Mál nr. 36/2019 Úrskurður 24. apríl 2019
Mál nr. 36/2019 Eiginnafn: Neó (kk.)
Hinn 24. apríl 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 36/2019, en erindið barst nefndinni 17. apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Neó (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Neós, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.