Hoppa yfir valmynd

Nr. 412/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 11. júlí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 412/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060178

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 13. júní 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. mars 2023, um að umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Alsír, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hann yrði endursendur til Grikklands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila hinn 14. júní 2023 og 20. júní 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 10. júlí 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hann muni þingfesta mál á hendur íslenska ríkinu og krefjast m.a. ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála. Aðili telur að það muni valda honum óafturkræfum skaða verði ekki fallist á frestun réttaráhrifa í máli hans og vísar til ákvæða 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðili telur að verði honum brottvísað áður en meðferð dómstóla á máli hans ljúki leiði það til þess að hann muni ekki eiga raunhæft úrræði til að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla.

Aðili byggir m.a. á því að staða þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi sé umtalsvert verri en þeirra sem séu umsækjendur um vernd þar í landi, en það eigi sérstaklega við um samkynhneigða. Þá hafi aðili hafi lýst því að hann hafi búið við óviðunandi aðstæður í Grikklandi. Þá hafi hann orðið fyrir ofbeldi þar í landi. Aðili telur að íslensk stjórnvöld hafi lagt óeðlilega mikla áherslu á lagalega stöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og á þau takmörkuðu úrræði sem standi aðeins litlum hluta þessa hóps til boða. Aðili vísar í beiðni sinni til skýrslna alþjóðlegra stofnana og samtaka máli sínu til stuðnings. Einnig byggir aðili á því að það myndi reynast honum erfitt að eiga í sambandi við lögmann sinn hér á landi þar sem óvíst sé hvort hann muni eiga kost á því að vera í netsambandi. Þá telur aðili að þörf sé á sérstakri varúð með tilliti til þess að verið sé að setja líf og heilsu aðila í mikla hættu með brottvísun til Grikklands. Aðili vísar til þess að hann hafi takmarkaðan aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi og að áhrifin sem heimsfaraldurinn hafi haft á grískt heilbrigðiskerfi muni síður en svo hafa jákvæði áhrif á þá þjónustu sem standi flóttafólki til boða.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Ennfremur benda gögn málsins ekki til annars en að aðili geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi, að því gefnu að aðili nýti sér frest til sjálfviljugrar heimfarar. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðila sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta