Hoppa yfir valmynd

Nr. 569/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 5. desember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 569/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19090040 og KNU19090041

 

Kæra [...]

og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. september 2019 kærðu einstaklingar er kveðast heita [...], vera fædd [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 2. september 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. júlí 2019. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Við meðferð málanna framvísuðu kærendur grískum flóttamannavegabréfum, K með gildistíma til 27. janúar 2024 og M til 2. október 2023. Þá lögðu kærendur einnig fram grísk dvalarleyfisskírteini með gildistíma til ársins 2021. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, dagana 1. og 2. ágúst 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 2. september 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 3. september 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 18. september 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 30. september 2019 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn vegna K bárust þann 3. október 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að þau hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau hafi búið við erfiðar aðstæður í heimaríki. M hafi þurft að taka ábyrgð á fjölskyldu sinni ungur að árum og þau hafi orðið fyrir ofbeldi og ógnunum af hálfu fjölskyldu K. Kærendur hafi lýst mikilli depurð og áhyggjum af ófæddu barni þeirra. Kærendur mótmæli því að vera snúið aftur til Grikklands. Þar í landi hafi þau fengið litla aðstoð, upplifað öryggisleysi og fordóma. Eftir komu sína til Grikklands hafi þau fyrst um sinn dvalið í flóttamannabúðum við erfiðar aðstæður og eftir að þeim hafi verið veitt alþjóðleg vernd hafi þau fengið húsnæði. Þeim hafi verið ómögulegt að afla sér atvinnu, m.a. sökum uppruna síns og tungumálaerfiðleika. Aðgangur þeirra að heilbrigðisþjónustu hafi jafnframt verið takmarkaður og hafi K ekki getað sótt læknisskoðun í Grikklandi vegna meðgöngu sinnar. Þá hafi þau fullnýtt rétt sinn til dvalar í því húsnæði er þau höfðu til afnota og ákveðið að fara frá Grikklandi.

Í greinargerð kærenda eru gerðar nokkrar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir, m.a. við staðhæfingu Útlendingastofnunar að kærendum standi til boða nauðsynleg heilbrigðisþjónusta, grunnþjónusta og búsetuúrræði í Grikklandi auk þess sem þau geti leitað til yfirvalda þar í landi og fengið úrlausn mála sinna. Jafnframt gera kærendur athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að þau séu ekki útilokuð frá þeim réttindum sem felist í dvalarleyfi þeirra, m.a. atvinnuréttindum og rétti til félagslegrar aðstoðar. Vísi kærendur í því sambandi til umfjöllunar í greinargerð sinni um aðstæður flóttafólks í Grikklandi. Telji kærendur að í hinum kærðu ákvörðunum sé litið til lagalegs réttar flóttafólks framyfir raunverulegt aðgengi að lögvörðum réttindum. Kveði kærendur að stofnunin vísi til skráningar hatursglæpa og máttlausra viðbragða yfirvalda sem svar við fordómum sem flóttafólk upplifi frá lögreglu og almenningi. Auk þess líti stofnunin framhjá þeim raunverulega veruleika sem langflest flóttafólk búi við í Grikklandi og sem heimildir kveði á um. Að auki gera kærendur athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að kærendum standi til boða þjónusta í Grikklandi vegna væntanlegrar fæðingar barns þeirra, svo og ungbarnaþjónusta sem barn þeirra muni þurfa á að halda. Fram komi í hinum kærðu ákvörðunum að þungaðar konur geti átt á hættu að fá ekki fullnægjandi mæðra- og ungbarnavernd í Grikklandi en ekkert bendi til þess að slíkt verði raunin fyrir kærendur og ófætt barn þeirra. Kærendur mótmæli þessum rökstuðningi og vísa til þess að stofnunin hafi við mat sitt ekki haft það sem er ófæddu barni þeirra fyrir bestu að leiðarljósi. Vísi kærendur til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 424/2019, frá 12. september 2019, þar sem fram komi að verulegir brestir séu á heilbrigðiskerfinu í Grikklandi. Loks telji kærendur að við mat á mögulegri endursendingu þeirra til Grikklands beri að tryggja vandaðan og einstaklingsbundinn rökstuðning.

Í greinargerð kærenda er gerð grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísað í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka máli sínu til stuðnings. Þar kemur m.a. fram að hatursglæpir gagnvart einstaklingum með alþjóðlega vernd í Grikklandi séu algengir og að stjórnvöld hafi ekki brugðist nægilega við þeim.

Auk þess séu lögreglumenn oft gerendur í slíkum málum eða hafa orðið uppvísir að því að veita þeim einstaklingum ekki næga vernd. Þá vísa kærendur einkum til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi lögum samkvæmt rétt á heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, atvinnu og húsnæði en það skorti á að lögunum sé framfylgt og fólk fái raunverulega ekki notið þeirra réttinda.

Krafa kærenda um að taka skuli mál þeirra til efnismeðferðar er í fyrsta lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þau njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulment, eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu. Muni kærendur standa frammi fyrir ómannúðlegum og vanvirðandi aðstæðum í Grikklandi. Telji kærendur að túlkun íslenskra stjórnvalda á fordæmum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng þegar komi að fyrrgreindri grundvallarreglu og vísi í því sambandi til tiltekinna dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Þá telji kærendur að við endursendingu þeirra til Grikklands muni lífsgæði þeirra ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör þeirra ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Vísi kærendur til þess að þau hafi fullnýtt rétt sinn til búsetu í flóttamannabúðunum, þeim standi ekki til boða félagsleg aðstoð og m.a. sökum tungumálaerfiðleika verði þeim gert ómögulegt að vinna fyrir sér þar í landi. Kærendur hafi upplifað fordóma í Grikklandi og við endursendingu muni þau búa við heimilisleysi. Þörf þeirra fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Því beri að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggja kærendur í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísa í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferða umsókna um alþjóðlega vernd. Kærendur vísa til þess að hagsmunir ófædds barns þeirra skuli hafðir að leiðarljósi og að það eigi rétt á einstaklingsbundnu mati sem lög um útlendinga mæli fyrir um, sbr. 2. mgr. 36. gr. laganna, enda fyrirséð að það muni fæðast hér á landi. Kærendur telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísa kærendur til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og telja að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga hafni kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá vísar kærandi til þess að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærendur telji að þau séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vegna þungunar K og frásagna þeirra um ofbeldi af hálfu fjölskyldu K. Kærendur vísi til þess að þau hafi átt erfitt uppdráttar í Grikklandi, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart flóttafólki. Mismununin birtist í fordómum grísks samfélags, reglna sem geri flóttafólki erfitt með að nálgast þjónustu í Grikklandi, skorti á aðstoð og fræðslu grískra stjórnvalda, sem og aðgengi að menntun og atvinnu. Með vísan til þessa muni staða kærenda vera síðri en staða almennings í Grikklandi auk þess sem þau muni eiga erfitt uppdráttar þar í landi. Þá hafi kærendur ekki það stuðningsnet fjölskyldu og vina sem almenningur í Grikklandi býr alla jafna við. Vísi kærendur til þess að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Kærendur óski sérstaklega eftir því að tekið verði tillit til þeirrar verndar sem ófætt barn þeirra eigi rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld séu bundin af þjóðarrétti að virða. Kærendur telji að endursending þeirra til Grikklands gangi gegn hagsmunum ófædds barns þeirra.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi dagana 25. maí 2018 og 6. júní 2018 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til júlí 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málanna eru K og M ung hjón. Í heilsufarsgögnum K kemur fram að hún sé barnshafandi og hafi verið í reglubundnu mæðraeftirliti hér á landi. Samkvæmt samskiptaseðli mæðraverndar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, dags. 18. september 2019, var K gengin rúmar [...] vikur þann dag. Þá kemur fram að hún hafi fundið fyrir óþægindum í eyrum og fengið ráðleggingar vegna þeirra auk þess sem hún hafi fengið beiðni um tíma hjá tannlækni vegna tannskemmda. Í heilsufarsgögnum M kemur fram að hann sé almennt heilbrigður. Þá hafa kærendur greint frá andlegri vanlíðan og áhyggjum vegna ófædds barns þeirra.

Það er mat kærunefndar, með vísan til þungunar K, að framangreind gögn beri með sér að fjölskyldan í sameiningu teljist hafa sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum verður ráðið grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Þá segir á vefsvæði alþjóðasamtakanna Doctors of the World að árið 2016 hrintu samtökin af stað herferð með það að markmiði að bæta mæðravernd til flóttakvenna í Grikklandi. Einnig kemur fram að þrátt fyrir að margt hefur áunnist í þeim efnum eiga þungaðar konur enn á hættu að fá ekki fullnægjandi mæðravernd og ungbarnavernd þar í landi. Þá getur flóttafólk leitað til alþjóðasamtaka og frjálsra félagasamtaka í Grikklandi sem m.a. veita nýbökuðum mæðrum og ungabörnum viðeigandi aðstoð, t.a.m. upplýsingar og aðstoð í tengslum við brjóstagjöf og næringu. Jafnframt útvega þau barnaföt, bleyjur og annan búnað til að koma til móts við þarfir þeirra, aðstoðin er þó háð takmörkunum.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veita einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í fyrrnefndri ársskýrslu Asylum Information Database kemur fram að fæðingu barns ber að skrásetja hjá viðeigandi sveitarfélagi og að við skráninguna þarf að framvísa fæðingarvottorði barnsins og dvalarleyfisskírteini a.m.k. eins foreldris. Þá kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi geta sótt um fjölskyldusameiningu. Handhafi alþjóðlegrar verndar sem sækir um fjölskyldusameiningu við barn undir 18 ára aldri þarf hvorki að sækja um innan ákveðins tímaramma frá því viðkomandi öðlaðist vernd eða sýna fram á lágmarkstekjur. Börn með með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sækir skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið hentar ekki endilega börnum á flótta í Grikklandi.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu. Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir það með kærendum að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Það er mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn endursendingu kærenda til Grikklands. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda, en meðal annars hefur komið fram að K er barnshafandi. Af gögnum málsins um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og ófætt barn þeirra eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að þau hafi aðgang að viðhlítandi heilbrigðisaðstoð í Grikklandi. Auk þess telur kærunefnd að K muni hafa aðgang að fullnægjandi fæðingaraðstoð og ungbarnavernd fyrir nýfætt barn sitt í Grikklandi. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærendur glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, en í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kærenda og ófædds barns þeirra er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu.

Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þeirra, m.a. þar sem þau hafi ekki fengið næga félagslega aðstoð eða atvinnumöguleika og upplifað mismunun í Grikklandi. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur hafi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og eigi rétt á félagslegri aðstoð með sömu skilyrðum og takmörkunum og grískir ríkisborgarar. Þá má einnig ráða að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sama rétt til menntunar fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið eigi þau rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Fyrir liggur að kærendur eru ung, heilsuhraust og vinnufær hjón sem eiga von á barni. Telur kærunefnd því ekki að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra séu þess eðlis að önnur sjónarmið eigi að gilda í málum þeirra en að framan hafa verið rakin. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem þau þurfa á að halda.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum gríska ríkisins og grískir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærendur og ófætt barn þeirra muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Líkt og að framan er rakið eru kærendur handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi. Þá hafa þau dvalið í Grikklandi um árabil og komu hingað í sameiningu. Þá verður ráðið af fyrirliggjandi gögnum að ófætt barn kærenda, geti fengið dvalarleyfi í Grikklandi vegna stöðu foreldra sinna þar í landi. Kærunefnd leggur því til grundvallar að úrræði séu í boði fyrir kærendur að því er varðar stöðu ófædds barns þeirra. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málsins að flutningur kærenda til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun dagana 1. og 2. ágúst 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 26. júlí 2019.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem áður hefur komið fram gera kærendur í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á þeirri þjónustu sem standi kærendum til boða í viðtökuríki. Þá gera kærendur einnig athugasemd við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kærenda og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málunum byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að það sé mat nefndarinnar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málanna og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Ráðstafanir vegna flutnings kærenda til Grikklands

Eins og að framan er rakið hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu á grundvelli gagna málanna að þær aðstæður sem bíða kærenda og ófædds barns þeirra í viðtökuríki, einkum hvað varðar aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi, séu fullnægjandi. Ljóst er að K er barnshafandi og mun hún líklega vera með hvítvoðung við endursendingu til viðtökuríkis. Í ljósi framangreinds og með vísan til framangreindra heilsufarsupplýsinga telur kærunefnd nauðsynlegt að þau stjórnvöld sem annast flutning á kærendum til viðtökuríkis geri viðeigandi ráðstafanir til þess að tryggja að heilsa kærenda og barns þeirra verði nægilega tryggð og að hlúð verði sérstaklega að hagsmunum hins nýfædda barns.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málanna komu kærendur til landsins þann 26. júlí 2019 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kærendum er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kærenda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta