Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðuneytisins

Stjórnsýsluákæra - Ársreikningaúrskurður - Staðfest sein skil

Miðvikudaginn 20. desember 2023, var í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Stjórnsýslukæra

Með erindi þann 30. mars 2023 bar [X] (hér eftir kærandi), kt. […], fram kæru vegna ákvörðunar ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá) frá 4. október 2021 um að leggja stjórnvaldssekt á félagið þar sem ársreikningi fyrir reikningsárið 2020 hafi ekki verið skilað.

 

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga.

 

Kröfur

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

 

Málsatvik

Hinn 12. og 19. ágúst 2021 voru kæranda sendar rafrænar tilkynningar um að kæranda bæri að skila ársreikningi til opinberrar birtingar innan tilgreindra tímamarka en tilkynningarnar birtust á þjónustusíðu kæranda hjá ríkisskattstjóra. Þar að auki var lokafrestur til að skila ársreikningi auglýstur á vef skattsins og í fjölmiðlum.

 

Hinn 4. október 2021 var fésekt að fjárhæð kr. 600.000 lögð á kæranda þar sem ársreikningi þess fyrir reikningsárið 2020 hafði ekki verið skilað.

 

Kærandi skilaði inn ársreikningi til ársreikningaskrár vegna reikningsársins 2020 hinn […]. 

 

Sjónarmið kæranda

Af gögnum málsins má ráða að kærandi hafi ekki náð að skila ársreikningi fyrir reikningsárið 2020 innan lögbundins frests af nánar tilgreindum ástæðum. Er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður sem koma fram í stjórnsýslukærunni og gögnum málsins geti ekki haft þýðingu fyrir niðurstöðu þessa máls.

Sjónarmið ársreikningaskrár

Í sektarákvörðun er m.a. fjallað um ákvæði 1. mgr. 109. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga og lögskýringargögn þar að baki. Fram kemur að skylda til að skila ársreikningi samkvæmt framangreindu ákvæði nái til allra félaga sem falla undir lög um ársreikninga sama hvort þau höfðu starfsemi með höndum á árinu 2020 eða ekki. Í sektarákvörðun er einnig fjallað um sektarheimild skv. 120. gr. laga um ársreikninga og heimild til lækkunar sektarfjárhæðar ef ársreikningi er skilað innan tiltekinna tímamarka.

 

Samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laganna skal félag skv. 1. gr. sömu laga senda ársreikningaskrá, eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs, ársreikning félagsins ásamt áritun endurskoðanda eða undirritun skoðunarmanna og upplýsingar um hvenær hann var samþykktur.

 

Forsendur og niðurstaða

I.

Stjórnsýslukæran barst ráðuneytinu innan kærufrests og telst kæran því löglega fram komin. 

 

II.

Í 1. gr. laga um ársreikninga er að finna gildissvið laganna. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna gilda lögin m.a. um einkahlutafélög.

 

Gerðar voru breytingar á orðalagi ákvæðis 1. gr. laganna með lögum nr. 73/2016, um breytingu á lögum um ársreikninga, til þess að taka af allan vafa um að öllum félögum með takmarkaðri ábyrgð væri skylt að skila ársreikningi til opinberrar birtingar.

 

III.

Samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga skal félag skv. 1. gr. laganna senda ársreikningaskrá ársreikning sinn, ásamt áritun endurskoðenda eða undirritun skoðunarmanna og upplýsingum um hvenær ársreikningurinn var samþykktur, eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings og samstæðureiknings, ef við á, en þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.

 

IV.

Samkvæmt 1. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga skal ársreikningaskrá leggja stjórnvaldssektir að fjárhæð 600.000 kr. á þau félög sem vanrækja að skila ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan frests sem kveðið er á um í 109. gr. laganna. Skal ársreikningaskrá jafnframt krefjast úrbóta.

 

Samkvæmt 2. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga skal lækka sektarfjárhæðina um 90% ef úrbætur eru gerðar innan 30 daga frá tilkynningu um álagningu stjórnvaldssektar. Ef úrbætur eru gerðar innan tveggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 60% og ef úrbætur eru gerðar innan þriggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 40%. Kærandi skilaði inn ársreikningi til ársreikningaskrár vegna reikningsársins 2020 hinn […] og í kjölfarið var sektarfjárhæð lækkuð.

 

V.

Kærandi er einkahlutafélag og fellur sem slíkt undir ákvæði laga um ársreikninga, m.a. ákvæði 109. gr. laganna um skil ársreikninga til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar. Ljóst er að kæranda bar að skila ársreikningi vegna reikningsársins 2020 innan þess frests sem kveðið er á um í 2. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga. Þar er mælt fyrir um heimild fyrir félög sem nýttu sér heimild í 3. gr. laganna, til að skila rekstraryfirliti og efnahagsyfirliti byggðum á skattframtali félagsins, til þess að skila slíkum ársreikningi innan þess frests sem ríkisskattstjóri veitir skattaðilum til að skila framtölum sínum. Var lokaskiladagur skattframtals lögaðila hinn 1. októkber 2021.  Ársreikningaskrá lagði stjórnvaldssekt á kæranda að fjárhæð 600.000 kr. þann 4. október 2021 og skoraði á kæranda að skila ársreikningi félagsins vegna reikningársins 2020 sem allra fyrst. Kærandi skilaði ársreikningnum þann […]. 

 

VI.

Samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga skal félag skv. 1. gr. laganna senda ársreikningaskrá ársreikning sinn innan tilskilins frests. Ársreikningaskrá ber að leggja stjórnvaldssektir að fjárhæð 600.000. kr. á þau félög sem vanrækja skilaskylduna og jafnframt krefjast úrbóta. Ársreikningaskrá skal þó lækka framangreinda sektarfjárhæð ef úrbætur eru gerðar innan tilgreindra tímamarka skv. 2. mgr. 120. gr. laganna. Liggur fyrir að kærandi skilaði ársreiknings félagsins til ársreikningaskrár eftir að skilafrestur var liðinn. Ljóst er að kæranda voru í tvígang sendar rafrænar tilkynningar, hinn 12. og 19. ágúst 2021, um að kæranda bæri að skila ársreikningi til opinberrar birtingar innan tilgreindra tímamarka. Að auki hafi skilaskylda ársreikninga innan tilgreindra tímamarka verið auglýst í dagblöðum. Þrátt fyrir það hafi ársreikningi kæranda fyrir reikningsárið 2020 ekki verið skilað til ásreikningaskrár til opinberrar birtingar innan tilsettra tímamarka. Sé litið til þessa er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að staðfesta ákvörðun ársreikningaskrár frá 4. október 2021 um að leggja á kæranda sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings vegna reikningsársins 2020 sem og ákvörðun um lækkun sektar. Ráðuneytið telur að ársreikningaskrá hafi þannig verið rétt að lækka sektarfjárhæðina um 90% skv. 2. mgr. 120. gr. laga um ársreikninga, þar sem kærandi skilaði ársreikningi þann […]. 

Ráðuneytið lítur það alvarlegum augum að félög sem falla undir ákvæði laga um ársreikninga skili ársreikningum ekki innan þeirra tímamarka sem kveðið er á um í lögunum. Niðurstaða ráðuneytisins í máli þessu byggir á því að beiting stjórnvaldssektarinnar hafi verið lögákveðin vegna síðbúinna skila.

Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að staðfesta ákvörðun ársreikningaskrár frá 4. október 2021 um að leggja á kæranda sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings vegna reikningsársins 2020.

 

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær má rekja til mikilla anna ráðuneytinu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 4. október 2021, um að leggja á sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings einkahlutafélagsins [X] vegna reikningársins 2020, sbr. ákvörðun um lækkun sektar, er staðfest.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum