Hoppa yfir valmynd

Nr. 946/2024 Úrskurður

Hinn 1. nóvember 2024 kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 946/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24020109 og KNU24020110

 

Kæra […], og barna þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar

 

  1. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. febrúar 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […]8. september 1987 (hér eftir K) og […], fd. […]ríkisborgarar Venesúela (hér eftir A), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. janúar 2024, um að synja þeim og börnum M og K, […], fd. […] (hér eftir B) og […], fd. […] (hér eftir C), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn M og K eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

  1. Málsatvik 

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn M og K 14. febrúar 2023. Kváðust kærendur öll vera heilsuhraust.

Kærendur K og M komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 1. ágúst 2023 og greindu frá ástæðum flótta síns. Í viðtali sínu greindi M frá því að vera sýrlenskur ríkisborgari sem hafi flutt til Venesúela fyrir 22 árum og aldrei farið aftur til Sýrlands. M fæddur og uppalinn í […] í Sýrlandi og hafi verið búsettur í borginni […]í Cojedes fylki í Venesúela þegar hann hafi flúið heimaríki sitt 12. febrúar 2023. M kvaðst vera Drúsi og Arabi. M kvaðst tilheyra minnihlutahópi á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna og uppruna sem Arabi. M hafi verið aðili að stjórnarandstöðuflokknum […]í tvö ár og hafi oft tekið þátt í mótmælum og kröfugöngum. M hafi opinberað stjórnmálaskoðanir sínar á fundum stjórnarandstöðuflokksins og haldið ræður í kröfugöngum. M hafi verið virkur á fundum með stjórnarandstöðuflokknum og hafi unnið mikið í kringum kosningar en hafi ekki verið háttsettur innan flokksins. M kvaðst hafa verið þekktur í heimafylki sínu vegna starfa sinna fyrir flokkinn en hafi verið almennur borgari í Venesúela.

Í viðtali sínu greindi K frá því að vera sýrlenskur ríkisborgari en fædd í Venesúela og hafi alltaf búið þar. Hún sé fædd og uppalin í […] í Barinas fylki í Venesúela og hafi búið í borginni […]í Cojedes fylki í Venesúela þegar hún hafi flúið heimaríki sitt í byrjun febrúar 2023. K kvaðst vera Drúsi en ekki hafa sætt mismunun eða öðru áreiti vegna þess. K hafi verið aðili að stjórnarandstöðuflokknum […]í tvö ár og hafi oft tekið þátt í mótmælum og kröfugöngum. K kvaðst hafa talað opinberlega í kröfugöngum þar sem hún hafi búið og opinberað stjórnmálaskoðanir sínar og kvaðst vera þekkt í sínu heimafylki fyrir störf sín fyrir stjórnmálaflokkinn. Hún hafi þó verið almennur borgari í Venesúela. K kvaðst tilheyra minnihlutahópi á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna.

Í viðtölum sínum greindu kærendur K og M frá því að hafa tekið þátt í kröfugöngu 28. september 2022. Eftir gönguna hafi M farið að vinna í verslun þeirra en K farið heim. Síðar um daginn hafi K komið og verið með honum fram að lokun. Á heimleiðinni hafi tveir menn komið á mótorhjóli, báðir klæddir í boli merkta PSUV og annar hafi verið með byssu. Kærendur hafi kannast við þá þar sem þau hafi séð þá í kröfugöngunni. Einstaklingurinn með byssuna hafi kallað M illum nöfnum, m.a. Araba og innflytjanda sem hefði ekki rétt á að mótmæla stjórnvöldum. Einstaklingarnir hafi sagst vera með myndir og myndbönd af kærendum í kröfugöngunni, þeir hafi ráðist á kærendur og K hafi misst meðvitund. Þeir hafi flúið og nágranni kærenda hafi komið þeim á sjúkrahús. M greindi frá því að 29. september 2022 hafi nágrannar kærenda sagt þeim hvaða einstaklingar þetta hafi verið. Þeir væru þekktir fyrir að gera skítverk fyrir stjórnvöld. K greindi frá því að hún hafi ekki vitað hverjir þessir einstaklingar hafi verið í kröfugöngunni þegar hún hafi séð þá, en fólk hafi vitað að þeir ynnu fyrir stjórnvöld. Í kjölfar árásarinnar hafi M farið, ásamt lögfræðingi, og kært þá til lögreglu. Saksóknari hafi fyrirskipað lögreglurannsókn færi fram og læknisskoðun á kærendum. K greindi frá því að saksóknari hafi sent málið áfram til lögreglunnar CICPC til rannsóknar. M greindi frá því að dómari hafi ákveðið að þessir nafngreindu einstaklingar, X og Y, yrðu handteknir, en þeir hafi ekki náðst þrátt fyrir að kærendur hafi séð þá alls staðar. Ástæða þess hafi verið að þeir hafi verið hluti af stjórnvöldum. Þessir tveir einstaklingar hafi í kjölfarið byrjað að hóta og kúga kærendur. Þeir hafi komið heim til kærenda, í verslun þeirra og krafist þess að kærendur drægu kæru sína hjá lögreglu til baka, kallað M Araba og hótað kærendum og börnum þeirra ofbeldi. M greindi frá því að þessir einstaklingar hafi einnig sent aðra aðila úr stjórnmálaflokki þeirra og fjölskyldu þeirra til að hóta kærendum. Hótanir hafi snúið að því að þau drægju kæru til baka hjá lögreglu og að þau mættu ekki taka þátt í fleiri kröfugöngum, þeim hafi borist hótanir oftar en fimm til sex sinnum. K greindi frá því að það hafi aðallega verið tveir nafngreindir einstaklingar sem hafi ráðist á kærendur, stundum hafi verið fleiri en allir úr sama hópi. Kærendur hafi fengið hótanir í persónu og einnig í símtölum eða skilaboðum í síma. K greindi frá því að það hafi aðallega verið hringt í M en hún líklega bara fengið símtal einu sinni. Kærendum hafi borist síðustu hótanir um 15 dögum áður en þau hafi flúið til Íslands. K greindi frá því að hafa vitað að aðrir einstaklingar sem hafi hótað þeim væru frá sama hópi því þeir hafi verið í sérstökum fatnaði, á mótorhjóli og meðlimir El Colectívos. Kærendur hafi ákveðið að flytja í aðra borg með barn þeirra. M hafi farið í skóla barns hans og óskað eftir flutningi fyrir hana í skóla í Valencia. Þegar M hafi verið staddur í Valencia hafi honum borist símtal frá þessum einstaklingum sem hafi sagst vita hvar M væri og varað kærendur við að flýja þangað. K greindi frá því að þeir hafi vitað nafnið á nýja skólanum sem þau hafi ætlað að setja barn þeirra í. Kærendur hafi ákveðið að vera áfram í […]borg. Aðspurð greindi K frá því að hún teldi ólíklegt að þessir einstaklingar yrðu handteknir, þeir hafi alltaf verið í felum og geti ekki farið í fangelsi. Jafnvel þótt þeir yrðu handteknir yrði þeim sleppt á endanum og ef þeir færu í fangelsi væru þeir með sambönd utan fangelsisins, þetta sé stór hópur. Aðspurður greindi M frá því að hann hafi ekki trú á því að þessir einstaklingar yrðu handteknir á meðan þessi ríkisstjórn væri við völd. Hinn 4. janúar 2023 hafi kærendur verið að fagna nýju ári og jólunum heima hjá sér. Í veislunni hafi einnig verið fólk úr sama stjórnarandstöðuflokk. Þegar M hafi verið á leið í vinnuna daginn eftir hafi fjórir menn beðið eftir honum, kallað hann Araba og hótað honum og dóttur hans ofbeldi og lífláti. M hafi farið til lögreglu og kært þessa menn og þau hafi ákveðið að flýja frá heimaríki. K greindi frá því að þetta hafi verið einstaklingar úr PSUV stjórnmálaflokknum. M greindi frá því að barnsmóðir hans í Venesúela hafi fengið hótanir í desember 2022 vegna stjórnmálaþátttöku M. Kærendur greindu frá því að hafa verið sérstök skotmörk þessa hóps vegna stjórnmálaskoðana sinna og uppruna og að þau yrðu í hættu ef þau sneru til baka þar sem málið væri enn opið hjá lögreglu gegn þessum einstaklingum.

Kærandi A kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 28. ágúst 2023 ásamt löglærðum talmanni sínum og túlki. A greindi frá því að vera fædd og uppalin í […]og hafa verið búsett þar þegar hún hafi flúið frá heimaríki. A greindi frá því að eiga móður í Venesúela sem hún sé í reglulegu sambandi við. A hafi búið til skiptis hjá móður sinni og föður. Faðir hennar, M, og eiginkona hans, K, hafi átt fyrirtæki sem hafi selt raftæki og móðir hennar hafi starfað í grunnskóla. A kvaðst vera hrædd vegna atburða sem hafi hent fjölskyldu í Venesúela og vegna almenns ástands þar, fátæktar og óöryggis. A hafi geng í skóla og síðast mætt í skólann í nóvember 2022. A hafi átt að skipta um skóla en vegna hótana hafi verið hætt við það. A hafi svo hætt í skóla vegna hótana sem faðir hennar hafi fengið vegna þess að hann hafi stutt eða verið meðlimur í stjórnarandstöðunni. Í september 2022, áður en hótanir hafi byrjað, hafi foreldrar A orðið fyrir barðinu á sömu aðilum. Í frítíma sínum hafi A verið heima og stundum í leikfimi. Fyrir atvik í september hafi A átt eðlilegt líf, en eftir atvikið hafi A fundið fyrir hræðslu og óöryggi. A hafi ekki getað farið út að leika með vinum sínum vegna ótta við að eitthvað kæmi fyrir. Ástæða flótta fjölskyldunnar hafi verið atvik í september 2022 og hótanir sem foreldrum hafi borist. Hótanirnar hafi falist í því að þau ættu að hætta að styðja stjórnarandstöðuna og draga til baka kæru hjá lögreglunni. A greindi frá því að vera við góða heilsu og hafa farið í kviðslitsaðgerð fyrir um tíu árum. Það hafi alltaf verið til nóg að borða heima hjá fjölskyldunni. 

Barnið B mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 28. ágúst 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. B greindi frá því að vera fædd og uppalin í […]og hafa verið búsett þar þegar hún hafi flúið heimaríki. B greindi frá því að eiga einn frænda í Venesúela. B greindi frá því að hafa átt eðlilegt líf þar til í september 2022. Foreldrar B hafi verið meðlimir stjórnarandstöðuflokks og hafi tekið þátt í mótmælum og orðið fyrir ofbeldi. Þessir atburðir hafi haft veruleg áhrif á B þar sem hún hafi séð föður sinn í slæmu ástandi og þeim hafi borist reglulegar hótanir. Faðir B hafi fengið hótanir um að börn hans yrðu drepin ef hann hætti ekki að styðja stjórnarandstöðuna og dragi ekki til baka kæru hjá lögreglunni. B hafi hætt að fara í skóla og danstíma vegna hótana. B hafi síðast farið í skólann í nóvember 2022 og ekki byrjað aftur vegna hótana sem fjölskyldunni bárust í janúar 2023. B hafi fundið fyrir óöryggi og hræðslu og hafi ekki þorað að fara út á götu að leika með vinum sínum. B greindi frá því að vera við góða heilsu og að það hafi alltaf verið til nægur matur á heimilinu. Ástæða flótta fjölskyldunnar hafi verið atvik í september 2022 og hótanir sem foreldrum hennar hafi borist. Hótanirnar hafi falist í því að þau ættu að hætta að styðja stjórnarandstöðuna og draga til baka kæru hjá lögreglunni. Síðasta hótun sem fjölskyldu hafi borist hafi verið í janúar 2023.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins C kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburða foreldra þess.

Kærendur lögðu fram gögn við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun til stuðnings frásögn sinni. Kærendur lögðu m.a. fram afrit af vottorðum sem þau kveða vera frá stjórnmálaflokknum […] um flokksaðild kærenda, yfirlýsingu um þátttöku kærenda í mótmælagöngu 28. september 2022 á vegum flokksins, tvær lögregluskýrslur, bréf er varðar rannsókn sakamáls og beiðni um læknisskoðun vegna árásar. 

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnunum B og C synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum M og K var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Kæranda A og börnunum B og C var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 14. febrúar 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 1. mars 2024. Kærunefnd bárust frekari upplýsingar og gögn 22. mars 2024. Með tölvubréfi, dags. 4. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kærendum. Með tölvubréfi, dags. 7. júní 2024, bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn frá kærendum. Með tölvubréfi, dags. 12. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frumriti tiltekinna fylgiskjala sem kærendur höfðu lagt fram við meðferð mála sinna hjá kærunefnd. Með tölvubréfi, dags. 18. júní 2024, barst kærunefnd afrit af hinum umbeðnu gögnum sem hafi verið send frá Venesúela. Hinn 2. júlí 2024, bárust kærunefnd frumrit og afrit umbeðinna fylgigagna frá kærendum. Hinn 3. júlí 2024, sendi kærunefnd beiðni til skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum um að taka til rannsóknar frumrit tiltekinna skjala sem kærendur lögðu fram við meðferð málsins hjá kærunefnd. Með tölvubréfi, dags. 3. júlí 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Með tölvubréfi, dags. 22. júlí og 7. ágúst 2024, bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn í máli kærenda. Með tölvubréfi, dags. 8. ágúst 2024, barst kærunefnd afrit af skjalarannsóknarskýrslu lögreglunnar. Með tölvubréfi, dags. 9. ágúst 2024, sendi kærunefnd skjalarannsóknarskýrslu til kærenda og óskaði eftir athugasemdum. Hinn 14. ágúst 2024, bárust kærunefnd athugasemdir kærenda ásamt fylgigögnum. Með tölvubréfi, dags. 16. ágúst 2024, barst kærunefnd afrit af uppfærðum fylgigögnum frá kærendum. Með tölvubréfi, dags. 19. ágúst 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kærendum. Með tölvubréfi, dags. 20. ágúst 2024, bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá kærendum.

Við rekstur málsins hjá kærunefnd varð kærandi A 18 ára og því fullorðin. Við mat á réttindum hennar og stöðu verður engu að síður litið til ungs aldurs hennar.

  1. Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar

Í greinargerð kærenda er vísað til viðtala við kærendur hjá Útlendingastofnun og greinargerðar kærenda til Útlendingastofnunar hvað málsatvik varðar. Í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að kærendur M og K hafi ríkisfang í Venesúela og Sýrlandi og þau hafi verið búsett í borginni […] í Venesúela þar til þau flúðu frá heimaríki. Kærendur M og K hafi orðið fyrir ofsóknum vegna aðildar sinnar að stjórnmálaflokknum […], andstöðu þeirra við stjórnvöld og þátttöku þeirra í mótmælum 28. ágúst 2022. M og K hafi verið virkir meðlimir í flokknum í um tvö ár. Þau hafi tekið þátt í mótmælagöngu 28. ágúst 2022 þar sem krafist hafi verið betri lífskjara í landinu og mótmælt framgöngu og mannréttindabrotum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Í göngunni hafi M og K tekið eftir því að tveir menn hafi elt þau og tekið myndir af þeim. Þegar þau hafi komið heim hafi tveir nafngreindir menn á mótorhjóli, klæddir í boli sem á hafi staðið PSUV, verið fyrir utan heimili þeirra. Þeir hafi kvaðst hafa séð M og K í göngunni og vera með myndir og myndbönd af þeim því til sönnunar. Mennirnir hafi verið vopnaðir og ráðist á M og K, og K hafi misst meðvitund. Degi síðar hafi nágrannar upplýst M og K um nöfn mannanna og 29. ágúst 2022 hafi þau gefið skýrslu hjá lögreglunni. Í kjölfarið hafi hafist rannsókn hjá lögreglunni og vottorða hafi verið aflað frá spítala. Handtökuskipun hafi verið gefin út á mennina tvo og í kjölfarið hafi mennirnir tveir, fjölskyldur þeirra og meðlimir í stjórnmálaflokknum PSUV farið að hóta M og K með því að hringja í þau og koma á heimili og vinnustað þeirra. Kærendum og börnunum B og C hafi verið hótað lífláti og þess krafist að þau drægju til baka kæruna til lögreglunnar og hættu að taka þátt í kröfugöngum. K hafi meðal annars borist símtal frá þeim einstakling sem hafi beitt hana ofbeldi. M greindi frá því að hafa borist hótanir um fimm til sex sinnum og þeir hafi einnig kallað hann Araba. M og K hafi óttast um líf sitt og barna sinna og ákveðið að láta börnin skipta um skóla. Þegar þau hafi verið að undirbúa flutning í nýjan skóla hafi verið hringt í M og honum tilkynnt að þeir vissu að hann væri að reyna láta börnin skipta um skóla og þeir hafi nefnt skólann á nafn. M og K hafi tekið þátt í annarri kröfugöngu í desember 2022 og í kjölfarið hafi M fengið hótanir frá sömu einstaklingum á þá leið að þeir vissu að hann hafi tekið þátt í kröfugöngum og væri að vinna gegn stjórnvöldum. Í desember 2022 hafi verið hringt í barnsmóður M og barni þeirra hótað líkamsmeiðingum ef M myndi ekki draga kæru til baka. Barnsmóðir M hafi óttast um líf barns þeirra og viljað að M færi með barnið úr landi. Hinn 5. janúar 2023 hafi M verið á leið til vinnu þegar fjórir aðilar hafi beðið eftir honum úti á götu. Þeir hafi hótað M og fjölskyldu hans lífláti. M og K hafi haldið börnunum heima og M hafi kært atvik til lögreglunnar. Í kjölfarið hafi kærendur og börnin B og C flúið heimaríki sitt vegna ótta um líf sitt. M og K greindu frá því að C glími við nýrnavandamál og hún hafi hitt sérfræðilækni hérlendis. C ætti annan tíma hjá lækni nokkrum dögum eftir viðtalið. 

Kærendur byggja á því að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar verulegum annmörkum, einkum m.t.t. rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar sem leiði til þess að fella verði ákvarðanirnar úr gildi. Einnig er mati Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kærenda mótmælt. Kærendur vísa til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um framkvæmd trúverðugleikamats og telja að ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi m.a. ekki fylgt þeim verklagsreglum sem þar komi fram. 

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Að mati kærenda séu landaskýrslur reifaðar einhliða og einangrað frá öðrum nýlegum skýrslum um aðstæður þar í landi. Með samanburði heimilda verði ekki komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður stjórnarandstæðinga hafi breyst með nokkrum hætti frá því að kærunefnd hafi metið aðstæður þeirra árið 2022. Kærendur vísa til úrskurða kærunefndar nr. 525/2023, 526/2023 og 539/2023 máli sínu til stuðnings. Kærendur hafi verið virk í einum helsta stjórnarandstöðuflokknum í heimaríki, […], og rekja kærendur ofsóknir sínar til þessa. Kærendur vísa til fjölda landaskýrslna, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og skýrslu EUAA frá 2020 um ólögmætar aðgerðir stjórnvalda gegn starfsemi flokksins, félagafrelsi og forystu flokksins. Í ljósi framangreindra heimilda um aðgerðarsinna sem taki þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni liggi í augum uppi að meðlimir flokksins […], sem tali með róttækum hætti fyrir mannréttindum í landinu, sæti ofbeldi og verði fyrir ofsóknum af hálfu stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar. 

Börn kærenda teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem sé börnum fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar eru um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eigi og kveðið á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- og mannúðarmála. Kærendur mótmæli því sem fram kemur í hinum kærðu ákvörðunum um að yfirvöld í Venesúela hafi stigið mikilvæg skref í að tryggja réttindi og lífsgæði barna í Venesúela. Tryggja þau verkefni ekki öryggi barna kærenda sem séu í viðkvæmri stöðu vegna fjölskyldutengsla við stjórnarandstæðinga. Kærendur vísa til landaskýrslna máli sínu til stuðnings og telja menntunarmöguleika barnanna ekki tryggða í Venesúela, börnin hafi þurft að líða fyrir stjórnmálaskoðanir fjölskyldumeðlima sinna. Kærendur M og K hafi ekki getað framfært sér með viðunandi hætti og markvisst verið útilokuð frá opinberri aðstoð, svo sem CLAP aðstoð, bónusum eða annarri matar- og fjárhagsaðstoð. 

Kærendur kalla eftir því að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af þeirri óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023. Einungis hafi farið fram takmörkuð rannsókn stjórnvalda á því hvað nákvæmlega hafi átt sér stað við endursendingu ríkisborgara Venesúela og ekki hafi verið athugað hvort að sú atburðarrás hafi áhrif á meðferð mála sem séu í vinnslu á kærustigi hjá kærunefnd útlendingamála. Við endurkomu fólks til Venesúela 15. nóvember 2023 hafi venesúelsk yfirvöld tekið á móti þeim, fólk hafi ekki verið frjálst ferða sinna, þurft að fara í löng viðtöl við fulltrúa yfirvalda, hafi verið þvingað í bólusetningu og komið fyrir í varðhaldi í sólarhring við afar bágar aðstæður. Þá hafi komið fram upplýsingar um að fólki hafi verið gert að skrifa undir skjöl og hafi verið bannað að taka að taka myndir af þeim. 

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnunum B og C verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. M og K hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a-c- liðum 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli stjórnarmálaskoðana sinna sbr. e- lið 3. mgr. 28. gr. laga um útlendinga, og aðildar að þjóðfélagshópi, en M og K tilheyri þjóðfélagshópunum, meðlimir […], meðlimir stjórnarandstöðuflokks, mótmælendur, aðgerðasinnar fyrir mannréttindum og stjórnarandstæðingar. M og K hafi orðið fyrir ofsóknum vegna stjórnmálaskoðana þeirra og þeir sem standi að ofsóknum séu meðlimir stjórnarflokksins PSUV, einkum tveir nafngreindir menn og fjölskyldumeðlimir þeirra. Kærendur geti því ekki hlotið vernd hjá yfirvöldum. Þrátt fyrir að mál kærenda hafi verið skrásett hjá stjórnvöldum hafi það enga þýðingu þar sem refsileysi viðgangist í heimaríki þeirra og aðilar sem hafi brotið á þeim gangi enn lausir. Ofsóknir sem M og K óttist séu ofbeldi, mannrán og manndráp, sbr. 1. og 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi orðið fyrir gríðarlega alvarlegu líkamlegu ofbeldi af hálfu tveggja nafngreindra manna, meðlima PSUV stjórnmálaflokksins. Þá verði einnig að líta til þjóðernis M og K sem hafi gert þau að skotmörkum meðlima PSUV stjórnmálaflokksins. Ekki sé hægt að útiloka að kærendur og börnin B og C séu í annarri og verri stöðu en aðrir í Venesúela vegna uppruna síns og stjórnmálaskoðana. Þá hafi M og K verið þekkt í fylki sínu fyrir stjórnmálaskoðanir sínar og sé því ótti þeirra sérstaklega ástæðuríkur. Gögn sem kærendur hafi lagt fram styðji algjörlega við frásögn kærenda. Þar að auki telja kærendur að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í landinu.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnunum B og C verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Við mat á aðstæðum þeirra verði að hafa að leiðarljósi grundvallarreglu barnaréttar að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar u ákvarðanir um málsefni þess. Börn séu álitin sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur og beri að veita þeim af þeirri ástæðu sérstaka vernd og umönnun. Tilteknar ástæður geta valdið því að sum börn tilheyri hópi barna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu m.a. slæm heilsa forsjáraðila, fátækt, menningarlegir þættir s.s. lítil menntun forsjáraðila eða barn verði fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar og/eða stöðu sem flóttabarn. Framangreind atriði eigi við um kærendur og börnin B og C. Börnin séu því í margfalt verri stöðu en önnur börn í Venesúela. Meta verði stöðu kærenda með hliðsjón af viðeigandi gögnum um Venesúela, þar sem óöruggt ástand hafi ríkt í fjölda ára. Í ljósi stjórnmálabakgrunns, stöðu sem aðgerðarsinna og frásögn kærenda sé ljóst að staða þeirra og barnanna B og C sé sérstök í samanburði við hinn almenna borgara í Venesúela og langt um lakari. Kærendur hafi tvívegis kært til lögreglu án þess að framganga hafi náðst í málunum á meðan M og K hafi búið við linnulausar líflátshótanir í millitíðinni sem gerði það að verkum að börn þeirra hafi dvalið heima fyrir í marga mánuði. Líflátshótanir sem kærendur og börnin B og C hafi búið við jafnist til ómannúðlegrar meðferðar í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærendur telji hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að kærendur, setjist að annars staðar í heimaríki sínu sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í ljósi þess að yfirvöld í heimaríki kærenda séu ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríki.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnunum B og C verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærendur vísa m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Fyrir liggi að langvarandi neyðarástand ríki í Venesúela og séu mannréttindabrot þar ríkjandi. Kærendur hafi upplifað á eigin skinni að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldi og glæpum. Kærendur vísa til lögskýringargagna með 1. mgr. 74. gr. um að meta verði heildstætt erfiðar félagslegar aðstæður og að verndarþörf þjóðfélagshópa fari að öðru leyti eftir aðstæðum í hverju máli. Ástand mannréttindamála í Venesúela sé afar bágborið. Efnahagslegar- og félagslegar aðstæður kæranda séu bágbornar auk almenns ótryggs ástands í heimaríki og ríkjandi mannréttindabrota. Auk þess telja kærendur að þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð af hálfu PSUV stjórnmálaflokksins og annarra hópa sem styðji ríkisstjórnina snúi þau aftur til heimaríkis fyrir að styðja stjórnarandstöðuflokk og fyrir að hafa flúið land. Þá hafi M og K greint frá því að C glími við nýrnavandamál og sé hjá barnalækni vegna vandamálsins.

Mendursendingu kærenda og barnanna B og C til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

  1. Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar og útlendingaréttar sem leiði til þess að fella verði þær úr gildi. Kæranda A og börnunum B og C hafi verið jafnað til annarra barna í Venesúela og ekki hafi verið tekið tillit til stöðu þeirra vegna fjölskyldutengsla þeirra við stjórnarandstæðinga. Þá telja kærendur annmarka á trúverðugleikamati Útlendingastofnunar verulega sem varði við sbr. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. 

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

  1. Alþjóðleg vernd

  1. Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir: 

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir: 

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna. 

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, 

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013). 

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling. 

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

  1. Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. 

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

  1. Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börnin B og C. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börnin B og C hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Við meðferð málsins hafa kærendur M og K greint frá því að vera einnig ríkisborgarar Sýrlands. Lagði Útlendingastofnun það til grundvallar að M og K væru venesúelskir og sýrlenskir ríkisborgarar Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að M og K séu með ríkisfang í Venesúela og Sýrlandi og að kærandi A og börnin B og C séu venesúelskir ríkisborgarar.

Þar sem M og K eru ríkisborgarar Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kærenda og barnanna B og C í Venesúela, sbr. 2. mgr. A.-liðar 1. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

  1. Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024); 

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023); 

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);

  • All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);

  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);

  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021); 

  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023); 

  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);

  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);

  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);

  • Election Observation MissionVenezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022); 

  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020); 

  • Freedom in the World 2022Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);

  • Freedom in the World 2023 Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);

  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);

  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);

  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);

  • Global Organized Crime IndexVenezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);

  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019); 

  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);

  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);

  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);

  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);

  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018); 

  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020); 

  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022); 

  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023); 

  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);

  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);

  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020); 

  • Quarterly Report AprilJune 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);

  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);

  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024); 

  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021); 

  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);

  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);

  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023); 

  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);

  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);

  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021); 

  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023); 

  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020); 

  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);

  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. ágúst 2024);

  • UNHCR Response – Venezuela, JanuaryJune 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);

  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);

  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);

  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 11. september 2024);

  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);

  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020); 

  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023; 

  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);

  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);

  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);

  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);

  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);

  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019); 

  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 19. september 2024);

  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);

  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);

  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);

  • Venezuela: Progress Report MarchApril 2023 (OCHA, 31. maí 2023);

  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);

  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);

  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);

  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);

  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);

  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);

  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);

  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);

  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020); 

  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);

  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);

  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og

  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahófs myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021 kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins. Talið sé að 100 til 150 þúsund íbúar Venesúela séu múslimar eða 0,3 til 0,5 prósent af íbúum landsins. Af þeim séu sjía múslimar í minnihluta.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun í júlí 2024 höfðu um 530 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 520 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

  1. Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna ofsókna yfirvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna og vegna ofbeldis og hótana af hálfu einstaklinga tengdum stjórnvöldum og PSUV stjórnmálaflokknum.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu M og K frá því að hafa verið meðlimir stjórnarandstöðuflokksins […] og hafa tekið þátt í fjölda mótmæla og kröfugöngum. M og K hafi verið virk í starfi flokksins og þekkt innan heimafylkis síns fyrir störf sín fyrir flokkinn. M og K hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu nafngreindra meðlima PSUV stjórnmálaflokksins, X og Y, eftir að þau hafi tekið þátt í kröfugöngu í september 2022. Eftir að M og K hafi farið og kært atvik til lögreglu hafi þeim farið að berast hótanir í síma og á heimili og í verslun kærenda frá þessum einstaklingum, fjölskyldum þeirra og öðrum meðlimum PSUV stjórnmálaflokksins. Þá greindu kærendur frá því að í janúar 2023 hafi fjórir einstaklingar (meðlimir PSUV stjórnmálaflokksins) ógnað og hótað M á leið til vinnu. Kærendur telji að allar þessar árásir og hótanir tengist stjórnmálaskoðunum þeirra og uppruna M

Í viðbótarathugasemdum M til kærunefndar, dags. 22. mars 2024, kemur fram að M hafi verið vel þekktur innan fylkisins í stjórnmálaflokknum […]. M hafi formlega gengt stöðu aðalritara flokksins (e. executive secretary). Hlutverk hans hafi verið að sækja um leyfi fyrir hátíðarhöldum og mótmælum. M hafi verið ákærður og mál hafi verið höfðað gegn honum á grundvelli þeirra sakargifta sem hann hafi greint frá að hafa verið sakaður um. Í ákæru sé M kallaður til þinghalds 8. mars og 4. september 2023. M lagði fram gögn til stuðnings frásögn sinni, m.a. afrit af yfirlýsingu sem ber með sér að vera frá nafngreindum forseta flokksins […] um að M hafi verið skipulagsritari stjórnmálaflokksins (s. Secretario de Organizacion). M lagði einnig fram afrit af skjölum sem bera með sér að vera boðanir í fyrirtöku fyrir dóm, dags. 14. febrúar og 8. maí 2023, og að vera útgefnar af tilteknum dómstól í Venesúela. Efni skjalanna ber með sé að M hafi verið boðaður í fyrirtöku fyrir dómstólinn í tvígang, 8. mars 2023 og 4. september 2023, vegna hatursumræðu og fyrir að hvetja til haturs gegn PSUV stjórnmálaflokknum og venesúelska ríkinu. Þá lagði M fram afrit af þremur bréfum sem bera með sér að vera bréf frá borgarstjóranum í […] borg til M, þar sem veitt hafi verið leyfi fyrir kröfugöngu til stuðnings kennurum 20. júlí 2022, bréf M til borgarstjórans San Carlos borgar, dags. 12. september 2022, þar sem óskað er eftir leyfi til að halda kröfugöngu 28. september 2022 vegna aðgerða og stefnu stjórnvalda sem hafi valdið fátækt íbúa landsins, og bréf frá M til borgarstjórans í […] borg, dags. 4. júlí 2022, þar sem óskað er eftir leyfi til að halda friðsamlega kröfugöngu til stuðnings kennurum og réttindum þeirra 20. júlí 2022.

Með tölvubréfi, dags. 4. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kærendum m.a. um stjórnmálaþátttöku M og K og hótanir gegn þeim. Í svörum M og K, sem bárust kærunefnd 7. júní 2024, kemur m.a. fram þeim hafi verið kynnt ákæra M 14. febrúar 2023 með fyrsta bréfi frá dómstól og að þau hafi fengið vitneskju um ákæru eftir að Útlendingastofnun hafi birt ákvarðanir í málum þeirra. M og K hafi haft samband við vin sinn í stjórnmálaflokknum í Venesúela til að afla frekari upplýsinga um stöðu M í flokknum og hann hafi látið þau vita af ákærunni. Lögmaður þeirra hafi svo aflað frekari upplýsinga um ákæruna hjá dómstólnum. Lögfræðingurinn hafi fengið afrit af boðun í fyrirtöku og sent til þeirra. M sé ákærður fyrirhvetja til haturs og ofbeldis gegn yfirvöldum og ríkjandi stjórnmálaflokki. M og K greindu frá því að þau hafi ekki fengið neinar tilkynningar um ákæru á hendur M fyrr en þeim hafi borist þessar tvær boðanir um að M skyldi mæta í fyrirtöku. M og K hafi ekki lagt gögnin fram hjá kærunefnd fyrr þar sem þau hafi ekki vitað um þau og ekki fengið þau fyrr en í febrúar 2024. M telji ekki vera misræmi í frásögn sinni um stöðu hans innan flokksins og þeirra gagna sem hann hafi lagt fram hvað það varðar. Ekki hafi komið fram í staðfestingu á flokksaðild sem hafi verið lögð fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun hver hafi verið staða M í flokknum heldur einungis hvenær hann hafi gerst aðili að flokknum. M hafi starfað sem skipulagsritari flokksins í […]  fylki og hlutverk hans hafi m.a. verið að skipuleggja starfsemi flokksins og hátíðarhöld á vegum hans og að gefa út leyfi fyrir alla vinnu og athafnir flokksins. Hvað varðar þátttöku þeirra í kröfugöngum kom fram að M hafi haldið ræður í öllum kröfugöngum sem hann hafi tekið þátt í. Í byrjun hafi þau gengið eftir tiltekinni götu, ásamt öllum félögum sínum, verið með borða og krafist réttinda sinna. Þegar þau hafi komið að nafngreindu torgi þá hafi M og aðrir félagar haldið ræður. M og K hafi ekki lagt fram gögn um störf M fyrir flokkinn, umsóknir um að halda kröfugöngu og slíkt hjá Útlendingastofnun þar sem þau hafi ekki haft þessi gögn undir höndum. 

Þá kemur fram að ákæra kærenda gegn X og Y, sem hafi ráðist á þau, hafi verið í þeirri stöðu þegar þau hafi yfirgefið heimaríki að það hafi átt að bera full kennsl á hina ákærðu og að hefja tæknilega rannsókn á staðnum sem atvik hafi átt sér stað. M greindi frá því að hafa farið nokkrum sinnum á skrifstofu saksóknara í kjölfarið sem hafi upplýst hann um að beðið væri eftir rannsókn lögreglunnar. Lögreglan hafi aldrei hafið rannsókn á málinu þar sem X og Y tengdust ríkisstjórninni. M og K höfðu ekki nein ný gögn til að leggja fram hvað þetta varðar en að málið væri enn opið hjá lögreglunni. X og Y hafi tilheyrt hópnum Militant Collective of the Venezuelan United Socialist Party. M og K hafi vitað X og Y hafi tilheyrt PSUV stjórnmálaflokknum þar sem þeir hafi verið vel þekktir stjórnmálaleiðtogar. Þá hafi þau vitað að þeir hafi starfað fyrir stjórnvöld þar sem þeir hafi verið þekktir stjórnmálaaðgerðasinnar. M og K hafi einnig borist hótanir frá öðrum nafngreindum hermönnum (e. militant) PSUV stjórnmálaflokksins, R, S og T, sem hafi verið tengdir X og Y. Kærendum hafi einkum borist hótanir í síma. M og K greindu frá R, S og T hafi hótað M í janúar 2023. Þau kváðust vita að árás í september 2022 og hótanir í janúar 2023 hafi verið tengd því R, S og T hafi starfað með X og Y. M og K hafi vitað að þetta áreiti hafi verið tengd stjórnmálaskoðunum M vegna þess að hann hafi haldið fundi og mótmæli og hann hafi stöðugt verið áreittur af leiðtogum PSUV stjórnmálaflokksins vegna starfs sinna fyrir flokkinn. M og K lögðu fram frekari gögn með svörum sínum til kærunefndar. Kærendur lögðu m.a. fram afrit af bréfi sem ber með sér að vera skrifað af forseta […] stjórnmálaflokksins þar sem M sé þakkað fyrir störf sín í þágu samfélagsins og gjafir til góðgerðarmála og mynd sem ber með sér að vera af samfélagsmiðli PSUV […], sem sýnir fjölda einstaklinga og kærendur hafa sett grænan kross við einstakling sem þau kveða vera X.

Þá kemur einnig fram að M og K hafi orðið fyrir hótunum áður en þau hafi orðið fyrir árás í september 2022 en það hafi verið í tengslum við verslun þeirra. Það hafi komið eftirlitsmenn frá SUNDDE, stofnun sem gæti félagslegra og hagrænna réttinda borgaranna, neytendasamtökunum (INDEPPABIS) og skattayfirvöldum í verslun þeirra. Eftir hverja heimsókn hafi þau fengið símtal frá meðlimum PSUV hópnum sem hafi sagt þau hafi staðist skoðun í þetta skipti en næst myndu þeir loka versluninni og meina þeim að vinna ef þau haldi áfram að styðja stjórnarandstöðuna. Hótanir hafi ekki beinst að lífi þeirra eða lífi barna þeirra í þessi skipti. 

Með tölvubréfi, dags. 3. júlí 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá M og K einkum varðandi starf þeirra í stjórnmálaflokknum […] , af ofbeldi og áreiti sem þau kveðast hafa orðið fyrir og viðbótarupplýsingar sem bárust kærunefnd 7. júní 2024. Kærunefnd bárust frekari upplýsingar og gögn í máli kæranda 22. júlí og 7. ágúst 2024. Í svörum til kærunefndar, dags. 22. júlí og 7. ágúst 2024, kemur m.a. fram að M kvaðst hafa sagt í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi ekki verið háttsettur í flokknum á landsvísu heldur sveitastjórnarstigi, hann hafi verið vel þekktur í […] fylki í Venesúela. Staða ritara hafi verið þriðja æðsta staða flokksins í […]  fylki, á eftir stöðu forseta og aðalrita flokksins. K hafi verið virkur meðlimur flokksins, en ekki gegnt tiltekinni stöðu innan flokksins. K hafi tekið þátt í öllum störfum hans, einkum á ráðstefnum um konur, ofbeldi gegn konum og stöðu þeirra í þjóðfélaginu sem hafi verið haldnar á vegum flokksins. Þá hafi hún gefið föt, lyf og matvæli.

M og K hafi tekið þátt í fleiri kröfugöngum en 28. september 2022 og að M hafi haldið ræður í mótmælagöngum í borginni […], höfuðborg […]. M og K lögðu fram nokkur skjöl varðandi framangreint, m.a. afrit af skjali sem þau kveða vera dagskrá […] flokksins í tilefni afmælis flokksins og afrit af ræðu sem M hafi haldið af því tilefni, dags. 1. og 2. mars 2022, afrit af skjali sem þau kveða vera ræðu sem M hafi haldið í tilefni 1. maí, dags. 27. apríl 2022, afrit af skjali sem þau kveða vera afrit af ræðu sem M hafi haldið á degi æskunnar 12. febrúar og beiðni forseta stjórnmálaflokksins um að M haldi þá ræðu, dags. 9. og 10. febrúar 2022. Þátttakendur í mótmælum hafi ávallt orðið fyrir áreiti og ofbeldi af hálfu yfirvalda sem hafi reynt að koma í veg fyrir mótmælagöngur. Stundum hafi flokkurinn neyðst til að breyta staðsetningu mótmæla. Í nokkur skipti hafi verið ráðist á bíl M, ljós á bílnum hans brotin og rúðuþurrka að aftan. Þá hafi verið átt við dekk á bílum annarra.

Þá kemur fram að forseti og aðalritari flokksins hafi orðið fyrir áreiti af hálfu yfirvalda í Venesúela, en þau hafi orðið fyrir meira áreiti, ofbeldi og ofsóknum en aðrir meðlimir stjórnmálaflokksins þar sem M sé af arabískum uppruna og hafi að mati meðlima PSUV ekki rétt á að taka þátt í stjórnmálastarfi. X og Y hafi sagt M að fara til baka til síns heimaríkis og mótmæla stjórnvöldum þar. Allir einstaklingar af erlendum uppruna sem andmæli yfirvöldum í Venesúela fái sömu meðferð og kærendur. Einstaklingar af erlendum uppruna, sem séu aðilar í stjórnmálaflokknum […], séu ekki talin hafa rétt á að taka þátt í stjórnmálastarfi og taka ákvarðanir. Hvað varðar mál M og K vegna árásar sem þau hafi orðið fyrir greindu kærendur frá því að dómarar væru á bandi yfirvalda og geri ekkert sem fari gegn hagsmunum þeirra. 

Hvað varðar árás og hótanir sem M og K hafi orðið fyrir, kemur fram að hópurinn sem árásarmenn þeirra hafi tilheyrt hafi verið kallaðir hópar sem séu meðlimir PSUV stjórnmálaflokksins. Kærendur hafi ekki þekkt X og Y þegar þeir hafi ráðist á þau í september 2022 þar sem þeir séu ekki forystumenn í PSUV stjórnmálaflokknum heldur meðlimir glæpahóps sem vinni undir stjórn leiðtoga flokksins. Þá kemur einnig fram að X og Y hafi verið meðlimir í PSUV stjórnmálaflokknum, ekki leiðtogar hans. X og Y hafi ráðist á þau í september 2022 og í janúar 2023 hafi R, S, T og einn ónafngreindur einstaklingur, hótað M. M og K hafi ekki nafngreint R, S og T þegar þau hafi lagt fram kæru hjá lögreglunni þar sem þau hafi ekki vitað nöfn þeirra, en þau hafi minnst á að þeir hafi verið í sama hópi og verið ættingjar X og Y. M og K hafi fengið vitneskju um hverjir R, S og T hafi verið í október 2023 þegar þau hafi þekkt nöfn þeirra á myndum á samfélagsmiðlum PSUV stjórnmálaflokksins.

Hvað varðar áreiti sem M og K greindu frá að hafa orðið fyrir af hálfu leiðtoga PSUV stjórnmálaflokksins kemur fram að þau hafi orðið fyrir stöðugu áreiti af þeirra hálfu. Þau hafi fengið símtöl og þeim hafi verið hótað lífláti, að börnum þeirra yrði rænt og að kveikt yrði í verslun þeirra. Þá hafi yfirvöld einnig staðsett ferða apótek á vegum hersins sem hafi verið í flutningabíl og vopnaða hermenn fyrir framan verslun kærenda, tengt bílinn við rafmagnslínu undir gangstétt fyrir framan verslun kærenda. Þetta hafi verið gert til að koma í veg fyrir að fólk gengi fram hjá versluninni. Þá hafi stundum verið lokað fyrir símalínur í verslun kærenda sem þurfti til að tengja greiðsluposa. Skattayfirvöld hafi komið nokkrum sinnum í verslunina og meðlimir PSUV stjórnmálaflokksins hafi komið í verslun kærenda, einkum nafngreindur þingmaður sem hafi hótað M. M hafi komist að því eftir að hafa flúið frá Venesúela að X og Y hafi starfað fyrir framangreindan þingmann og R, S, T og einn ónafngreindur einstaklingur, hafi starfað fyrir annan nafngreindan þingmann. Þessir þingsmenn hafi báðir hafi verið leiðtogar í PSUV stjórnmálaflokknum. Í júní 2023 hafi hettuklæddir vopnaðir einstaklingar komið í verslun kærenda og hótað M með byssu og þeir hafi einungis stolið farsímum M og K, engum peningum og ekki síma starfsmanns í búðinni

Eins kemur fram að skattayfirvöld, neytendasamtökin og stofnun sem gæti félagslegra og hagrænna réttinda borgarana hafi einungis verið með verslun M og K til skoðunar til að stöðva starfsemina og vegna þess að M hafi verið stjórnarandstæðingur. Skattayfirvöld hafi komið tvisvar í verslun þeirra árið 2022 og neytendasamtökin hafi komið í verslun þeirra í tvo til þrjá mánuði. M og K hafi fengið hótunar símtöl átta sinnum, þrisvar í verslun þeirra, úr óþekktum númerum f einstaklingum sem hafi sagst vera í PSUV stjórnmálaflokknum. Þeir hafi hótað að loka verslun kærenda nokkrum sinnum en til að auka þrýsting á þau hafi blað verið hengt á veggi verslunarinnar á tímabilinu 24. febrúar til 6 mars 2022. Þá hafi tveir skoðunarmenn komið ásamt vopnuðum hermönnum og skoðað nótur og kvittanir í búðinni í tíu daga. Allar verslanir og veitingastaðir sem séu nálægt bensínstöðvum eða sem u að aðstoða forsetaframbjóðanda og forystumann stjórnarandstöðunnar, lokað af skattayfirvöldum. 

Þá lögðu M og K fram frekari gögn til stuðnings frásögn sinni, m.a. myndir af bíl sem þau kveða vera í þeirra eign með brotið afturljós og brotna rúðuþurrku, skráningarskírteini bifreiðar M, myndir sem þau kveða vera af samfélagsmiðlum PSUV flokksins í Cojedes af einstaklingum sem hafi ráðist á þau og hótað M, myndir af framhlið húss með tilteknu númeri sem þau kveða vera af framhlið verslunar þeirra og mynd af skráningaskírteini verslunar þeirra með sama númeri, mynd af tilkynningu frá skattinum á húsvegg sem þau kveða að hafi verið sett upp í verslun þeirra á tilteknu tímabili þegar skattayfirvöld hafi verið með verslun þeirra til skoðunar, myndir af apóteki í flutningabíl, menn að tengja kafla undir gangstéttarhellu og tengla á fréttir og samfélagsmiðla um ástand í Venesúela í dag.

Með tölvubréfi, dags. 12. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frumriti af fylgigögnum sem kærendur lögðu fram við meðferð mála sinna hjá kærunefnd. Kærunefnd óskaði eftir frumriti af fylgiskjölum sem bera með sér að vera boðun í fyrirtökur hjá dómstól í Venesúela, dags. 14. febrúar og 8. maí 2023. Frestur til að skila frumritunum var gefin til og með 19. júní 2024. Með tölvubréfi, dags. 18. júní 2024, bárust kærunefnd upplýsingar frá kærendum að áætluð afhending frumrit gagna frá Venesúela yrði 1. júlí 2024 og afrit af hinum umbeðnu gögnum. Með tölvubréfi, dags. 1. júlí 2024, óskaði kærunefnd eftir afhendingu gagnanna þar sem sendingaupplýsingar frá DHL hafi sýnt að gögnin hefðu borist talsmanni kærenda 25. júní 2024. Hinn 2. júlí 2024, barst kærunefnd frumrit umbeðinna fylgigagna. Kærunefnd barst skjal sem ber með sér að vera staðfesting á afritum útgefnum af ritara dómstóls í Venesúela, yfirlýsing, og tvö afrit af boðun í fyrirtöku, dags. 14. febrúar og 8. maí 2023. Hinn 3. júlí 2024, sendi kærunefnd beiðni til skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum um að taka til rannsóknar framangreind skjöl í því skyni að meta sönnunargildi þeirra m.t.t. hugsanlegrar fölsunar. Með tölvubréfi, dags. 8. ágúst 2024, barst kærunefnd afrit af skjalarannsóknarskýrslu lögreglunnar og síðar barst kærunefnd frumrit skýrslunnar í pósti. Í skýrslunni er sjö þrepa ályktunarskali þar sem niðurstöður geta verið eftirfarandi; að skjal sé ófalsað, að öllum líkindum ófalsað, sé ótraust að forminu til en það sé enga fölsun að sjá, traust að forminu til en ekkert verði fullyrt um innihald þess, að skjal sé ótraustvekjandi, líklegt þykir að skjal sé falsað og að skjal sé falsað. Megin niðurstaða rannsóknarskýrslunnar var sú að öll fjögur skjölin væru ótraustvekjandi. Helstu niðurstöður vegna skjalanna sem bera með sér að vera boðun í fyrirtöku hjá dómstól, dags. 14. febrúar 2023 og 8. maí 2023, eru m.a. að skjölinu ekki öryggisskjöl, grunnefni sé ekki öryggispappír og að þau beri enga öryggisþætti. Að undanskildum blautstimplum í hverju horni skjalanna og fimm slíkra stimpla auk svartra pennastrika á bakhlið skjalanna sé skjalið að öllu leyti prentað með blekspraututækni. Meðal prentaðra atriða séu undirskrift, stimpill og handskrifaður texti neðan við miðju skjalanna. Af þessu sé ljóst að um afrit sé að ræða. Engin samanburðargögn af þessari gerð útgefnum í Venesúela sé að finna í þeim gagnagrunnum sem skilríkjarannsóknarstofa noti. Nokkur atriði rýri traust skjalanna, einkum þau að skjaldarmerki efst á skjalinu séu ekki fyrir miðju, leturgerð og uppsetning texta öðruvísi en venjulega í opinberum skjölum frá Venesúela og enginn QR kóði (keðjuvottun) til staðar til að staðfesta rétta útgáfu skjalanna. Þá sé það veikleiki að um afrit sé að ræða. Helstu niðurstöður hvað varðar skjal sem ber með sér að vera staðfesting á framangreindum afritum eru m.a. skjalið sé ekki öryggisskjal, grunnefni sé ekki öryggispappír og að það beri enga öryggisþætti. Allt prent á skjalinu sé gert með bleksprautu prenttækni. Engin samanburðargögn af þessari gerð útgefnum í Venesúela sé að finna í þeim gagnagrunnum sem skilríkjarannsóknarstofa noti. Stimplar á skjalinu séu blautstimplar og undirskrift á skjalinu sé gerð með penna. Skjalið sé því ekki afrit. Athygli veki að skjaldarmerki efst fyrir miðju skjalinu virðist klippt út úr öðru skjali (vegna grás bakgrunns). Þá veki athygli að í texta á spænsku í haus skjalsins er skjalið sagt gert 14. júní árið 2023 í bókstöfum en innan sviga sé ártalið 2024 í tölustöfum. Hvað varðar fjórða skjalið sem ber með sér að vera umboð eru helstu niðurstöður vegna skjalsins m.a. að skjalið sé ekki öryggisskjal, grunnefni sé ekki öryggispappír og að það beri enga öryggisþætti. Allt prent á skjalinu sé gert með bleksprautu prenttækni. Stimplar á skjalinu séu blautstimplar og undirskrift á skjalinu sé gerð með penna. Skjalið sé því ekki afrit. Sem umboð hafi skjalið eitt og sér litla merkingu. Í texta sé vísað til annars umboðs sem hafi verið gefið en fylgdi ekki með til rannsóknar. Nokkur atriði rýri traust til skjalsins. Form og haus skjalsins sé óvenjulegt fyrir opinbert skjal frá Venesúela en sé texti skjalsins skilinn rétt eigi skjalið að stafa frá sama dómstól og staðfesting um afrit. Sé skjalið heimatilbúið eða stafi ekki frá sama aðila og staðfestingin um afrit sé enn grunsamlegrar að fyrsta setning í meginmáli skjalsins sé bein afritun textans neðst í staðfestingu um afrit (m.a. sé eins stafbil og feitletrun í fyrsta bókstaf orðins MEDIANTE eins). Skjalið sé ekki stimplað af opinberum aðila og beri ekki dagsetningu. Að auki framangreindra athugasemda varðandi hvert og eitt skjal gerir skjalarannsóknardeildin frekari athugasemdir við efni framangreindra skjala. Helstu athugasemdir eru m.a. að nokkurt ósamræmi sé í tilvísunarnúmerum í skjölunum sem séu til rannsóknar og veki það athygli enda virðist skjölin eiga að fjalla um eitt og sama mál hjá sama einstakling. Ofarlega í staðfestingu afrita og yfirlýsingunni sé vísað til sama númers á máli undir Asunto Principle en í afritum um boðun í fyrirtöku sé vísað til annars málsnúmers. Í afritum um boðun í fyrirtökur innihaldi fyrrgreint tilvísunarnúmer ártalið 2023 sem sé í takti við útgáfudag skjalanna, en í hinum tveimur sé ártalið 2021. Að auki sé það ótraustvekjandi að í meginmáli staðfestingar á afritum sé vísað til númersins HP21-P-2021-002773 en í afritunum tveimur sé vísað til númersins HP21-P-2023-00723. Einnig sé misræmi milli skjalanna í tilvísunum merktum Asunto, en efst í staðfestingu á afritum sé vísað til HP-21-P-201-002723 en í afritunum tveimur til HP-21-P-2023-00723. Þetta ósamræmi rýri traust skjalanna. Afritin af boðun í fyrirtöku beri þess einnig bæði merki að hafa verið tekin með myndavél eða síma þar sem til staðar sé linsubjögun í textanum. Þetta sé óvenjulegt fyrir afrit af opinberum skjölum frá Venesúela. Allir blautstimplar á skjölunum fjórum séu óskýrir og það sé óvenjulegt fyrir stimpla frá yfirvöldum í Venesúela. Óskýrleiki stimplanna skýrist ekki af mistökum við stimplun því þeir séu allir sama marki brenndir. Þegar skjölin séu skoðuð saman og tillit tekið til allra þeirra atriða sem fram komi í skýrslunni verði að meta skjölin ótraust. 

Með tölvubréfi, dags. 9. ágúst 2024, sendi kærunefnd skjalarannsóknarskýrsluna til kærenda og gaf þeim færi á að koma að andmælum eða athugasemdum. Hinn 14. ágúst 2024, bárust kærunefnd athugasemdir kærenda ásamt fylgigögnum. Í athugasemdum kemur m.a. fram að dómstóll í Venesúela hafi ekki viljað gefa þeim frumrit af boðun í fyrirtöku heldur hafi látið þau hafa útprentuð afrit og til að staðfesta að þetta væru frumrit þá hefði skjalið verið stimplað með fjórum stimplum að framan og aftan á skjali og svört pennastrik dregin á milli stimplanna. Öll staðfest afrit séu prentuð og staðfest með þessum hætti. Þess konar skjöl séu ekki með QR kóða. Slík skjöl séu heldur ekki sett á neinn sérstakan pappír. Einungis skírteini úr háskóla og skjöl sem þurfi að staðfesta með apostille undirritun komi á sérstökum pappír með QR kóða. M og K hafi önnur skjöl m.a. fæðingarvottorð og skráningu á fyrirtæki þeirra sem ekki beri QR kóða heldur séu með stimplum. Hvað varði mistök í skráningu dagsetninga á toppi afrits um boðun í fyrirtöku, dags. 14. júní 2024, geti þau skýrst af því að dagsetning málsins sé á árinu 2023 en óskað hafi verið eftir skjalinu árið 2024. Kærendur hafi óskað eftir því við lögfræðing sinn í Venesúela að fá þessi mistök leiðrétt. Skjalið sem ber með sér að vera yfirlýsing sé skjal sem hafi verið lagt inn til dómstólsins til að óska eftir gögnum málsins gegn M og það hafi orðið villa í að skrifa númer málsins. Villan hafi falið í sér að vitlaust ártal hafi verið skrifað en númer málsins hafi verið rétt. Lögfræðingur sem hafi skrifað skjalið með umboð frá M og K sem fylgi nú með athugasemdum þeirra. Röng númer hafi verið skrifuð í gagnabeiðni til dómstóls og óskað hafi verið eftir réttum skjölum frá dómstólnum. M og K lögðu fram afrit af skjölum sem bera með sér að vera m.a. umboð til lögmanns þeirra. Með tölvubréfi, dags. 16. ágúst 2024, barst kærunefnd afrit af uppfærðum fylgigögnum frá kærendum. Kærunefnd barst afrit af skjali sem ber með sér að vera ný staðfesting á afritum um tvær boðanir í fyrirtöku og nýja beiðni lögmanns kærenda um afhendingu skjalanna frá dómstólnum í Venesúela. Þegar hin tvö afrit af staðfestingu á afritum sem kærendur hafa lagt fram við meðferð mála sinna hjá kærunefnd eru borin saman má sjá töluverðan mun á texta og uppsetningu skjalanna. Þar má m.a. nefna að skjaldamerki á fyrra skjalinu virðist vera, líkt og greinir í skjalarannsóknarskýrslu, afritað á skjalið þar sem grár kassi er í kringum merkið. Á síðara skjali er skjaldamerki í lit. Í haus fyrra skjalsins er República Bolivariana de Venezuela ritað í lágstöfum fyrir utan þrjá stafi en í síðara skjalinu eru orðin öll rituð í hástöfum. Þá eru dagsetning, málsnúmer og titlar á skjölunum með ólíka uppsetning. Heiti dómstólsins er ritað með mismunandi hætti hvað varða há- og lágstafi og einnig starfsheiti ritara dómstólsins sem ritar undir sitthvort skjalið. Með tölvubréfi, dags. 19. ágúst 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum hvað varðar hin síðar framlögðu skjöl. Með tölvubréfi, dags. 20. ágúst 2024, bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá kærendum, þar sem fram kemur að þau hafi fengið skjölin frá dómstól í Venesúela og það hafi verið lögmaður þeirra sem hafi fengið skjölin afhent gegn umboði. Þau hafi ekki lagt fram skjöl með réttum upplýsingum í upphafi þar sem dómstóll hafi gert mistök í ritun málsnúmera. Hvað varðar mun á skjölunum tveimur sem bera með sér að vera staðfesting á afritum greina kærendur frá því að skjölin hafi komið svona frá dómstól, m.a. hvað varði skjaldamerki og að öll mistök í skjölunum séu stafsetningarvillur. Hvað varðar málsnúmerin tvö sem birtast í nýrri staðfestingu á afritum greina kærendur frá því að tvö málsnúmer séu tengd við M vegna málsins gegn honum.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga

Frásagnir M og K af stöðu M innan stjórnmálaflokksins […] og hótunum, ofbeldi og áreiti tengdum þátttöku þeirra í starfi stjórnmálaflokksins og í mótmælum hafa tekið töluverðum breytingum á milli viðtala hjá Útlendingstofnun og þeirra viðbótarupplýsinga sem M og K hafa veitt við spurningum kærunefndar. Þá hafa M og K lagt fram ótraustvekjandi skjöl til að styðja við breytta frásögn sína fyrir kærunefnd. Kærunefnd telur það misræmi, sem varðar kjarna frásagna M og K draga verulega úr trúverðugleika frásagna þeirra og þýðingu þeirra fyrir úrlausn málsins.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera aðili í stjórnmálaflokknum […]. M kvaðst hafa opinberað stjórnmálaskoðanir sínar á fundum flokksins og í kröfugöngum þar sem hann hafi talað. Hann hafi verið virkur á fundum með stjórnmálaflokknum en hann hafi ekki verið háttsettur innan flokksins en hafi verið að vinna mikið í kringum kosningar og slíkt. Aðspurður um hvernig hann hafi talað í kröfugöngum kvaðst kærandi hafa verið að styðja kennara og að þau hafi verið að reyna breyta ástandinu í landinu. M kvaðst þekktur í sínu fylki fyrir starf sitt fyrir flokkinn en ekki utan þess. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði M fram afrit af bréfi, dags. 10. janúar 2023, undirrituðu af nafngreindum aðalritara flokksins í […] fylki þar sem fram kemur að M sé titlaður aðgerðarsinni innan flokksins og hafi verið meðlimur stjórnmálaflokksins síðan 10. janúar 2020. Þá lögðu kærendur m.a. fram bréf um að þau hafi tekið þátt í mótmælum 28. september 2022. Í viðbótarupplýsingum sem bárust kærunefnd 22. mars 2024, kemur m.a. fram að M hafi formlega gengt stöðu aðalritara flokksins. Hlutverk M hafi verið að sækja um leyfi fyrir hátíðarhöldum og mótmælum. M lagði m.a. fram afrit af nýju bréfi, dags. 2. febrúar 2024, undirrituðu af forseta stjórnmálaflokksins, um að M hafi verið skipulagsritari flokksins í […] fylki þar til 10. febrúar 2023. Framangreind bréf bera ólík kennimerki stjórnmálaflokksins í höfuð bréfanna og mismunandi stimpla til staðfestingar undirskriftum þeirra sem bréf rita. Í viðbótarupplýsingum, sem bárust kærunefnd 22. júlí og 7. ágúst 2024, kemur fram að staða M innan flokksins hafi verið þriðja æðsta staðan í […] fylki, á eftir forseta flokksins og aðalritara, og að hann hafi ekki verið þekktur á landsvísu. Framangreint misræmi og breytingar í frásögn M dregur úr trúverðugleika hennar, þá verður að teljast ólíklegt að einstaklingur sem gegni þriðja æðsta embætti stjórnmálaflokksins í […] fylki sé einungis þekktur innan þess fylkis. 

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu M og K frá því að hafa tekið þátt í kröfugöngu 28. september 2022. Sama dag, þegar þau hafi verið á heimleið úr vinnu, hafi tveir ónafngreindir einstaklingar á mótorhjólum, með byssu og í bolum merktum PSUV, ráðist á þau. K hafi þekkt andlit þeirra úr kröfugöngunni en ekki vitað hverjir þeir hafi verið. Daginn eftir, 29. september 2022, hafi nágrannar M og K sagt þeim nöfn mannanna og að þeir hafi verið þekktir fyrir að gera skítverkin fyrir ríkisstjórnina. Þessir tveir einstaklingar hafi svo farið að hóta og kúga M og K og hafi sent aðra úr sama stjórnmálaflokki og fjölskyldumeðlimi sína til að hóta þeim. Í byrjun janúar 2023, hafi M verið á leið til vinnu þegar að fjórir ótilgreindir menn hafi veist að M, kallað hann Araba og hótað honum og dóttur hans ofbeldi og lífláti. M hafi eining tilkynnt þetta atvik til lögreglu. M og K lögðu fram afrit skjala sem bera með sér að vera lögregluskýrslur frá Venesúela máli sínu til stuðnings. Í fyrri skýrslu, dags. 29. september 2022, kemur fram að M og K hafi lagt fram kæru gegn tveimur nafgreindum mönnum, X og Y, vegna árásar deginum áður. Í seinni skýrslu, dags. 5. janúar 2023, kemur fram að M leggi fram kæru á hendur hópi fólks sem hafi hótað honum ofbeldi og lífláti. Ekkert kemur fram um að M telji þá hafa tengsl við X og Y. Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar, dags. 7. júní 2024, kemur fram að þrír nafngreindir einstaklingar, R, S og T og fjórði ótilgreindur einstaklingur hafi áreitt M í janúar 2023. M og K hafi vitað að árás í september og hótanir gegn M í janúar 2023 hafi tengst af því að M hafi verið hótað af sömu einstaklingum og hann hafi kært fyrir árásina, (X og Y) ásamt einum ónafngreindum einstakling. M og K greindu einnig frá því að fimm ofangreindir einstaklingar, X og Y og R, S og T hafi hótað þeim eftir fyrra atvikið. Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar, dags. 22. júlí og 7. ágúst 2024, kemur fram að það hafi verið X og Y sem hafi ráðist á þau í september 2022 og R, S og T ásamt einum ónafngreindum einstaklingi hafi hótað M í janúar 2023. M og K hafi ekki þekkt hina síðarnefndu og því hafi þau ekki geta gefið upp nöfn þeirra þegar þau hafi lagt fram kæru hjá lögreglunni. M og K hafi sagt lögreglu að þetta hafi verið einstaklingar í sama hópi og X og Y og væru ættingjar þeirra. M og K hafi fengið vitneskju um hverjir R, S og T hafi verið þegar þau hafi séð nöfn þeirra á samfélagsmiðlum PSUV stjórnmálaflokksins í október 2023. M og K hafi fengið vitneskju um það eftir að þau hafi yfirgefið Venesúela  að X og Y, og R, S og T hafi verið að vinna fyrir tvo nafngreinda þingmenn PSUV stjórnmálaflokksins og að það hafi verið X og Y sem hafi ráðist á M og K í september 2022 og í janúar 2023. M og K lögðu fram myndir af einstaklingum sem þau kveða vera X og Y og R, S og T. Af fimm myndum sem kærendur lögðu fram bera tvær þeirra með sér að vera af samfélagsmiðla reikning PSUV í […]. Ein myndanna ber einhvers konar merkingu PSUV. Hvergi kemur fram hvaða einstaklingar séu á myndunum að öðru leyti en að kærendur hafi skrifað nöfn þeirra í skýringu með myndunum. Á þeim myndum sem teknar eru af samfélagsmiðlareikningi PSUV, kemur ekki fram nafn einstaklinga sem eru á myndinni. Framlagðar myndir hafa því lítið sönnunargildi til stuðnings frásögn M og K hvað varðar tengsl árásarmanna við PSUV stjórnmálaflokkinn. Af framangreindu virtu telur kærunefnd gæta töluverðs misræmis í frásögn kærenda um það hvernig þau hafi fengið vitneskju um nöfn meintra gerenda, hverjir hafi verið að verki í september 2022 og janúar 2023 og um stöðu X og Y, og R, S og T og tengsl við PSUV stjórnmálaflokkinn, sem dregur úr trúverðugleika frásagnar M og K hvað framangreint varðar.

Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar, dags. 7. júní 2024, kemur fram að M hafa verið stöðugt áreittur af leiðtogum PSUV stjórnmálaflokksins og að ríkisstofnanir, m.a. skattayfirvöld, hafi tekið verslun kærenda til skoðunar og eftir hverja heimsókn hafi fylgt símtal frá meðlimum PSUV stjórnmálaflokksins sem hafi hótað þeim. Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar, dags. 22. júlí og 7. ágúst 2024, er greint ítarlegra frá heimsóknum og aðgerðum framangreindra ríkisstofnanna og því að fulltrúar skattayfirvalda hafi mætt með vopnaða hermenn með sér að skoða kvittanir og nótur í versluninni og hafi hengt tilkynningu um þær aðgerðir framan á verslunina. M og K greindu ekki frá hinu stöðuga áreiti leiðtoga PSUV stjórnmálaflokksins, skattayfirvalda og neytendasamtaka í viðtali hjá Útlendingastofnun þrátt fyrir þá þýðingu sem slíkt gæti hafa haft fyrir umsókn kærenda um vernd. Og þrátt fyrir að fyrir að hafa verið ítarlega spurð út í hótanir gegn þeim og verið gefnar leiðbeiningar um að gefa upp allar upplýsingar sem gætu haft þýðingu fyrir umsóknir þeirra um vernd jafnvel þó ekki yrði sérstaklega spurt um það. Það að kærendur minnist fyrst á þetta sem svör við almennum spurningum kærunefndar um tímasetningu ofbeldis gegn þeim og tengslum árása og hótana við stjórnmálaskoðanir kærenda, dregur úr trúverðugleika frásagnar þeirra hvað þetta varðar. Þá hafa kærendur ekki sýnt fram á að það hafi verið óeðlilegt að stofnanir ríkisins líkt og neytendasamtökin, stofnun sem gæti félagslegra og hagrænna réttinda borgara og skattayfirvöld sem hafi m.a. það hlutverk að skoða skattalagabrot hafi komið í verslun kærenda í tengslum við hlutverk þeirra.

Í viðbótarupplýsingum til kærunefndar, dags. 22. júlí og 7. ágúst 2024, Þá kemur fram að forseti og aðalritari flokksins hafi orðið fyrir áreiti af hálfu yfirvalda í Venesúela, en kærendur hafi orðið fyrir meira áreiti, ofbeldi og ofsóknum en aðrir meðlimir stjórnmálaflokksins þar sem M sé af arabískum uppruna og hafi samkvæmt þessum aðilum ekki rétt á að taka þátt í stjórnmálastarfi. Frásögn M og K ber með sér að forseti og aðalritari flokksins séu enn búsettir í Venesúela. Í ljósi landaupplýsinga, telur kærunefnd útskýringar M og K á því af hverju þau hafi orðið fyrir ofbeldi og ofsóknum frekar en einstaklingar í æðri embættum í stjórnmálaflokknum ótrúverðugar.

Þá hafa M og K annað hvort veitt ófullnægjandi skýringa eða engar skýringar á meginatriðum sem fram koma um rannsókn á framlögðum skjölum í skýrslu skilríkjarannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum, m.a. að hin staðfestu afrit sem þau kveða koma frá dómstól séu tekin á myndavél eða með síma, athugasemdir varðandi staðsetningu skjaldamerkis á sömu skjölum og uppsetningu, leturgerð og uppsetning texta sjalanna. M og K hafa ekki gefið skýringar á athugasemdum hvað varðar skjal sem ber með sér að vera staðfesting á framangreindum afritum, einkum hvað varðar það að skjaldarmerki sé afritað úr öðru skjali, um dagsetningu í haus skjalsins, það að staðfesting á afritum, sem á að hafa verið útbúin af dómstól, beri með sér að hafa afrit af sama og samskonar texta neðst í skjalinu og er í fyrstu setningu í beiðni um gögn til dómstólsins sem útbúin var af lögmanni kærenda og bjögun sé í öllum stimplum á öllum fjórum skjölunum sem ekki verði skýrt með mistökum við stimplun. Það dregur einnig úr trúverðugleika frásagnar kærenda hvað þetta varðar að skjöl sem send voru kærunefnd með leiðréttum upplýsingum beri einnig tiltekið ósamræmi og eru ólík í formi og uppsetningu miðað við skjölin sem lögð voru fram á fyrri stigum málsins og voru rannsökuð af lögreglunni. Af framangreindu leiðir að skjölin verða ekki lögð til grundvallar í máli kærenda. 

Af ofangreindu er ljóst að frásagnir kærenda hafa tekið töluverðum breytingum eftir því sem hefur liðið á meðferð máls þeirra hjá íslenskum stjórnvöldum. Verulegt misræmi hefur verið í frásögnum kærenda um atriði sem þau ættu að geta verið staðföst um. Þá hafa kærendur lagt fram gögn sem metin hafa verið ótraustvekjandi af lögreglu til að styðja við breytta frásögn sína fyrir kærunefnd og ekki gefið fullnægjandi skýringar á niðurstöðum lögreglu hvað þau skjöl varðar. Þau viðbótargögn sem hafa verið lögð fram hjá kærunefnd eftir því sem liðið hefur á meðferð mála kærenda hjá kærunefnd, s.s. myndir af skemmdum á bifreið, mynd af framhlið á verslun kærenda, afrit af ræðum sem M kveðst hafa haldið fyrir hönd stjórnmálaflokksins […], myndir sem kærendur kveða vera af nafngreindum einstaklingum sem eiga að hafa beitt kærendur ofbeldi og hótunum, hafa ekki rennt nægilegum stoðum undir breytta frásögn M og K. Það er því mat kærunefndar að sú frásögn M og K að M hafi í tvígang verið boðaður í fyrirtöku hjá dómstól í Venesúela vegna ákæru gegn honum vegna lögbrota gegn PSUV stjórnmálaflokknum og venesúelska ríkisins ótrúverðug og verður hún ekki lögð til grundvallar í málinu. Þá verður ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi gengt háttsettu embætti innan stjórnmálaflokksins […], að M og K hafi verið þekkt fyrir starf sitt hjá flokknum og hafi sætt stöðugu ofbeldi, hótunum og áreiti vegna stjórnmálaskoðana sinna í heimaríki af hálfu stjórnvalda og annarra aðila þeim tengdum. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að samkvæmt upplýsingum um heimaríki kærenda, m.a. skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023, hafa öryggissveitir stjórnvalda ítrekað ráðist gegn mótmælendum í landinu síðan árið 2014 en tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu frá þeim tíma. Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa ekki til kynna að almennir meðlimir stjórnarandstöðuflokka í Venesúela veki athygli yfirvalda af þeim sökum einum. Yfirvöld hafi frekar beint spjótum sínum að aðilum sem séu háttsettir eða í forsvari fyrir stjórnarandstöðuflokka.

Með vísan til frásagnar M og K, gagna málsins og heimilda um heimaríki þeirra telur kærunefnd hins vegar ekki ástæðu til þess að draga í efa að M og K hafi verið skráð í stjórnarandstöðuflokkinn […] og tekið þátt í starfi flokksins. Þá telur kærunefnd ekki hægt að útiloka að M og K hafi orðið fyrir áreiti og ofbeldi af hálfu tilgreindra og ótilgreindra aðila sem styðji stjórnvöld og hafi tengsl við glæpahóp. M og K hafa þó ekki leitt líkum að því að umræddar hótanir og ofbeldi hafi verið að undirlagi stjórnvalda. Kærendur lögðu jafnframt fram gögn sem bera með sér að þau hafi leitað til lögreglu vegna framangreindra hótana og ofbeldis og að yfirvöld hafi brugðist við með því að gefa út handtökuskipan á hendur þeim aðilum sem M og K hafi nafngreint sem árásaraðila. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Er það mat kærendur að framangreindu mati á trúverðugleika frásagna M og K að þau geti leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki telji þau þörf á því.

Í viðtölum sínum greindi M frá því að hafa orðið fyrir fordómum vegna uppruna síns. Þá greindu M og K frá því að þegar hafi verið ráðist þau og þegar M hafi verið hótað hafi hann m.a. verið kallaður Arabi sem hefði ekki rétt á að mótmæla stjórnvöldum í landinu. Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins. Það er því mat kærunefndar, með vísan í framangreint mat á trúverðugleika frásagna þeirra, að aðstæður M og K vegna uppruna þeirra séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

M og K bera fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda snúi þau aftur til heimaríkis. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtali við barnið B og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur kæranda A og börnunum B og C til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að A og börnin B og C muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska A og barnanna B og C er það þeim fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barnanna B og C í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börnin B og C uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

  1. Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga 

Kærendur byggja á því að meta verði stöðu kærenda og barnanna B og C með hliðsjón af viðeigandi gögnum um Venesúela þar sem óöruggt ástand hafi ríkt í fjölda ára. Í ljósi stjórnmálabakgrunns, stöðu M og K sem aðgerðarsinna og frásagna M og K sé ljóst að staða þeirra, A og barnanna B og C sé sérstök í samanburði við hinn almenna borgara í Venesúela og langt um lakari. M og K hafi tvívegis kært til lögreglu án þess að framganga hafi náðst í málunum á meðan þau hafi búið við linnulausar líflátshótanir í millitíðinni sem gerði það að verkum að A og börnin B og C hafi dvalið heima fyrir í marga mánuði. Líflátshótanir sem kærendur og börnin B og C hafi búið við jafnist til ómannúðlegrar meðferðar í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. 

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. 

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barnanna B og C er ljóst að þau atvik sem M og K hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hvað varðar athugasemdir í greinargerð um að ekki hafi verið litið til þess að kærendur og börnin B og C hefðu ekki aðgang að aðstoð stjórnvalda við meðferð mála þeirra hjá Útlendingastofnun er ljóst að M og K greindu frá því að hafa rekið eigið fyrirtæki og haft ágætis tekjur, þau kváðust ekki hafa leitað eftir aðstoð stjórnvalda og haft nægar tekjur til þess að greiða fyrir grundvallarþjónustu og þarfir sínar. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum M og K sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barnanna B og C leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Við það mat hefur verið litið sérstaklega til stjórnmálaskoðana og þátttöku M og K.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur og barnið B frá því að hafa verið búsett í […][…] fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsinum er […] fylki í norðvesturhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börnin B og C hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og börnin B og C eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barnanna B og C séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börnin B og C uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

  1. Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börnin B og C eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

  1. Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

  1. Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. 

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

  1. Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barnanna B og C og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu M og K frá því að vera almennt við góða heilsu og ekki taka nein lyf að staðaldri. Þau hafi leitað til heilbrigðisþjónustu á einkaspítölum ef þess hafi þurft. Þau hafi þurft að greiða fyrir þá þjónustu sem þau hafi getað gert. K greindi frá því að hún hafi verið með verki í baki og höfðinu eftir ofbeldi sem hún hafi orðið fyrir en hafi verið skárri eftir að hafa fengið meðferð. Þá greindi K frá því að vera stressuð og ringluð og að hún fengi stundum martraðir að ofbeldismenn í Venesúela muni skaða börn hennar. M og K greindu frá því að barnið B væri við góða heilsu. K greindi frá því að barnið C hafi verið í meðferð vegna veikinda tengdum nýrum í Venesúela en væri góð núna og það hefði ekki áhrif í dag. M og K hafi getað keypt þau lyf sem C hafi þarfnast. M greindi frá því að C hafi verið skoðuð á Íslandi og niðurstaða hafi verið að það væri allt í góðu. Kærandi A og barnið B greindu frá því að vera heilsuhraust. A hafi farið í kviðslitsaðgerð fyrir um tíu árum en það hefði ekki áhrif á daglegt líf hennar í dag.

Í viðbótarathugasemdum kærenda til kærunefndar greina kærendur frá því að C hafi farið í ómskoðun á nýra og farið í blóð- og þvagprufur hér á landi. C hafi verið greind með vandamál í skjaldkirtli og þurfi að taka lyfið Levaxin allt lífið. Þá greina M og K frá því að barnið B gangi nú til sálfræðings vegna alvarlegra sálrænna vandamála vegna þeirra áfalla sem hún hafi upplifað í heimaríki.

M og K lögðu fram heilsufarsgögn frá Íslandi við meðferð mála sinna hjá kærunefnd. Þau lögðu fram nótur frá Göngudeild sóttvarna varðandi A, dags. 18. til 28. apríl 2023, þar sem kemur m.a. fram að A hafi undirgengist læknisskoðun. A hafi ekki áhyggjur af andlegri og líkamlegri heilsu en finni stundum fyrir stingjum í brjóstkassa sem komi óreglulega. A hafi farið í kviðslitsaðgerð þegar hún hafi verið níu til tíu ára og að hún sé bólusett fyrir mislingum, mænuveiki og barnaveiki. Einnig voru lagðar fram nótur frá Göngudeild sóttvarna varðandi B, dags. 17. til 28. apríl 2023, þar sem kemur m.a. fram að B hafi undirgengist læknisskoðun. B hafi áhyggjur af líkamlegri heilsu sinni þar sem hún hafi óreglulegar og miklar blæðingar. B hafi farið í sónar í Venesúela fyrir um ári síðan sem hafi sýnt blöðrur á eggjastokkum og hún hafi verið greind með PCOS. B hafi fengið hormónatöflur, en K hafi látið hana hætta meðferð eftir 10 daga þar sem B hafi ekki fengið blæðingar. B hafi verið há í blóðsykri og M og K hafi verið ráðlagt að fara með B til innkitlasérfræðings en þau hafi ekki látið verða af því. Rannsókn á blóðsykri hafi verið gerð í læknisskoðun hér á landi og allt hafi komið eðlilega út. Samkvæmt K sé B almennt kvíðin og stressuð. Þá kemur m.a. fram að B sé ekki með neina sjúkdóma, taki einungis inn vítamín og að ekki sé þörf á tíma hjá sálfræðingi. B sé bólusett við mislingum, mænuveiki og barnaveiki. B muni fá tíma hjá lækni vegna vandamála með blæðingar. Þá voru lagðar fram nótur frá Göngudeild sóttvarna varðandi C, dags. 11. apríl til 2. október 2023, og nótur úr sjúkraskrá C, dags. 1. febrúar til 23. maí 2024. Í nótum Göngudeildar kemur m.a. fram C hafi undirgengist læknisskoðun og sé bólusett fyrir mislingum, mænuveiki, berklum og barnaveiki. C sé með nýrnasjúkdóm sem hafi verið greindur þegar hún hafi verið átta mánaða. C hafi verið í eftirliti hjá nýrnalæknum fyrst á þriggja mánaða fresti og svo á sex mánaða fresti. Sjúkdómurinn lýsi sér þannig að C tapi steinefnum úr þvagi og hún fái Kalíumsítrat mixtúru kvölds og morgna vegna þessa. Í nótum úr sjúkraskrá C, kemur m.a. fram að hún sé á lyfjum vegna skjaldkirtils og að hún hafi verið í skoðun hjá læknum vegna gruns um renal tubular acidosis og í maí 2024 hafi ekki verið merki um veikindi eftir að hún hafi verið án lyfja. C sé að lengjast og þyngjast og hafi góða matarlyst.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðiðþau eða börnin B og C glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið kærendur eða börnin B og C þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Áréttað er að meðferð telst ekki óaðgengileg þó að greiða þurfi fyrir hana. Verður ekki annað séð en að kærendur og börnin B og C hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana m.a. heilbrigðisþjónustu sérfræðilækna og þau hafi haft aðgengi að nauðsynlegum lyfjum. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á þau eða börnin B og C hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. 

Í viðtölum sínum greindu kærendur M og K frá því að hafi rekið raftækjaverslun og þau hafi fengið um 1000 til 1700 dollara í mánaðartekjur af rekstri verslunarinnar. Þau hafi búið í húsi sem þau hafi leigt og hafi haft efni á mat og annarri nauðsynjavöru. M og K séu ekki skuldug og hafi selt íbúð í þeirra eigu til að fjármagna ferðalag til Íslands. A og B hafi verið í einkaskóla. K greindi frá því að eiga bróður í Venesúela. M greindi frá því að fjölskyldan hafi verið vel stödd fjárhagslega og haft það gott þar til atvikin hafi átt sér stað. M og K neituðu því bæði að hafa leitað aðstoðar stjórnvalda eða annarra um framfærslu. Í viðtölum sínum hjá Útlendingastofnun greindu kærandi A og barnið B frá því að hafa verið í skóla og tómstundum og að það hafi alltaf verið til nægur matur heima hjá þeim.

Af gögnum málsins verður talið kærendur M og K hafi getað framfleytt sér, kæranda A og börnunum B og C í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. 

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður kæranda A og barnanna B og C í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barnanna B og C í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börnin B og C hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnunum B og C dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

  1. Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu, að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 38. gr. og 39. gr. laganna. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-lið 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi er, ekki liggi fyrir ástæður sem geti leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Samkvæmt 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga gildir ákvæði 2. mgr. 74. gr. ekki um útlending sem m.a. á sjálfur þátt í því að niðurstaða fáist ekki innan tímamarka sbr. d-liður 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærendur lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín hér á landi 14. febrúar 2023. Frá því að kærendur lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, dags. 1. nóvember 2024, eru liðnir rúmlega 20 mánuðir. Kærendur teljast því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita kærendum og börnum þeirra B og C dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 74. gr. laga um útlendinga.

Hinn 14. febrúar 2024 kærðu kærendur ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. janúar 2024, um að synja þeim og börnum þeirra B og C um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í greinargerð kærenda, sem barst kærunefnd 4. mars 2024, var byggt á sömu málsatvikum og málsástæðum sem fram höfðu komið í viðtölum hjá Útlendingastofnun og greinargerð kærenda hjá Útlendingastofnun. Með tölvubréfi, dags. 22. mars 2024, lögðu kærendur fram nýjar upplýsingar og ný gögn fyrir kærunefnd til stuðnings umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Mál kærenda var tekið til skoðunar hjá kærunefnd 3. júní 2024. Með tölvubréfi, dags. 4. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kærendum, einkum hvað varðaði nýjar upplýsingar og gögn sem kærendur höfðu lagt fram hjá nefndinni 22. mars 2024. Svör kærenda ásamt frekari fylgiskjölum bárust kærunefnd 7. júní 2024. Við skoðun á nýju gögnunum og í ljósi svara kærenda taldi kærunefnd ástæðu til að óska eftir frumriti nýju gagnanna, einkum tveimur boðunum í fyrirtöku hjá dómstól í Venesúela vegna máls sem kærendur greindu frá að hafi verið höfðað gegn M. Með tölvubréfi, dags. 12. júní 2024, óskaði kærunefnd eftir frumritum gagnanna í því skyni að senda þau til rannsóknar hjá skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum til að meta sönnunargildi þeirra. Var kærendum gefin frestur til mánudagsins 19. júní 2024 til að leggja gögnin fram hjá nefndinni. Með tölvubréfi, dags. 18. júní 2024, tilkynntu kærendur að frumrit skjalanna hafi verið send með póstþjónustunni DHL og að áætluð afhending gagnanna væri 1. júlí 2024. Í tölvubréfi fylgdi hlekkur á rakningu póstsendingarinnar og fram kom að gögn hafi verið send til talsmanns kærenda 17. júní 2024. Í ljósi framangreinds veitti kærunefnd frest til að afhenda gögnin til kærunefndar þangað til þau myndu berast til landsins. Með tölvubréfi, dags. 1. júlí 2024, óskaði kærunefnd eftir afhendingu gagnanna. Samkvæmt rakningar upplýsingum póstsendingarinnar kom fram að sendingin hefði borist talsmanni kærenda 24. júní 2024, eða tæpri viku áður. Hinn 2. júlí 2024 barst kærunefnd afrit af framangreindum skjölum ásamt frumriti af staðfestingu á afritum frá dómstól í Venesúela og beiðni lögmanna kærenda um gögn frá dómstólnum. Hinn 3. júlí 2024, sendi kærunefnd gögn til rannsóknar til skilríkjarannsóknarstofu flugsstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Kærunefnd taldi einnig ástæðu til að óska eftir ítarlegri upplýsingum frá kærendum í ljósi nýrra upplýsinga sem fram komu í svörum kærenda 7. júní 2024. Með tölvubréfi, dags. 3. júlí 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Kærendum var veittur frestur til 22. júlí 2024 að leggja fram svör við spurningum kærunefndar. Með tölvubréfi, dags. 22. júlí 2024, bárust kærunefnd svör kærenda. Í skýrslu, dags. 8. ágúst 2024, sem barst kærunefnd sama dag, var niðurstaða rannsóknar skilríkjarannsóknarstofu sú að nýju skjölin, sem kærendur höfðu lagt fram hjá kærunefnd 22. mars 2024, væru ótraustvekjandi og nánari rök færð fyrir þeirri niðurstöðu í samræmi við framangreint. Með tölvubréfi, dags. 9. ágúst 2024, óskaði kærunefnd eftir athugasemdum kærenda við skýrslunni. Með tölvubréfi, dags. 14. ágúst 2024, gáfu kærendur skýringar á nokkrum atriðum sem fram komu í rannsóknarskýrslunni. Með tölvubréfi, dags. 16. ágúst 2024, lögðu M og K fram afrit af nýrri staðfestingu á afritum og beiðni til dómstólsins, þar sem dagsetningar og málsnúmer hafi verið leiðrétt í samræmi við niðurstöður rannsóknarskýrslu lögreglunnar. Við skoðun á hinum nýju gögnum taldi kærunefnd ástæðu til að óska eftir frekari upplýsingum um hin nýju gögn og frumritum af þeim. Var þess óskað með tölvubréfi, dags. 19. ágúst 2024, og kærendum gefin frestur til að verða við beiðninni fram að lokum opnunartíma skrifstofu kærunefndar 20. ágúst 2024. Kærendur svöruðu samdægurs og greindu frá því að frumrit skjalanna væru í Venesúela hjá lögmanni kærenda sem hafi fengið þau í hendurnar þremur til fjórum dögum áður. Ætla mætti að þau yrðu hjá kærunefnd eftir u.þ.b. viku. Í ljósi framangreinds féll nefndin frá ósk sinni um að fá afhent frumrit gagnanna og einungis var óskað eftir útskýringum kærenda á skjölunum og efni þeirra. Með tölvubréfi, dags. 20 ágúst 2024, bárust kærunefnd útskýringar kærenda. 

Með tölvubréfi, dags. 26. september 2024, óskaði kærunefnd eftir andmælum kærenda við hugsanlegri beitingu d- liðar 2. mgr. og d-liðar 3. mgr 74. gr. laga um útlendinga. Í andmælum kærenda, sem bárust kærunefnd 3. október 2023, kemur fram að kærendur mótmæli því að framangreind ákvæði eigi við í málum kærenda. Kærendur hafi veitt allar upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls þeirra frá upphafi og hafi veitt allar upplýsingar sem kærunefnd hafi óskað eftir innan tilskilins frests. Kærendur vísa til þess að M hafi fengið boðanir í fyrirtöku fyrir rétti þar sem hann hafi meðal annars verið sakaður um að hafa beitt sér gegn venesúelska ríkinu. M hafi útskýrt með ítarlegum hættu hvers vegna hann hafi ekki fengið vitneskju um framangreindar boðanir fyrr en á kærustigi. Ekkert bendi til þess að kærendur hafi haft vitneskju um þessar boðanir á meðan mál þeirra hafi verið til meðferðar hjá Útlendingastofnun, sérstaklega í ljósi þess að þær hafi verið gefnar út eftir að kærendur hafi yfirgefið heimaríki. Kærendur hafi komið fram framangreindri málsástæðu ásamt gögnum til nefndarinnar 22. mars 2024. Talsmaður kærenda hafi þótt þörf á frekari samskiptum við kærendur vegna hinna nýju gagna, könnun á frekari gagnaöflun og þörf á viðbótargreinargerð. Telja kærendur ótækt að framangreint sé eina ástæða þess að um sé að ræða töf í máli kærenda í skilningi d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa því á bug að þau hafi borið fram fleiri nýjar málsástæður aðrar en þá einu um boðanir kæranda M til fyrirtöku. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hafi kærendur lagt fram vottorð um störf og stöðu M í stjórnmálaflokknum […]. Kærendur hafi lagt fram þau gögn til að renna frekari stoðum undir málsástæðu M um að hann hafi verið þekktur og virkur í stjórnmálaflokknum. Frásögn M um stöðu hans hjá stjórnmálaflokknum hafi verið stöðug frá upphafi málsmeðferðar. Af framangreindu verði séð að ekki sé tilefni til beitingu d-liða 2. og 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Óumdeilt sé að kærendur teljist ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið sé í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá séu skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. uppfyllt enda hafi kærendur veitt allar upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins. Kærendur hafna því einnig að þau hafi sjálf átt þátt í því að niðurstaða í máli þeirra hafi ekki fengist innan tímamarka. Af framangreindu sé ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli skilyrði dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Verði komist að þeirri niðurstöðu að d-liður 3. mgr. 74. gr. eigi við byggja kærendur á því að víkja skuli frá því þar sem að sérstaklega standi á, sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að kærendur og börnin þeirra þrjú hafi verið á flótta í nær 20 mánuði. Fyrir liggi að M verði sóttur til saka fyrir að hafa m.a. beitt sér gegn ríkisstjórninni. Börn teljist til sérstaklega viðkvæm hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem börnunum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar eru um málefni þeirra. Kærendur vísa til ákvæða barnalaga, laga um útlendinga og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hvað þetta varðar. Kærendur telja að í ljósi stöðu þeirra sé líklegra en ekki að öryggi barna þeirra verði ekki tryggt í Venesúela og hagsmunum þeirra sé betur borgið hérlendis þar sem þau hafa dvalist í nær tvö ár.

Við mat á því hvort að skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt verður að líta til orðalags ákvæðisins þar sem ekki er að finna nánari útskýringar í lögskýringargögnum. Gerir ákvæðið þá kröfu að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins. Verður ekki annað ráðið en að hér sé gerð krafa um að útlendingur hafi veitt réttar upplýsingar frá upphafi málsmeðferðar og aðstoðað þannig við úrlausn málsins. Í þessu máli liggur fyrir að frá vinnslu málsins hjá Útlendingastofnun tóku frásagnir kæranda nokkrum breytingum um málsatvik, aðallega hvað varðar meinta árásarmenn, áreiti yfirvalda, ríkisstofnanna, þingmanns og leiðtoga stjórnarflokksins PSUV gagnvart kærendum og stöðu og mikilvægi M innan stjórnarandstöðuflokks í heimaríki en rétt er að geta þess að fjallað var um áhrif þess hvaða stöðu einstaklingar hafi í stjórnarandstöðu í heimaríki kærenda í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Framangreind málsatvik, sem fyrst komu fram hjá kærunefnd, áttu sér stað þegar kærendur voru enn búsett í Venesúela, þ.e. áður en þau mættu í viðtal hjá Útlendingastofnun. Þá lögðu kærendur fram afrit skjala fyrir nefndina 22. mars 2024 sem innihéldu upplýsingar um að M hefði verið ákærður í heimaríki sem hefðu getað haft veruleg áhrif á niðurstöðu málsins ef þær reyndust réttar. Við vinnslu málsins fyrir nefndinni var óskað eftir frumritum þessara skjala sem ekki bárust og kom síðar í ljós að kærendur höfðu þau frumrit ekki undir höndum. Þá leiddi rannsókn skjalarannsóknarstofu lögreglunnar á Suðurnesjum í ljós að umrædd skjöl væru ótraustvekjandi svo sem rakið er að framan. Þótt svo sú rannsókn hafi ekki leitt í ljós að umrædd skjöl væru fölsuð þá verður að hafa í huga að sú rannsókn var framkvæmd með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru við rannsókn sakamála. Verður ekki annað fullyrt í ljósi niðurstöðu skjalarannsóknar en að efni umræddra skjala sé ekki marktækt auk þess sem sérstaka athygli vekur að misræmi í tilvísunarnúmerum á skjölunum var lagfært milli þess að þau voru lögð fyrst fram fyrir nefndinni 22. mars 2024 og þegar ný afrit bárust 16. ágúst 2024 eftir að kærendum hafði verið kynnt niðurstaða skjalarannsóknar. Þá er það mat nefndarinnar að útskýringar kærenda séu ekki trúverðugar. Með vísan til þessa er það niðurstaða nefndarinnar að kærendur hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt kemur ekki til skoðunar hvort ákvæði 3. mgr. sömu greinar eigi við í málinu. 

Kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd að ekkert standi í vegi fyrir því að A og börnin B og C fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Þá er það niðurstaða kærunefndar með teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska A og barnanna B og C er það þeim fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns. Að mati kærunefndar eru því engar forsendur til að víkja frá kröfum framangreinds d-liðar 2. mgr. 74.gr., sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. 

Er því ekki heimilt að veita kærendum og börnunum B og C veitt dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins.

  1. Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

  1. Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. 

  1. Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barnanna B og C. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barnanna B og C þangað.

  1. Brottvísun og endurkomubann

  1. Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

  1. Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barnanna B og C um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barnanna B og C til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum M og K var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim, A og börnunum B og C frá Íslandi og ákvarða M og K endurkomubann hingað til lands. Var M og K gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M og K kváðust ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Þau kváðu brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér og börnum þeirra þar sem þau væru í hættu sneru þau aftur til heimaríkis.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem M og K gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barnanna B og C og endurkomubann kærenda M og K verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að M og K geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var M og K veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barnanna B og C til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda M og K fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

  1. Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barnanna B og C eru staðfestar. Endurkomubann kærenda M og K verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and B og C are affirmed. If the appellants M and K leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Sindri M. Stephensen           Þorbjörg I. Jónsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta