Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir á málefnasviði innviðaráðuneytisins

Úrskurður í stjórnsýslumáli nr. IRR11050283


Ár 2013, þann 24. janúar er í innanríkisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r

í máli nr. IRR 11050283

 

Jóna Benediktsdóttir

gegn

Ísafjarðarbæ

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru er barst ráðuneytinu þann 23. maí 2011, kærði Jóna Benediktsdóttir, kt. xxxxxx-xxxx, (hér eftir nefnd JB), ákvörðun bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, dags. 19. maí 2011, um ráðningu í starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs sveitarfélagsins. Ekki eru hafðar uppi sérstakar kröfur í máli þessu en af kæru verður ráðið að farið sé fram á að ráðuneytið úrskurði að umrædd ráðning hafi verið ólögmæt.

Kæran er borin fram á grundvelli 1. mgr. 103. gr. eldri sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og er kæran framkomin innan lögmælts þriggja mánaða kærufrests sbr. 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

II.      Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins voru atvik þess með eftirfarandi hætti.

Á 292. fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar þann 24. febrúar árið 2011 var ákveðið að breyta stjórnskipulagi sveitarfélagsins og fól sú breyting m.a. í sér að skóla- og fjölskyldusviði var skipt upp í tvö svið. Var ákveðið að auglýsa eftir sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs og segja upp þremur starfsmönnum, grunnskólafulltrúa, íþróttafulltrúa og leikskólafulltrúa.

Ísafjarðarbær réði fyrirtækið Capacent til þess að hafa umsjón með ráðningu í starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs og var starfið auglýst laust til umsóknar þann 20. mars 2011. Sóttu alls 13 einstaklingar um starfið. Að loknu ráðningarferli varð það niðurstaða Capacent að tveir umsækjendur um starfið væru öðrum hæfari, JB og Margrét Halldórsdóttir (hér eftir nefnd MH). Á 699. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar var svo samþykkt tillaga formanns bæjarráðs um að lagt yrði til við bæjarstjórn að MH yrði ráðin í starfið. Var sú tillaga svo samþykkt á 296. fundi bæjarstjórnar þann 19. maí 2011.

Með tölvubréfi, dags. 23. maí 2011, kærði JB framangreinda ákvörðun til ráðuneytisins og bárust ráðuneytinu frekari gögn frá henni með tölvubréfi, dags. 27. júní 2011. Óskaði ráðuneytið í kjölfarið með bréfi, dags. 29. júní 2011, eftir umsögn sveitarfélagsins um kæruna auk afrits af gögnum málsins. Bárust umbeðin gögn ráðuneytinu með bréfi sveitarfélagsins, dags. 22. júlí 2011.

Með bréfi, dags. 2. ágúst 2011, gaf ráðuneytið JB færi á að gæta andmælaréttar vegna umsagnar Ísafjarðarbæjar um kæru hennar og koma á framfæri frekari gögnum teldi hún þess þörf. Bárust athugasemdir JB þar að lútandi ráðuneytinu með tölvubréfi, dags. 29. ágúst 2011.

Í ljósi athugasemda JB taldi ráðuneytið nauðsynlegt að leita eftir afstöðu Ísafjarðarbæjar til þeirra og var það gert með bréfi, dags. 21. september 2011. Bárust athugasemdir sveitarfélagsins þar að lútandi ráðuneytinu með bréfi, dags. 27. október 2011. Með bréfi, dags. 3. nóvember 2011, gaf ráðuneytið JB kost að koma á framfæri frekari athugasemdum vegna umsagnar sveitarfélagsins. Bárust þær ráðuneytinu með tölvubréfi, dags. 30. nóvember 2011.

Kæra þessi hefur hlotið lögbundna umsagnarmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III.    Málsástæður og rök JB

Í kæru sinni til ráðuneytisins rekur JB að auglýst hafi verið laust til umsóknar starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar. Hafi fjórir umsækjendur verið metnir hæfari en aðrir og að lokum hafi einn þeirra verið valinn. Tekur JB fram að hún efist um að mat á umsækjendum hafi verið unnið á málefnalegan hátt eða í samræmi við góða stjórnsýslu. Fylgdu með kæru JB ýmis gögn en hún tekur m.a. fram að gerð hafi verið athugasemd við excel-skjal frá Capacent þegar það var lagt fram í bæjarráði Ísafjarðarbæjar þann 26. apríl 2011. Hafi fulltrúi minnihluta bæjarráðs talið að það endurspeglaði ekki réttilega vægi þátta í starfinu, þ.e.a.s. að vægi þekkingar á íþrótta- og tómstundamálum væri allt of mikið. Eins hafi verið gerð athugasemd við einkunnargjöf sem umsækjendur hefðu fengið á grundvelli menntunar og reynslu. JB tekur jafnframt fram að hún hafi undir höndum annað skjal frá Capacent sem unnið hafi verið síðar sem og greinargerð frá Capacent sem hún hafi fengið afhenta er hún óskaði eftir rökstuðningi fyrir hinni kærðu ákvörðun. Þar sé búið að breyta vægi þátta, bæta við nýjum þáttum og breyta einkunnargjöf fyrir tiltekna þætti.

Þá tekur JB fram í andmælum sínum í tilefni af umsögn Ísafjarðarbæjar um kæru hennar að í auglýsingu starfsins komi fram að hlutverk skóla- og tómstundasviðs sé að veita faglega forystu, hafa frumkvæði að nýsköpunar- og þróunarstarfi og hvetja og efla samstarfsmenn sína til verka. Telur JB að hún hafi mun meiri menntun og reynslu á þessum sviðum en sá einstaklingur sem ráðinn hafi verið í starfið. Eins og sjá megi í gögnum málsins hafi JB miðað framhaldsnám sitt við Háskóla Íslands, áður Kennaraháskóla Íslands, við þessa þætti og unnið fjölmörg þróunarverkefni og verkefni til að efla fagmennsku starfsfólks. JB geti ekki með nokkru móti fundið þess stað í gögnum málsins að sú sem ráðin hafi verið í starfið hafi sambærilega menntun eða reynslu á því sviði og hún. Þá tekur JB fram að hún telji mjög mikilvægt að æðsti yfirmaður menntamála í sveitarfélagi hafi formlega framhaldsmenntun á sviði menntamála sem gagnist við leiðbeiningar og við stefnumótun í slíku starfi. Nauðsynlegt sé, að sá sem eigi að leiðbeina fagmenntuðum starfsmönnum geti fært fagleg rök fyrir skoðunum sínum og ákvörðunum. Telur JB að við vinnslu starfsumsókna hafi verið horft fram hjá þessum þætti. Þá tekur JB fram að í excel-skjali frá Capacent sé villa sem kölluð sé samlagningarvilla. Telur JB að um sé að ræða villu í formúlu, deilitala verði því ekki rétt, en formúlan sé ,,dregin niður“ og sú villa hafi því ekki áhrif á röðun umsækjenda.

Þá komi eftirfarandi fram í skjali sem merkt sé Capacent ráðningar – lokaeintak: ,,Ráðgjafi Capacent mat að vægi hvers málaflokks sviðsins (grunn-,leik- og íþrótta- og tómstundamála) ætti að vera jafnhátt þar sem fram kemur í auglýsingu eftirfarandi skilyrði […]. Ekki er sett fram í auglýsingu að málaflokkar sviðsins eigi að hafa mismunandi vægi.“ JB tekur fram að þessu atriði hafi verið breytt frá fyrstu valtöflu til þeirrar næstu og telur hún undarleg vinnubrögð að breyta vægi málaflokka á síðari stigum vinnslu málsins. Slíkt bendi til þess að niðurstöður úr valtöflu hafi ekki verið eins og verkkaupi vonaðist til. Þá tekur JB fram að hvað varði rökstuðning Capacent fyrir hæfnismati, þá telji hún að ekki hafi verið gætt jafnræðis við mat á umsækjendum við vinnslu þess og geri hún því eftirfarandi athugasemdir, auk þess sem hún telur að öruggt sé að síðara viðtalið hafi ekki verið hljóðritað heldur skrifað upp eftir minni.

Háskólapróf sem nýtist í starfinu, framhaldsmenntun kostur

JB tekur fram að undir þessum lið sé ekki getið um þau 8 námskeið sem hún hafi tekið um uppbyggingu sjálfsaga (restitution), sem sé samskiptastefna sem notuð sé í öllum grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Hafi hún einnig öðlast leiðbeinandaréttindi frá rétthöfum efnisins. Telur JB að þarna gæti misræmis í umsögnum um umsækjendur þar sem þess sé til dæmis getið að sú sem ráðin var í starfið hafi réttindi sem ungbarnasundkennari, sem JB telur fremur ólíklegt að nýtist í starfinu. Þá telur JB einnig að mjög lítið sé gert úr framhaldsmenntun sinni og öllum þeim starfstengdu verkefnum er snúi að valdeflingu, fagmennsku og starfsþróun, sem hún hafi unnið í náminu, sem t.d. lúti að því hvernig valdefling sé notuð í faglegri og persónulegri ráðgjöf, gerð þróunaráætlana fyrir stofnanir og hvernig þróunarverkefnum sé viðhaldið, greining veikra og sterka hliða stofnana og vinnsla umbótaáætlana og verkefna til að rjúfa faglega einangrun kennara. Allt séu þetta raunveruleg verkefni.

Stjórnunarreynsla mjög æskileg, þekking af breytingastjórnun er kostur

JB telur að undir þessum lið vanti allt um stundatöflugerð sem hún hafi séð um sem aðstoðarskólastjóri Grunnskólans á Ísafirði, en í því hafi falist röðun starfa niður á alla kennara skólans. Í gögnum málsins komi einnig fram að þó hún hafi aðeins haft formlega umsjón með almennum starfsmönnum, 25-30 talsins, þá hafi hún komið mjög mikið að öðrum starfsmannamálum. Þá komi fram í hæfnismatinu að hún sé formaður í félagi um uppbyggingarstefnu. Ekki sé hins vegar tekið fram að það feli meðal annars í sér að fá til Íslands erlenda fyrirlesara sem fari í skóla víðsvegar um landið, sem og að gefa út fréttabréf sem fari í allar skólastofnanir. Þá sé ekki heldur getið um að JB hafi haft umsjón með sérdeild Grunnskólans á Ísafirði. Telur JB að ekki sé sambærilegt að hafa faglega umsjón með starfi háskólamenntaðs fólks eins og hafi falist í störfum hennar sem aðstoðarskólastjóri og að hafa umsjón með störfum frístundaleiðbeinenda. Ekki sé það heldur sambærilegt að sameina kennarahóp um eina uppeldisstefnu til að vinna eftir, og reynsla af almennum kerfisbreytingum eins og sú sem ráðin var í starfið nefni sem sína reynslu af breytingastjórnun.

Reynsla og þekking á sviði leik- og grunnskóla, íþrótta- og tómstundamála

Hvað varði reynslu á sviði íþrótta- og tómstundamála þá sé ekki getið um að JB hafi setið í bæjarstjórn í 5 ár og hafi mjög góða yfirsýn yfir öll samskipti Ísafjarðarbæjar við félög á þeim vettvangi sem og uppbyggingu á sviðinu. Einnig hafi hún starfað að margskonar öðrum félagsmálum svo sem í skátafélagi. Þá sé ekki getið um reynslu JB af fullorðinsfræðslu, bæði fyrir fólk á háskólastigi sem og vegna grunnmenntunar. Þá sé ekki getið um að JB hafi séð um faglega ráðgjöf í leikskóla né heldur um gott tengslanet hennar í skólamálum.

Reynsla af stefnumótun, samþættingarstarfi og verkefnastjórnun

JB tekur fram að hér sé hvorki getið um samstarfsverkefni tónlistarskóla og grunnskóla né fjallgönguverkefni eða þróunarverkefni sem hún hafi unnið með mörgum skólum sveitarfélagsins. Ekki sé getið um verkefni sem hún hafi unnið með Grunnskóla Önundarfjarðar þar sem veikar og sterkar hliðar skólastarfsins hafi verið greindar og unnin umbótaáætlun fyrir skólann í kjölfarið. Tekið hafi verið fram að ekki hafi verið unnt  að meta hvort uppbyggingarverkefnið hafi verið á réttri leið eða ekki, sem JB telur ekki rétt. Í fyrra viðtali við hana hafi komið fram að hún hafi fengið mjög góða endurgjöf á verkefnið. Þar hafi einnig komið fram að verkefnið hafi falið í sér mikið skipulag á fræðslu fyrir starfsmenn. Þá sé ekki heldur getið um að hún hafi hvatt og hjálpað mörgum starfsmönnum til aukins náms og þar með eflt mannauð þeirra stofnana sem hún hafi unnið hjá.

Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu

JB telur að ekki sé rétt með farið undir þessum lið. Hún hafi á árum áður starfað í fræðslunefnd sveitarfélagsins og starfað þar síðan árið 2008, auk þess að hafa setið í íþrótta- og tómstundanefnd. Ekki sé heldur getið um reynslu hennar af skólastjórn. Telur JB að hér gæti misræmis í umsögnum um umsækjendur þar sem sú sem ráðin var sé sögð hafa mikla þekkingu vegna starfs síns en ekki sé getið um hver hún sé og ekki verði ráðið af gögnum málsins að hún sé meiri en þekking JB sem hafi starfað bæði sem forstöðumaður og setið í bæjarstjórn og ýmsum nefndum á vegum sveitarfélagsins.

Reynsla af gerð fjárhagsáætlana og samningagerð

JB tekur fram að hér sé ekki getið um veru hennar í samninganefnd fyrir Kennarasamband Íslands sem hafi séð um gerð kjarasamninga fyrir alla grunnskóla á Íslandi. JB telur einnig að hér sé misræmi í umsögnum um umsækjendur þar sem í umsögn um þá sem ráðin var í starfið sé aðeins getið um að viðkomandi hafi mikla reynslu en ekki hver hún sé eða hvort hún sé meiri eða minni en reynsla JB. Telur JB að slíkt verði heldur ekki ráðið af gögnum málsins.  Tekur JB fram að hún hafi fimm sinnum tekið þátt í gerð fjárhagsáætlunar fyrir Grunnskólann á Ísafirði sem aðstoðarskólastjóri og svo fimm sinnum fyrir sveitarfélagið í heild sinni sem bæjarfulltrúi.

Umsagnir

Hvað þennan þátt varðar telur JB að ekki sé allt talið með sem til kosta geti talist. Telur hún að lítið sé gert úr áhuga á fagmennsku og að ekki sé getið um að núverandi yfirmaður vilji ekki missa hana úr starfi og að fyrrum yfirmaður segi að hann myndi hiklaust ráða hana til starfa aftur. Þá sé ekki getið um pólitísk tengsl MH og eins umsagnaraðila hennar.

Þá tekur JB fram að í umsóknargögnum þess er ráðinn var í starfið komi fram augljósir veikleikar á meðferð ritaðs máls. Þessara veikleika sé hvergi getið í greinargerðinni og því megi draga þá ályktun að þeir hafi ekki verið teknir með til umfjöllunar. Veikleikar við ritun íslensku hljóti að hafa talsvert vægi í starfi sem þessu. Telur JB því að litið hafi verið framhjá áhrifamiklum veikleika hjá þeim sem starfið hlaut.

Þá rekur JB að í beiðni hennar um rökstuðning til Ísafjarðarbæjar hafi hún sett fram níu spurningar sem hún hafi talið mikilvægt að fá svör við svo skilja mætti forsendur ráðningarinnar. Í svari sveitarfélagsins hafi engri þessara spurninga verið svarað og í skjölum þeim sem hún hafi nú fengið til yfirlestrar, þ.e. umsögn sveitarfélagsins um kæru hennar og fylgigögnum, megi finna svar við tveimur þeirra. Spurningum hennar, sem lúti flestar að viðmiðum við einkunnargjöf eða einkunnum sem hún hafi fengið, sé því enn ósvarað af hálfu Ísafjarðarbæjar. Viðmiðin komi hins vegar fram í valtöflu frá Capacent og ef farið sé eftir þeim sé einkunnargjöf með öllu óskiljanleg.

Við valtöflu gerir JB m.a. athugasemd við að í viðtölum hafi ekki verið reynt að að fá fram upplýsingar frá henni sem gæti gefið skýrar vísbendingar um hvaða einkunn væri sanngjörn og réttmæt. Þegar valtaflan sé skoðuð megi sjá að framhaldsmenntun sé aðeins 1/64. Telur JB það ótækt þegar verið sé að tala um yfirmann menntamála í sveitarfélagi sem eigi að virka sem yfirmaður og stuðningsaðili allra skólastjórnenda. Það renni ennfremur stoðum undir þann grun að niðurstaðan hafi verið fyrirfram ákveðin þar sem sú sem ráðin hafi verið til starfans hafi ekki framhaldsmenntun á sviðinu.

Þá fái JB einungis 3 í einkunn á sviði tómstunda- og íþróttamála sem hún telur ekki rétt. Hún hafi starfað í bæjarstjórn í rúm 5 ár og fylgst þar vel með öllum samskiptum Ísafjarðarbæjar vegna tómstundastarfs í bænum auk þess að hafa setið áður í íþrótta- og tómstundanefnd. Einnig hafi komið fram í báðum viðtölum að hún hafi verið í stjórn og starfað fyrir skátafélagið í bænum árum saman. Telur JB því að hún hefði átt að fá a.m.k. einkunnina 4 fyrir þennan þátt.

Hvað varði þáttinn reynslu af verkefnastjórnun og stefnumótun megi sjá í gögnum málsins að JB hafi tekið þátt í stefnumótun á mörgum sviðum bæði vegna starfa hennar í grunnskóla og á vettvangi bæjarstjórnar. Einnig að hún hafi stýrt og unnið að fjölmörgum þróunarverkefnum í skólum sveitarfélagsins. Telur JB því að hún hefið átt að fá einkunnina 4,5 fyrir þann þátt.

Þá tekur JB fram í bréfi sínu til ráðuneytisins, dags. 30. nóvember 2011, í tilefni af bréfi Ísafjarðarbæjar, dags. 27. október 2011, að þar komi fram að sveitarfélagið telji að ekki hafi verið sýnt fram á að mat á umsækjendum hafi verið ómálefnalegt. Því sé hún ósammála og telji að það hafi verið skýrt í fyrri andmælum þar sem bæði séu gerðar athugasemdir við einkunnagjöf umsækjenda og greinargerð Capacent.

Í bréfi sveitarfélagsins segi þannig m.a.: ,,Við auglýsingu starfsins mat sveitarfélagið að ekki væri rétt að gera framhaldsmenntun að skilyrði.“ Bendir JB á að um sé að ræða starf yfirmanns allra skólastjórnenda í sveitarfélaginu og að í störf skólastjórnenda sé jafnaði krafist framhaldsmenntunar. Því skjóti skökku við að ekki sé gerð slík krafa til yfirmanna þeirra. Í maí 2011 hafi Ísafjarðarbær svo auglýst stöðu aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Ísafjarðar og þar hafi verið gerð skýr krafa um framhaldsmenntun. Á því megi sjá að gerðar séu meiri kröfur til menntunar aðstoðarskólastjóra grunnskólans á Ísafirði en yfirmanns alls skóla- og tómstundastarfs hjá sveitarfélaginu sem hljóti að teljast undarlegt. Telur JB að þetta styrki þá hugmynd að búið hafi verið að ákveða fyrirfram að ráða MH í umrætt starf – en hún hafi enga framhaldsmenntun.

Rétt er að taka fram að JB hefur fært fram ýmis fleiri rök, málsástæður og gögn máli sínu til stuðnings sem ráðuneytið telur ekki nauðsynlegt að rekja hér en hefur litið til við úrlausn málsins.

IV.    Málsástæður og rök Ísafjarðarbæjar

Í umsögn Ísafjarðarbæjar um kæru JB er m.a. rakið að starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs hjá sveitarfélaginu hafi verið auglýst laust til umsóknar í Fréttablaðinu þann 6. mars 2011 og hafi umsóknarfrestur runnið út þann 20. mars s.á. og 13 umsóknir borist.  Auglýsingin hafi verið svohljóðandi:

Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs

Skóla- og tómstundasvið annast yfirumsjón leik- og grunnskóla sem og umsjón með íþrótta- og tómstundamálum. Hlutverk sviðsins er að veita faglega forystu, hafa frumkvæði að nýsköpunar- og þróunarstarfi og hvetja og efla samstarfsmenn sína til verka.

Verksvið sviðsstjóra er:

§  Ábyrgð á þjónustu og rekstri sviðsins sem og á starfsmannamálum

§  Yfirumsjón með rekstri leik- og grunnskóla, íþótta- og tómstundamála

§  Samræmingarhlutverk innan verksviðs íþrótta- og tómstundamála

§  Umsjón með gerð fjárhagsáætlana og kostnaðareftirlit

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

§  Háskólamenntun sem nýtist í starfinu skilyrði, framhaldsmenntun er kostur

§  Stjórnunarreynsla mjög æskileg, þekking af breytingarstjórnun er kostur

§  Reynsla og þekking á sviði leik- og grunnskóla, íþrótta- og tómstundamála

§  Reynsla af stefnumótun, samþættingarstarfi og verkefnastjórnun

§  Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg

§  Reynsla af gerð fjárhagsáætlana og samningagerð

Leitað er að einstaklingum sem hafa:

§  Leiðtogahæfileika og metnað til að ná árangri í starfi

§  Stefnumótandi hugsun

§  Áhuga á uppbyggingu samfélagsins

§  Frumkvæði og metnað

§  Mikla hæfni í mannlegum samskiptum

Í umsögn sveitarfélagsins kemur svo fram að í upphafi hafi ráðgjafi frá Capacent farið yfir allar umsóknir og kynnt sér feril og starf umsækjenda með sérstöku tilliti til þeirra atriða sem tilgreind voru í auglýsingu um starfið. Að lokinni þeirri yfirferð hafi verið ákveðið að taka viðtöl við þá umsækjendur sem uppfylltu lágmarksskilyrði til starfsins. Allir umsækjendur hafi fengið sömu spurningar og hvert viðtal tekið tæpa klukkustund. Alls hafi 10 umsækjendur uppfyllt lágmarksskilyrði. Að loknum viðtölum, greiningu á þeim og mati á umsóknum hafi Capacent metið það sem svo að fjórir umsækjendur hefðu best uppfyllt þær kröfur sem settar hafi verið fram í auglýsingu og lagt til að umræddir aðilar yrðu metnir frekar. Voru JB og MH báðar í þeim hópi.

Hafi umsækjendurnir fjórir m.a. verið beðnir um að taka persónuleikaprófið OPQ32, en prófið leggi mat á það að hve miklu leyti persónuleiki svarenda falli að tilteknu starfi. Ráðgjafi Capacent hafi leitað umsagna um umrædda aðila frá uppgefnum umsagnaraðilum umsækjenda, auk þess sem þeir hafi verið boðaðir í viðtöl við bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og ráðgjafa Capacent á Ísafirði þann 12. apríl 2011. Í framhaldi af þessari vinnu hafi Capacent skilað greinargerð til Ísafjarðarbæjar auk valtöflu þar sem metnir hafi verið framsettir þættir í auglýsingu. Í greinargerðinni hafi eftirfarandi komið fram:

Það er álit ráðgjafa Capacent Ráðninga eftir úrvinnslu úr viðtölum og ítarlega greiningu á öllum fyrirlögðum gögnum að tveir umsækjenda hafi öðrum fremur þá menntun, starfsreynslu/þekkingu og faglegan bakrunn, sem best fellur að framsettum kröfum í auglýsingu um starf sviðsstjóra.

Þessir umsækjendur eru: Jóna Benediktsdóttir og Margrét Halldórsdóttir.

Í valtöflu þar sem lagt var mat á hæfi umsækjenda með hliðsjón af kröfum settum fram í auglýsingu hafi varla verið marktækur munur einkunnar tveggja efstu umsækjenda, JB sem hafi fengið 3,53 og MH sem hafi fengið 3,52 af 5 mögulegum. Að mati Capacent og sveitarfélagsins hafi verið álitið að miðað við nákvæmni mats sem þessa væri svo lítill munur innan skekkjumarka og því yrði að líta svo á að umsækjendurnir tveir væru jafn hæfir miðað við umrædda valtöflu. Rétt sé að geta þess að á síðari stigum hafi komið í ljós samlagningarvilla í töflu Capacent sem hafi leitt til þess að munurinn hafi verið meiri og MH í vil. Rétt niðurstaða fyrir hana hafi verið 3,85 en 3,78 fyrir JB. Munurinn hafi því verið 0,07. Þetta hafi ekki komið í ljós fyrr en að ráðningarferlinu loknu.

Í umræddri valtöflu hafi vægi einstakra þátta verið sett með eftirfarandi hætti og í samræmi við kröfur sem settar hafi verið fram í auglýsingu: Háskólamenntun (vægi 5), reynsla af stjórnun starfsfólks (vægi 5), þekking á sviði grunnskólamála (vægi 5), þekking á sviði leikskólamála (vægi 4), þekking á sviði íþrótta- og tómstundamála (vægi 4), þekking á breytingarstjórnun (vægi 3), reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun (vægi 3), reynsla af fjárhagsáætlanagerð (vægi 4) og þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu (vægi 3). Einnig hafi niðurstöður eftirtalinna þátta í persónuleikaprófi verið metnir: Leiðtogahæfileikar, hæfni í samstarfi, metnaður í starfi, frumkvæði. Niðurstaða umræddrar töflu og greinargerð með henni hafi verið kynnt í bæjarráði Ísafjarðar á 698. fundi þess þann 26. apríl 2011. Á þeim fundi hafi formaður bæjarráðs látið bóka að hann myndi leggja fram tillögu um ráðningu sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs sveitarfélagsins fyrir bæjarstjórn þann 28. apríl 2011. Hann hafi viljað fá að skoða málið betur og ráðfæra sig við sína samstarfsmenn.

Í umsögn sveitarfélagsins segir svo að ljóst hafi verið miðað við niðurstöðu hæfismats Capacent að lítill munur væri á milli tveggja efstu umsækjenda. Að höfðu samráði bæjarstjóra, formanns bæjarráðs og forseta og varaforseta bæjarstjóra hafi verið ákveðið að láta skoða frekar þau atriði sem talin hafi verið skipta mestu máli við ráðningu sviðsstjóra. Því hafi þess verið farið á leit við Capacent að fyrirtækið skoðaði betur þá þætti er lytu að leiðtogahæfileikum, stefnumótandi hugsun og hæfni í mannlegum samskiptum. Jafnframt hefðu þessir þættir sem Ísafjarðarbær hafi viljað leggja mikla áherslu á við ráðninguna einungis verið metnir út frá persónuleikaprófi. Samkvæmt auglýsingu um starfið hafi verið leitað eftir einstaklingi sem væri gæddur leiðtogahæfileikum og hefði metnað til að ná árangri í starfi, hefði stefnumótandi hugsun, áhuga á uppbyggingu samfélagsins, frumkvæði og metnað og með mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Því hafi verið talið að skoða þyrfti þessa þætti nánar til að greina betur á milli tveggja efstu umsækjendanna.

Til að skoða þessa þætti betur hafi Capacent verið falið að ræða við fleiri meðmælendur og skoða viðtöl betur með þessa þætti í huga og þeim bætt við valtöflu fyrir tvo umsækjendur úr fyrra mati. Umsagnarþættir hafi fengið vægið 2 af 5 mögulegum. Upplýsingar úr viðtölum við umsækjendur hafi verið rýndar sérstaklega með tilliti til spurninga sem hafi lotið að stjórnun og svörum við þeim. Þessum spurningum hafi verið gefið vægið 5 en það sé mat Capacent sem sé ráðgjafi sveitarfélagsins að upplýsingar úr viðtölum spái betur fyrir um árangur í starfi en umsagnir.  Til viðbótar þáttum sem hafi lotið að stjórnun, þ.e. viðbótarþáttum viðtala (vægi 5), umsagna (vægi 2) og persónuleikaprófs (vægi 3), hafi vægi þekkingar á íþrótta- og tómstundamálum auk þekkingar á leikskólamálum verið sett í vægi 5. Annað vægi hafi verið óbreytt frá fyrra mati.

Umrædd valtafla og rökstuðningur Capacent hafi í framhaldinu verið sent bæjarfulltrúum Ísafjarðarbæjar og tekin fyrir á 295. fundi bæjarstjórnar þann 28. apríl 2011. Rétt fyrir umræddan fund hafi vaknað grunur um að samlagningarvilla væri í umræddri valtöflu. Hafi það því orðið úr að forseti bæjarstjórnar legði fram tillögu þess efnis að ráðningarferlinu yrði vísað aftur til bæjarráðs og gengið yrði úr skugga um að bæjarfulltrúar hefðu rétt gögn. Grunur um samlagningarvillu hafi verið á rökum reistur. Hinsvegar hafi hann ekki haft áhrif á röðun umsækjenda. Málið hafi verið tekið aftur fyrir á 699. fundi bæjarráðs þann 2. maí 2011, þar sem leiðrétt valtafla hafi verið kynnt ásamt umræddri greinargerð. Þar hafi verið samþykkt tillaga formanns bæjarráðs um að leggja til við bæjarstjórn að ráða MH í umrædda stöðu. Sú tillaga hafi verið samþykkt í bæjarstjórn á 296. fundi hennar 19. maí 2011.

Í greinargerð Capacent sem lögð hafi verið fyrir umræddan fund hafi enn verið talið eftir frekari skoðun að tveir umsækjendur væru hæfastir til að gegna umræddri stöðu. Hins vegar hafi munur á milli umsækjenda orðið meiri en við fyrra mat og MH fengið hærri einkunnir er lutu að stjórnun, hæfni í samskiptum og leiðtogahæfileikum. MH hafi fengið 4,27 stig af 5 möguleikum, en JB 4,18. Niðurstaða Capacent hafi því verið eftirfarandi:

Það er álit ráðgjafa Capacent Ráðninga eftir úrvinnslu úr viðtölum og ítarlega greiningu á öllum fyrirlögðum gögnum að tveir umsækjenda hafi öðrum fremur þá menntun, starfsreynslu/þekkingu og faglegan bakrunn, sem best fellur að framsettum kröfum í auglýsingu um starf sviðsstjóra.

Þessi umsækjendur eru: Jóna Benediktsdóttir og Margrét Halldórsdóttir.

Þá sé rétt að taka fram að ákaflega leitt sé að komið hafi í ljós mistök í samlagningu á hæfismati því sem Capacent hafi unnið fyrir sveitarfélagið. Það sé einnig til þess fallið að draga í efa fagleg vinnubrögð í ráðningarferlinu sem sé miður. Ísafjarðarbær harmi þetta en telji þó að það hafi ekki haft áhrif á niðurstöðuna.

Er það því mat Ísafjarðarbæjar að ráðning sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs hafi farið fram með lögmætum hætti og reynt hafi verið að fylgja lögum og reglum eftir fremsta megni við ráðningarferlið. Mat á öllum umsækjendum hafi byggst á sömu forsendum og mælikvörðum. Við hefðbundið mat á umsækjendum hafi komið í ljós að tveir umsækjendur hafi staðið öðrum fremur en álitið hafi verið að ekki væri svo afgerandi munur á milli þeirra að það gæti verið grundvöllur endanlegrar ákvörðunar. Því hafi sveitarfélagið talið, m.a. með hliðsjón af 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að mikilvægt væri að afla frekari upplýsinga áður en ákvörðun um ráðningu væri tekin. Sú greining sem fram hafi farið í kjölfarið hafi tekið mið af þeim þáttum sem sveitarfélagið hafi talið mikilvægasta við ráðningu í starfið og eftir þá greiningu hafi verið skýrari munur en áður á milli þeirra umsækjenda sem hafi komið best út. Með þessu ferli hafi sveitarfélagið viljað tryggja að staðið yrði að ráðningunni með eins faglegum hætti og framast væri unnt. Það mat sem lýst hafi verið hafi svo verið grundvöllur ákvörðunar meirihluta bæjarstjórnar að ráða MH í stöðuna. Ákvörðun og mat á umsækjendum hafi verið í höndum meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar en við mat á umsækjendum hafi bæjarstjórn notið fulltingis ráðgjafafyrirtækisins Capacent og bæjarstjóra.

Þá kemur fram í bréfi Ísafjarðarbæjar til ráðuneytisins, dags. 27. október 2011, í tilefni af andmælum JB, að eftir að umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs hafi runnið út hafi ráðgjafi Capacent hafið úrvinnslu umsókna. Ráðgjafi hafi kynnt sér allar umsóknir og metið út frá þeim hæfniskröfum sem tilgreindar hafi verið í auglýsingu og lagðar til grundvallar vegna starfsins. Í kjölfarið hafi verið tekin viðtöl við 10 umsækjendur sem hafi uppfyllt lágmarksskilyrði til starfsins. Þeir umsækjendur sem hafi komið best út úr viðtölunum, með tilliti til framsettra krafna í auglýsingu hafi verið beðnir um að taka persónuleikaprófið OPQ32. Prófið leggi mat á það að hve miklu leyti persónuleiki svarenda falli að tilteknu starfi. Er greint frá niðurstöðum prófsins í bréfi sveitarfélagsins.

Í bréfi sveitarfélagsins kemur svo fram að þegar niðurstöður viðtala og persónuleikaprófa ráðgjafa Capacent um umsækjendur hafi legið fyrir, hafi verið ákveðið að kalla fjóra efstu umsækjendur til viðtala við ráðgjafa Capacent og bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar.

Í framhaldi af viðtölum og persónuleikaprófum hafi ráðgjafi Capacent sett fram valtöflu þar metnir hafi verið framsettir þættir í auglýsingu. Hver þáttur hafi fengið ákveðið vægi en vægi sé notað á matsþætti þegar starfskröfur séu metnar mismikilvægar. Vægi dragi úr eða skerpi mun á milli einstaklinga. Vægi þátta hafi verið sett fram með eftirfarandi þætti í samræmi við auglýsingu um starfið: Háskólamenntun (vægi 5), reynsla af stjórnun starfsfólks (vægi 5), þekking á sviði grunnskólamála (vægi 5), þekking á sviði leikskólamála (vægi 4), þekking á sviði íþrótta- og tómstundamála (vægi 4), þekking á breytingastjórnun (vægi 3), reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun (vægi 3), reynsla af fjárhagsáætlanagerð (vægi 4) og þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu (vægi 3). Einnig hafi verið lagt mat á eftirtalda þætti í persónuleikaprófi (vægi 5): Leiðtogahæfileika, hæfni í samstarfi, metnaður í starfi, frumkvæði.

Vægi menntunar hafi verið ákvarðað í samræmi við þær kröfur sem gerðar hafi verið í auglýsingu og sveitarfélagið hafi talið rétt að gera við ráðningu í starfið. Í auglýsingunni hafi verið sett skilyrði um háskólamenntun auk þess sem fram hafi komið að framhaldsmenntun væri kostur. Við auglýsingu starfsins hafi sveitarfélagið metið það svo að ekki væri rétt að gera framhaldsmenntun að skilyrði. Á þessum forsendum hafi háskólamenntun verið sett í hæsta vægi, þ.e. 5. Í einkunnargjöf einstakra umsækjenda hafi að mati Ísafjarðarbæjar verið tekið fullt tillit til þess hvaða menntun viðkomandi umsækjandi hafi haft. Að lokinni framangreindri yfirferð hafi munur einkunnar tveggja efstu umsækjenda, JB og MH, verið 0,01 af 5 mögulegum. Að mati sérfræðinga sé þessi munur ekki marktækur. Er gerð nánari grein fyrir einkunnargjöf þeirra JB og MH í bréfi sveitarfélagsins sem ráðuneytið telur ekki þörf á að rekja hér með ítarlegum hætti.

Í bréfi sveitarfélagsins segir svo að til að greina betur á mili tveggja efstu umsækjenda í starfið hafi verið ákveðið að rýna frekar þá þætti sem helst hafi verið taldir skipta máli í störfum viðkomandi. Mat Ísafjarðarbæjar hafi veri að stjórnun starfsmanna og aðrir stjórnunartengdir þættir væru atriði sem vert væri að skoða frekar, enda um að ræða stöðu sem geri miklar kröfur til slíkra hæfileika. Til að rýna þessa þætti betur hafi frekari meðmæla með umsækjendum verið aflað og sérstaklega spurt um þætti er lúta að stjórnunarhæfileikum og reynslu. Umsagnarþættir hafi fengið vægið 2 af 5 mögulegum. Að auki hafi upplýsingar úr viðtölum verið rýndar sérstaklega með tilliti til spurninga sem hafi lotið að stjórnun og svörum við þeim. Þessum spurningum hafi verið gefið vægið 5 en upplýsingar úr viðtölum spái betur fyrir um árangur í starfi en umsagnir.

Ráðgjafi Capacent hafi unnið valtöflu í framhaldinu. Tilgangur síðari valtöflu hafi verið að greina betur á milli tveggja efstu umsækjenda. Til viðbótar við viðbótarþætti viðtala (vægi 5), umsagna (vægi 2) og persónuleikaprófs (vægi 3) hafi vægi þekkingar á íþrótta- og tómstundamálum auk þekkingar á leikskólamálum verið sett í 5. Ekkert í auglýsingu um starfið hafi gefið til kynna að málaflokkarnir skyldu hafa mismunandi vægi og hafi með framangreindum breytingum verið ætlunin að skerpa betur á þeim áherslum sem taldar voru mikilvægastar við ráðningu í starfið. Annað vægi hafi verið óbreytt á milli tafla. Er tekið fram af hálfu sveitarfélagsins að við úrvinnslu síðari valtöflu hafi komið í ljós samlagningarskekkja sem hafi verið í fyrri valtöflu. Hafi sú skekkja ekki haft áhrif á röðun umsækjenda.

Að lokinni vinnu Capacent við mat á öllum umsækjendum, og svo ítarlegra mati á þeim tveimur umsækjendum sem best komu út úr fyrra mati, hafi orðið ljóst að MH fengi 4,27 af 5 mögulegum en JB 4,18 af 5 mögulegum. Miðað við þær forsendur sem legið hafi fyrir matinu hafi MH því verið hærri. Í ljósi þess hversu lítill munur hafi verið á umsækjendum í mati Capacent hafi meirihluti bæjarstjórnar horft á þá þætti sem taldir hafi verið mikilvægastir fyrir það starf sem um ræddi og mest áhersla hefði verið lögð á við auglýsingu þess. Starfið sem um ræði feli fyrst og fremst í sér, eins og fram komi í auglýsingu, stjórnun og yfirumsjón með ýmsum verkefnum. Í ljósi þess hversu lítið hafi borið á milli þeirra umsækjenda sem taldir voru hæfastir til að gegna starfinu hafi þeir þættir sem taldir séu skipta mestu máli verið kannaðir sérstaklega hjá JB og MH. Meirihluti bæjarstjórnar hafi talið mjög mikilvægt að sá sem ráðinn væri hefði mikla leiðtogahæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum og því hafi borið að leggja sérstaka áherslu á þann þátt.

Er tekið fram að Ísafjarðarbær hafi metið það svo á grundvelli umsóknargagna, mati ráðningarfyrirtækis og viðtala við umsækjendur að MH hafi verið hæfust til að gegna starfinu. Þá telur sveitarfélagið að JB hafi ekki sýnt fram á að matið hafi verið ómálefnalegt.

V.      Niðurstaða ráðuneytisins

1.         Fjallað var um ráðningar starfsfólks sveitarfélaga í sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 en þar sagði í 1. mgr. 56. gr. að sveitarstjórn réði starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélagi og stofnunum þess og veitti þeim lausn frá starfi. Í 2. mgr. 56. gr. sagði svo að um ráðningar annarra starfsmanna færi eftir ákvæðum í samþykkt um stjórn sveitarfélags. Væru þar eigi sérstök ákvæði þess efnis gæfi sveitarstjórn almenn fyrirmæli um hvernig staðið skyldi að ráðningu starfsmanna. Í 1. mgr. 57. gr. sveitarstjórnarlaga var svo tekið fram að um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélaga færi eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ráðningarsamningum. Rétt er að taka fram að lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 gilda ekki um starfsmenn sveitarfélaga.

Í samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 975/2010, sem öðlaðist gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 15. desember 2010, kemur fram í 64. gr. að bæjarstjórn ráði sviðsstjóra. Ennfremur segir þar að bæjarstjórn ráði, að fengnum tillögum viðkomandi fagráða og stjórna, framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem eru í eigu bæjarsjóðs. Er ljóst að lokaákvörðun þeirrar ráðningar sem deilt er um í máli þessu var í samræmi við framangreind ákvæði tekin af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.

2.         Þá telur ráðuneytið rétt að víkja að að þeirri málsástæðu JB að ráðningarferli og undirbúningur hinnar kærðu ákvörðunar hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýslu eða meginreglu stjórnsýsluréttar um að ákvörðun skuli byggja á málefnalegum ástæðum sem aftur hafi leitt til þess að hæfasti umsækjandinn hafi ekki verið ráðinn í starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar. Er þannig ljóst að JB telur m.a. að hún hafi ekki notið sannmælis við einkunnargjöf vegna tiltekinna þátta sem og að tilteknum þáttum hafi verið veitt óeðlilegt vægi við mat á hæfni umsækjanda. Þá telur JB afar óeðlilegt að ekki hafi verið gerð krafa um framhaldsmenntun sem hún telur benda til þess að fyrirfram hafi verið búið að ákveða að ráða MH í starfið.

Það hefur verið talin meginregla í íslenskum stjórnsýslurétti að við veitingu opinberra starfa skuli leitast við að velja hæfasta umsækjandann um starf á grundvelli þeirra sjónarmiða sem handhafi veitingarvalds ákveður að byggja ákvörðun sína á. Þegar ekki er að finna í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum leiðbeiningar um hvaða hæfniskröfur umsækjandi um starf skuli uppfylla er almennt talið að meginreglan sé sú að viðkomandi stjórnvald ákveði á hvaða sjónarmiðum það byggir slíka ákvörðun. Slík sjónarmið þurfa þó sem endranær að vera málefnaleg og lögmæt svo sem sjónarmið um menntun, starfsreynslu, hæfni og eftir atvikum aðra persónulega eiginleika sem viðkomandi stjórnvald telur máli skipta (sjá t.d. álit umboðsmanns Alþingis í málum nr. 382/1991, nr. 2701/1999, nr. 2793/1999, nr. 2862/1999). Þegar ekki er mælt fyrir um tiltekin hæfnisskilyrði í lögum eða öðrum reglum sem veitingarvaldshafi er bundinn af hefur hann því meira svigrúm en ella til að ákveða hvaða sjónarmiðum ákvörðun verður byggð á og hvert innbyrðis vægi þeirra skuli vera.

Ekki er að finna í lögum eða reglugerðum fyrirmæli um hæfnisskilyrði þeirra sem sinna starfi eins og því sem um ræðir í máli þessu. Hins vegar er ljóst að eftir fyrsta mat á umsækjendum var ákveðið að gera nánari samanburð á tveim hæfustu umsækjendunum, þeim JB og MH. Var þá ákveðið að rýna nánar þætti er lutu að reynslu af stjórnun starfsmanna og öðrum stjórnunartengdum þáttum auk þess sem vægi þekkingar á íþrótta- og tómstundamálum auk þekkingar á leikskólamálum var sett í hæsta flokk. Telur ráðuneytið ljóst af svörum sveitarfélagsins að í ljósi þess hversu lítill munur hafi verið á JB og MH eftir þann samanburð hafi verið ákveðið að legga áherslu á leiðtogahæfileika og hæfni samskiptum við endanlegt val á milli umsækjenda. 

Eins og áður segir er meginreglan sú að stjórnvald ákveður á hvaða sjónarmiðum það byggir ákvörðun um ráðningu sé ekki að finna leiðbeiningar um slíkt í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Verður enda að telja að viðkomandi ráðningarvaldshafi sé alla jafna í bestu aðstöðunni til þess að meta hvaða eiginleikum mikilvægast er að tilvonandi starfsmaður búi yfir og er það ekki hlutverk ráðuneytisins að endurskoða slíkt mat stjórnvalds, hvaða vægi tilteknum þáttum er veitt eða hvaða ályktanir stjórnvald dregur um hæfni umsækjanda. Hefur stjórnvald því allnokkurt svigrúm við slíkt mat svo lengi sem það telst málefnalegt og byggist á lögmætum sjónarmiðum. Að mati ráðuneytisins verður að telja það málefnalegt sjónarmið út af fyrir sig að velja umsækjanda eftir heildstætt mat og eftir atvikum að leggja áherslu á tiltekna þætti, svo sem ákveðna starfsreynslu eða persónulega eiginleika, sem að mati ráðningarvaldshafa hentar viðkomandi starfi best, á þann hátt sem gert var í því tilviki sem hér um ræðir. Að sama skapi verður að játa stjórnvaldi svigrúm til þess að gera nánari samanburð á milli tveggja umsækjenda sem metnir eru jafnhæfir, eftir atvikum með því að kanna nánar þá þætti eða eiginleika sem stjórnvald telur mikilvægasta fyrir umrætt starf. Á hinn bóginn verður að líta svo á að við ráðningu í starf beri stjórnvaldi skylda til að tryggja að öll málsmeðferð og undirbúningur sé framkvæmdur á forsvaranlegan hátt enda verður ekki talið að öðruvísi verði raunverulega upplýst um hver teljist hæfasti umsækjandinn að virtum þeim sjónarmiðum sem ákveðið er að leggja til grundvallar við ráðningu.

3.         Í umsagnarbeiðni sinni til Ísafjarðarbæjar, dags. 29. júní 2011, óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir upplýsingum um ráðningarferlið og hvernig staðið hefði verið að ákvarðanatöku þar að lútandi, s.s. hver mat umsóknir og umsækjendur, annaðist starfsviðtöl, gerði tillögu um ráðningu og tók ákvörðun um hana. Þá óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir afriti af þeim gögnum málsins sem innihéldu upplýsingar sem skráðar hefðu verið í samræmi við 23. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, svo sem upplýsingar sem komið hefðu fram í starfsviðtölum eða hjá umsagnaraðilum. 

Af gögnum málsins verður ráðið að Ísafjarðabær hafi ákveðið að fela ráðgjafafyrirtækinu Capacent að annast tiltekna þætti ráðningarferlisins, s.s. auglýsingu starfsins og móttöku og úrvinnslu umsókna. Stjórnvaldi er heimilt án sérstakrar lagaheimildar að leita sérfræðilegrar aðstoðar við ráðningu í opinbert starf kjósi það svo. Með hliðsjón af lögmæltu hlutverki stjórnvaldsins sem fer með ákvörðunarvald í málinu eru þó takmarkanir á því hversu langt er hægt að ganga í þeim efnum. Þrjú atriði skipta þar mestu máli. Í fyrsta lagi þurfa allar þær upplýsingar sem ætla verður að hafi verulega þýðingu við úrlausn málsins að vera lagðar fyrir viðkomandi stjórnvald svo því sé unnt að ganga úr skugga um að tiltekin ákvörðun sé rétt. Þá ber stjórnvaldi í öðru lagi að tryggja að meðferð málsins sé þannig hagað hjá ráðningarfyrirtækinu að réttarstaða málsaðila verði ekki lakari en mælt er fyrir um í stjórnsýslulögum og öðrum lögum. Í þriðja lagi verður að gæta þess að allar ákvarðanir sem teknar eru við vinnslu málsins og geta haft grundvallarþýðingu fyrir stöðu umsækjanda, svo sem ákvarðanir sem miða að því að þrengja hóp umsækjenda, verða í ljósi lögmælts hlutverks stjórnvaldsins að vera teknar af því sjálfu (sjá álit umboðsmanns Alþingis frá 11. júlí 2005 í máli nr. 4217/2004). Með öðrum orðum hvílir áfram sú skylda á stjórnvaldinu að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og að skráðum og óskráðum reglum stjórnsýsluréttar sé fylgt við meðferð þess. Verður að telja að í því augnamiði sé stjórnvaldi rétt að gera viðkomandi ráðningarfyrirtæki grein fyrir þeim skyldum sem á stjórnvaldinu hvíla samkvæmt stjórnsýslulögum og öðrum lögum og gæta þess að ekkert í starfsháttum fyrirtækisins hindri að réttur málsaðila verði virtur.

Þá tekur ráðuneytið fram að sú skylda hvílir á stjórnvaldi sem þarf að taka afstöðu til þess hver skuli ráðinn til að gegna opinberu starfi að sjá til þess að málsatvik séu nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin, sbr. rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Í þessu felst m.a. að tryggja verður að viðhlítandi upplýsingar liggi fyrir um þau atriði sem stjórnvaldið telur að eigi að hafa þýðingu við samanburð milli hæfra umsækjenda. Ekki er þannig nóg að ráðningarfyrirtæki sem fengið hefur verið til aðstoðar afli og meti gögn um umsækjendur heldur þarf stjórnvaldið sjálft að hafa gögnin undir höndum. Ekki verður séð hvernig stjórnvald getur að öðrum kosti fullyrt að ákvörðun sé rétt og í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og málsmeðferð í samræmi við aðrar réttarreglur stjórnsýsluréttar sem við kunna að eiga.

Telur ráðuneytið ljóst að framangreindum reglum hafi verið fylgt við undirbúning hinnar kærðu ákvörðunar. Eftir fyrstu úrvinnslu umsókna voru allir umsækjendur eru uppfylltu lágmarkshæfnisskilyrði auglýsingar boðaðir í viðtal. Var það tillaga Capacent til sveitarfélagsins eftir framangreint ferli að fjórir umsækjendur yrðu boðaðir í annað viðtal enda stæðu þeir öðrum framar. Var það viðtal tekið af starfsmanni Capacent og bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Að lokinni úrvinnslu viðtala og mati á umsækjendum hæfustu umsækjendanna varð það niðurstaða Capacent að þær JB og MH væru hæfastar allra umsækjenda. Er ljóst að greinargerð þess efnis og valtafla voru lögð fyrir bæjarráð og að forsvarsmenn sveitarfélagsins ákváðu í kjölfarið að láta kanna tiltekna þætti enn frekar. Er jafnframt alveg ljóst að val á milli þeirra MH og JB var í höndum bæjarstjórnar Ísafjarðar. Telur ráðuneytið einnig ljóst að sveitarfélagið sjálft hafi haft öll nauðsynleg umsóknargögn og upplýsingar undir höndum við töku hinnar kærðu ákvörðunar og hafi getað dregið forsvaranlegar ályktanir af þeim. Að öðru leyti telur ráðuneytið ekkert það fram komið í máli þessu sem leitt geti til þess að hin kærða ákvörðun verði úrskurðuð ólögmæt. Er kröfu JB þar um því hafnað.

Vegna mikilla anna í ráðuneytinu hefur uppkvaðning úrskurðar dregist nokkuð í máli þessu og er beðist velvirðingar á því.

Úrskurðarorð

Kröfu Jónu Benediksdóttur, kt. xxxxxx-xxxx, um að ákvörðun bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, dags. 19. maí 2011, um ráðningu í starf sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs sveitarfélagsins, verði úrskurðuð ólögmæt, er hafnað. 

 

Fyrir hönd ráðherra

 

 

Bryndís Helgadóttir                                                                      Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta