Mál nr. 58/2022 Úrskurður 24. maí 2022
Mál nr. 58/2022 Eiginnafn: Adele (kvk.)
Hinn 24. maí 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2022 en erindið barst nefndinni 27. apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Adele (kvk.) er endingarlaust í eignarfalli, Adele. Ekki er þó rétt að líta svo á að nafnið brjóti þar með í bága við skilyrði eitt hér að framan þar sem slíkt endingarleysi þekkist í öðrum íslenskum kvenmannsnöfnum sem enda á -e, t.d. Salóme. Nafnið Adele telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Adele (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.