Mál nr. 80/2014 úrskurður 31. október 2014
Mál nr. 80/2014 Millinafn: Skjöld
Hinn 31. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 80/2014 en erindið barst nefndinni 28. október:
Millinafnið Skjöld er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Skjöld uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Skjöld er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.