranda eftir greiðslu framfærslukostnaðar tiltekin 168.951 króna.

Kærunefndin telur að embætti umboðsmanns skuldara hafi samkvæmt framansögðu leiðbeint kæranda þegar hann sótti um heimild til greiðsluaðlögunar með fullnægjandi hætti með því að veita upplýsingar við móttöku umsóknar, í tilkynningu sem send var kæranda á tímabili greiðsluskjóls, á vefsíðu embættisins og með upplýsingum á umsóknareyðublaði um greiðsluaðlögun. Var um að ræða útskýringar á afdráttarlausu lagaákvæði a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun þar sem segir að á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Eins og fram kemur í leiðbeiningunum er þar enn fremur útskýrt að skylda til að leggja fé til hliðar hefjist frá því að umsókn um greiðsluaðlögun er móttekin þegar frestun greiðslna hefst. Að þessu virtu er það álit kærunefndarinnar að umboðsmaður skuldara hafi framfylgt leiðbeiningarskyldu stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Kæranda bar því að virða skyldur samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. frá þeim tíma er hann sótti um heimild til greiðsluaðlögunar 1. apríl 2011.

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. lge. með vísan til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge., þar sem fjallað er um skyldur skuldara á meðan leitað er greiðsluaðlögunar.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skal skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Í 2. mgr. 12. gr. kemur fram að telji umsjónarmaður að skuldari hafi brugðist skyldum sínum skuli hann óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður samkvæmt 15. gr. lge.

Eins og fram er komið tilkynnti umsjónarmaður með bréfi til umboðsmanns skuldara 17. desember 2012 að hann teldi að fram væru komnar upplýsingar sem bentu til þess að kærandi hefði brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. með því að láta hjá líða að leggja fé til hliðar í greiðsluskjóli. Í framhaldi af þessu felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður 27. september 2013.

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á því að kærandi hafi ekkert lagt til hliðar á því tímabili sem hann naut greiðsluskjóls. Kærandi kveður ástæðu þess þá að framfærslukostnaður hans hafi verið hærri en framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara geri ráð fyrir.

Að mati umboðsmanns skuldara hafi kærandi átt að leggja til hliðar að minnsta kosti 5.151.578 krónur frá því að umsókn hans um greiðsluaðlögun var lögð fram.

Samkvæmt fyrirliggjandi skattframtölum og launaupplýsingum ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa mánaðartekjur kæranda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

 

Tímabilið 1. apríl 2011 til 31. desember 2011: Níu mánuðir
Nettótekjur 2.308.149
Mánaðartekjur alls að meðaltali 256.461


Tímabilið 1. janúar 2012 til 31. desember 2012: 12 mánuðir
Nettótekjur 2.894.350
Mánaðartekjur alls að meðaltali 241.196


Tímabilið 1. janúar 2013 til 31. ágúst 2013: Átta mánuðir
Nettótekjur 2.393.748
Nettótekjur alls 299.219


Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 7.596.247
Nettó mánaðartekjur alls að meðaltali í greiðsluskjóli 261.940

 

Sé miðað við framfærslukostnað samkvæmt ákvörðun umboðsmanns skuldara, tekjur kæranda og bætur var greiðslugeta kæranda þessi í greiðsluskjóli í krónum:

 

Tímabilið 1. apríl 2011 til 31. ágúst 2013: 29 mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 7.596.247
Bótagreiðslur 2011 364.949
Alls til ráðstöfunar í greiðsluskjóli 7.961.196
Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur að meðaltali í greiðsluskjóli 274.524
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns 91.646
Greiðslugeta kæranda á mánuði 182.878
Alls sparnaður í 29 mánuði í greiðsluskjóli x 182.878 5.303.462

 

Kærandi telur að hvorki liggi fyrir skýring á framfærsluviðmiði umboðsmanns skuldara né rökstuðningur fyrir því að viðmið umboðsmanns skuldara séu svo miklu lægri en viðmið sem aðrir opinberir aðilar hafi reiknað út svo sem Íbúðalánasjóður og velferðarráðuneytið.

Það er markmið lge. að gera einstaklingum kleift að endurskipuleggja fjárhag sinn með samningum við kröfuhafa, eftir atvikum með niðurfellingu skulda að einhverju eða öllu leyti. Samkvæmt reglum lge. er skuldara gert að greiða eins hátt hlutfall af kröfum og sanngjarnt er þar sem í greiðsluaðlögun felst að jafnaði eftirgjöf af kröfum með tilheyrandi afskriftum í lok greiðsluaðlögunartímabils. Meðal annars þess vegna er skuldara gert að leggja til hliðar af launum sínum og öðrum tekjum það fé sem er umfram framfærslukostnað á meðan leitað er greiðsluaðlögunar. Féð skal nota til að greiða kröfuhöfum þegar kemur að efndum greiðsluaðlögunarsamnings.

Í c-lið 2. mgr. 1. gr. laga um umboðsmann skuldara nr. 100/2010 kemur fram að eitt af hlutverkum umboðsmannsins sé að veita atbeina til tilrauna til samninga um greiðsluaðlögun. Í nefndaráliti félags- og tryggingamálanefndar Alþingis frá 15. júní 2010 segir um frumvarp til laga um umboðsmann skuldara, er síðar varð að lögum nr. 100/2010: „Nefndin ræddi ítarlega hlutverk umboðsmanns skuldara og telur mikilvægt að stofnuninni verði falið að útbúa lágmarksframfærsluviðmið og uppfæra þau reglulega. Nauðsynlegt er að í frumvarpi til greiðsluaðlögunar komi fram raunhæf tillaga að greiðslum þar sem gert er ráð fyrir framfærsluþörf einstaklingsins og fjölskyldu hans. Jafnframt er mikilvægt að samræmis sé gætt að þessu leyti.“ Samkvæmt þessu gerði nefndin þá breytingartillögu á fyrirliggjandi frumvarpi til laga um umboðsmann skuldara að inn í 2. mgr. 1. gr. var bætt staflið d þar sem fram kemur að hlutverk embættis umboðsmanns skuldara sé að útbúa framfærsluviðmið og uppfæra það reglulega.

Í 12. gr. lge. er gerð grein fyrir því hvernig skuldari skuli haga fjármálum sínum á meðan leitað er greiðsluaðlögunar, þar á meðal að leggja fyrir á tímabilinu það fé sem er umfram framfærslukostnað. Þetta tiltekna ákvæði veitir út af fyrir sig ekki nákvæmar leiðbeiningar um hvernig framfærslukostnaður skuli reiknaður. Hér verður að hafa í huga að þær aðstæður sem 12. gr. lge. varðar eru þær að skuldarinn hefur sjálfur óskað greiðsluaðlögunarsamnings við kröfuhafa. Eins og áður hefur verið vikið að er um að ræða samninga sem að jafnaði fela í sér niðurfellingu krafna að samningstíma liðnum. Samningsferlið leggur þær skyldur á herðar skuldara að hann greiði svo mikið sem honum er unnt af kröfunum. Meðal annars í því skyni að gefa skuldara svigrúm til að leggja fyrir á meðan samningaumleitanir eru undirbúnar og yfirstandandi er lagt bann við því að kröfuhafar taki á móti greiðslum frá skuldara eða innheimti kröfur á hendur honum, sbr. 3. gr. lge. Jafnframt verður skuldari að stilla framfærslukostnaði sínum í hóf á þessu tímabili til þess að honum takist að leggja fyrir á tímabilinu. Það er einnig mikilvægt að bæði skuldarar og kröfuhafar njóti jafnræðis að þessu leyti og því verður framfærslukostnaður skuldara að styðjast við fyrirfram ákveðið almennt viðmið. Í ljósi laga um umboðsmann skuldara nr. 100/2010, lögskýringargagna, lge. og þess sem hér hefur verið rakið liggur fyrir að ekki er öðru viðmiði til að dreifa en framfærsluviðmiði umboðsmanns skuldara. Telur kærunefndin því að við mat á því hvaða fjárhæð skuldarar eiga að leggja til hliðar af launum sínum í greiðsluskjóli beri að notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur, sbr. 4. mgr. 16. gr. lge.

Í málinu liggur fyrir að kærandi hefur ekki lagt neina fjármuni til hliðar á greiðsluaðlögunartímanum. Eins og fyrr greinir telur kærunefndin að kæranda hafi mátt vera það ljóst, með vísan til leiðbeininga umboðsmanns skuldara, að honum hafi verið skylt að leggja til hliðar þá fjármuni sem voru umfram framfærslukostnað hans samkvæmt framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara.

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn er sýna fram á að framfærslukostnaður hans, þar með talinn lyfja- og lækniskostnaður, hafi verið hærri en neysluviðmið umboðsmanns skuldara geri ráð fyrir. Því er það mat kærunefndarinnar í máli þessu að ekki sé hægt að taka tillit til þess. Samkvæmt öllu framansögðu hefði kærandi því átt að leggja fyrir 5.303.462 krónur á tímabili greiðsluskjóls.

Samkvæmt þessu fellst kærunefndin á þá niðurstöðu umboðsmanns skuldara að kærandi hafi ekki sinnt skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. á fyrrgreindu tímabili.

Í ljósi alls þessa verður að líta svo á að umboðsmanni skuldara hafi borið samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laganna að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Kröfu um greiðslu málskostnaðar verður að mati kærunefndarinnar að skilja svo að verið sé að fara fram á greiðslu þóknunar til lögfræðings kæranda sem hefur komið fram fyrir hann gagnvart kærunefndinni.

Í 30. gr. lge. kemur fram hvernig háttað skuli greiðslu kostnaðar við málsmeðferð samkvæmt lögunum. Segir þar að umboðsmaður skuldara beri kostnað við meðferð umsóknar um greiðsluaðlögun og störf umsjónarmanna. Lánardrottnar beri þann kostnað sem á þá falli af meðferð umsóknar um greiðsluaðlögun og framkvæmd hennar. Kostnaður af sölu eignar greiðist af söluandvirði hennar. Í lge. er ekki að finna ákvæði er lúta að kostnaði við málsmeðferð fyrir kærunefnd greiðsluaðlögunarmála. Þannig greina lge. ekki frá því hver beri sérfræðikostnað kæranda, kjósi hann að leita sér aðstoðar utanaðkomandi aðila við málarekstur sinn fyrir kærunefndinni. Þá eru engin ákvæði í lge. er heimila kærunefndinni að ákvarða kæranda kostnað úr hendi þriðja aðila vegna málsmeðferðar fyrir nefndinni. Samkvæmt þessu standa lög ekki til annars en að kærandi verði sjálfur að bera þann kostnað sem hann kann að hafa stofnað til við málsmeðferð fyrir kærunefndinni. Kröfu kæranda um greiðslu málskostnaðar er því hafnað.

 

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A er staðfest.

Kröfu kæranda um málskostnað er hafnað.

 

Sigríður Ingvarsdóttir

Eggert Óskarsson

Lára Sverrisdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta