Úrskurður í máli nr. IRR16030226
Ár 2016, 21. mars er í innanríkisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi
ú r s k u r ð u r
í stjórnsýslumáli nr. IRR16030226
Kæra U-listans í Langanesbyggð
vegna ákvörðunar
meirihluta sveitarstjórnar Langanesbyggðar
I. Kröfur
Þann16. mars 2016, barst ráðuneytinu
stjórnsýslukæra þriggja fulltrúa U-listans í Langanesbyggð, þ.e. þeirra
Siggeirs Stefánssonar, Halldóru Jóhönnu Friðbergsdóttur og Björns Guðmundar
Björnssonar (hér eftir nefnd U-listi), vegna þeirrar ákvörðunar meirihluta
sveitarstjórnar Langanesbyggðar, sem tekin var á fundi sveitarstjórnar þann 25.
febrúar 2016, að breyta fundartíma sveitarstjórnar í samþykktum
sveitarfélagins.
Verður að ætla að þess sé krafist að
fyrrgreind ákvörðun verði felld úr gildi.
II. Málsatvik, málsmeðferð og sjónarmið U-listans
Á fundi sveitarstjórnar
Langanesbyggðar, þann 25. febrúar 2016, var eftirfarandi bókað:
Reglulegir fundir sveitarstjórnar Langanesbyggðar - minnisblað
Sveitarstjóri lagði fram og fór yfir minnisblað varðandi málið er varðar breyttar tímasetningar funda. Breytingin felur í sér að hér eftir verði fundað þriðja hvern fimmtudag.
Tillaga að bókun frá U-lista: Það er mat U-listans að afgreiðsla allra mála verði þyngri og erfiðari ef fækka eigi fundum sveitarstjórnar frá því sem nú er, sem og að fundirnir verði lengri og strembnari og því gerir U-listinn það að tillögu sinni að reglubundnir fundir sveitarstjórnar haldist óbreyttir en þóknun sveitarstjórnarmanna, fyrir hvern fund, verði lækkuð um helming. 3 samþykkir, Hilma, Hulda Kristín, Þorsteinn Ægir og Reynir Atli á móti.
Tillaga að bókun: Sveitarstjórn Langanesbyggðar felur sveitarstjóra að gera þær breytingar sem þarf á samþykktum sveitarfélagsins. 4 samþykkir, Siggeir, Halldóra Jóhanna og Björn Guðmundur á móti
U- listinn vísar til þess að um sé að ræða breytingu á samþykkt sveitarfélagsins Langanesbyggðar, nr. 612/2013, en í 1. og 2. mgr. 8. gr. samþykktarinnar segir
Sveitarstjórn Langanesbyggðar heldur reglulega fundi sveitarstjórnar annan og fjórða hvern fimmtudag í mánuði, kl. 17.00.
Aukafundi skal halda þegar oddviti eða sveitarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess.
Í 1. tölulið 1. mgr. 14. gr. sömu samþykktar sé síðan skýrlega kveðið á um að sé um breytingu á samþykkt sveitarfélagsins að ræða þá þurfi tvær umræður um málefnið í sveitarstjórn, en svo hafi ekki verið í þessu tilfelli. Ákvæði er svohljóðandi:
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:
1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
Bendir U-listinn á að reglulegur fundur sveitarstjórnar hefði átt að vera haldinn þann 10. mars 2016, en svo hafi ekki verið.
Á grundvelli eðlis málsins taldi ráðuneytið ekki þörf á því að gefa sveitarfélaginu Langanesbyggð kost á að gæta andmæla við sjónarmið U-listans.
V. Niðurstaða ráðuneytisins
Í 1. mgr. 111. gr. sveitarstjórnarlaga segir að aðilum máls sé heimilt að kæra til ráðuneytisins ákvarðanir um rétt eða skyldu manna sem lúta eftirliti þess skv. 109. gr. Í 2. mgr. sömu greinar segir að kæra skuli borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun, nema lög mæli á annan veg. Um kæruleiðbeiningar, kærufrest og meðferð kærumáls fer að öðru leyti að ákvæðum stjórnsýslulaga.
Af athugasemdum við 111. gr. í frumvarpi því er varð að lögunum er ljóst að einungis svonefndar stjórnvaldsákvarðanir verða bornar undir ráðuneytið með stjórnsýslukæru. Með stjórnvaldsákvörðun er átt við ákvörðun stjórnvalds í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga sem tekin er í skjóli stjórnsýsluvalds og er beint milliliðalaust út á við að tilteknum aðila eða aðilum og með henni kveðið á bindandi hátt um rétt eða skyldur þeirra í ákveðnu og fyrirliggjandi máli.
Ljóst er að ágreiningsefni það sem U-listinn hefur borið undir ráðuneytið er ekki stjórnvaldsákvörðun í framangreindum skilningi. Ekki eru um það að ræða að sveitarfélagið hafi tekið ákvörðun sem beint hafi verið að tilteknum aðila þar sem kveðið var á bindandi hátt um rétt hans eða skyldu í ákveðnu og fyrirliggjandi máli, heldur var um að ræða breytingu á samþykkt sveitarfélagins er varðar fundartíma sveitarstjórnar.
Á grundvelli framangreinds telur ráðuneytið að hin kærða ákvörðun uppfylli ekki skilyrði þess að vera stjórnvaldsákvörðun sem kæranleg sé til ráðuneytisins á grundvelli 1. mgr. 111. gr. sveitarstjórnarlaga, sbr. 109. gr. sömu laga og ber að vísa máli þessu frá ráðuneytinu.
Ráðuneytið tekur hins vegar fram að það mun á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga taka til athugunar hvort tilefni sé til að skoða stjórnsýslu sveitarstjórnar Langanesbyggðar í máli þessu, en U-listinn á ekki aðild að því máli.
Með vísun til framangreinds er óhjákvæmilegt að vísa kæru þessari frá ráðuneytinu.
Úrskurðarorð
Stjórnsýslukæru þriggja fulltrúa U-listans í Langanesbyggð, þ.e. þeirra Siggeirs Stefánssonar, Halldóru Jóhönnu Friðbergsdóttur og Björns Guðmundar Björnssonar vegna þeirrar ákvörðunar meirihluta sveitarstjórnar Langanesbyggðar, sem tekin var á fundi sveitarstjórnar þann 25. febrúar 2016, að breyta fundartíma sveitarstjórnar í samþykktum sveitarfélagins er vísað frá.