Ólafsfjarðarbær - Snjómokstur innan þéttbýlis, jafnræðisregla
Brimnes Hótel ehf.
29. maí 2006
FEL06040026
Sæunn Axelsdóttir, framkvæmdastjóri
Bylgjubyggð 2
625 Ólafsfirði
Vísað er til erindis yðar til ráðuneytisins, dags. 6. apríl 2006, þar sem kvartað er undan því að Ólafsfjarðarbær moki ekki snjó við hús sem eru hluti af Brimnes Hóteli ehf., Ólafsfirði, sem er
í eigu yðar og eiginmanns yðar.
Erindið var sent Ólafsfjarðarbæ til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 18. apríl 2006.
Umsögn Ólafsfjarðarbæjar, dags. 28. apríl sl., barst ráðuneytinu 2. maí sl. og var yður gefinn frestur til 12. maí sl. til andsvara. Athugasemdir bárust ekki.
Í umsögn Ólafsfjarðarbæjar kemur fram að bærinn hafi þann 11. mars 2004 sett reglur um snjómokstur sem bornar hafi verið í hvert hús og kynntar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samkvæmt þeim reglum sjái bærinn um snjómokstur á sínum eigin eignum, þ.e. götum bæjarins og gangstéttum. Einnig sjái hann um og tryggi aðkomu íbúa Ólafsfjarðarbæjar að stofnunum bæjarins og þeim húsum sem hann leigi aðstöðu í og lögbundin þjónustustarfsemi fari fram. Tryggð sé fær akstursleið milli heimilis heilsugæslulæknis og heilsugæslustöðvar sem og aðgengi að sjúkrabíl sem staðsettur sé í húsnæði heilsugæslustöðvarinnar. Þá hafi Ólafsfjarðarbær gert samning við Vegagerð ríkisins um mokstur Aðalgötu sem er þjóðvegur í þéttbýli.
Með hliðsjón af framangreindu sjái Ólafsfjarðarbær ekki um snjómokstur við íbúðarhús og fyrirtæki sem tengjast ekki starfsemi bæjarins. Þó séu fjarlægðir snjóruðningar sem geti myndast fyrir framan heimkeyrslur og bílastæði, en lengra sé að óheimilt að ganga, enda þá komið inn á einkalóðir. Eigendur verði að sjá um snjómokstur á sínum lóðum. Það gildi um Brimnes Hótel með sama hætti og aðrar slíkar eignir í einkaeigu.
Af þessu tilefni tekur ráðuneytið fram:
Ekki er kveðið sérstaklega á um snjómokstur sveitarfélaga í lögum. Snjómokstur er eitt af sameiginlegum velferðarmálum sveitarfélaga sem varðar íbúa þeirra og sveitarfélög vinna að
skv. 2. mgr. 7. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998.
Eins og áður var vikið að hefur Ólafsfjarðarbær sett sér reglur um snjómokstur. Eru þær reglur aðgengilegar á heimasíðu Ólafsfjarðarbæjar auk þess sem þeim hefur verið dreift til bæjarbúa.
Ráðuneytið telur að reglur Ólafsfjarðarbæjar um snjómokstur, sem undanskilji lóðir og heimkeyrslur í einkaeigu, séu í samræmi við venjubundnar skyldur sveitarfélaga í þessum efnum, þ.e. að halda götum og gangstéttum greiðfærum, auk aðkomu að stofnunum í eigu sveitarfélagsins eða þar sem þjónusta sveitarfélagsins fer fram. Gerir ráðuneytið því ekki athugasemdir við reglur Ólafsfjarðarbæjar um snjómokstur eða framkvæmd þeirra sem lýst er í umsögn bæjarins til ráðuneytisins.
Með hliðsjón af framangreindu telur ráðuneytið ekki þörf á að hafa frekari afskipti af máli þessu.
Fyrir hönd ráðherra
Guðjón Bragason (sign.)
Þorgerður Benediktsdóttir (sign.)
29. maí 2006 - Ólafsfjarðarbær - Snjómokstur innan þéttbýlis, jafnræðisregla (PDF)