Mál nr. 76/2014 úrskurður 31. október 2014
Mál nr. 76/2014 Aðlögun kenninafns: Franksdóttir
Hinn 31. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 76/2014 en erindið barst nefndinni 17. október:
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 17. október 2014, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni X og X um að fyrra eiginnafn föðurins verði aðlagað íslensku máli og föðurkenning hennar verði Franksdóttir. Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Franksdóttir.