Mál nr. 75/2014 úrskurður 31. október 2014
Mál nr. 75/2014 Eiginnafn: Brímir
Hinn 31. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 75/2014 en erindið barst nefndinni 17. október:
Eiginnafnið Brímir (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Brímis, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Brímir (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.