Mál nr. 79/2014 úrskurður 31. október 2014
Mál nr. 79/2014 Eiginnafn: Eldþóra
Hinn 31. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 79/2014 en erindið barst nefndinni 22. október:
Eiginnafnið Eldþóra (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eldþóru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eldþóra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.