Hoppa yfir valmynd

Nr. 177/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 12. maí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 177/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21030005

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. mars 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, aðallega með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Til vara er gerð sú krafa að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. desember 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 28. desember 2020, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að henni hafði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 17. október 2019. Með umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 18. október 2019 til 17. október 2022 og ferðaskilríki útgefnu af grískum yfirvöldum með gildistíma til 11. ágúst 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun m.a. þann 13. janúar 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 15. febrúar 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 16. febrúar 2021 og kærði kærandi ákvörðunina þann 2. mars 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 11. mars 2021 ásamt fylgigagni. Viðbótargögn bárust frá kæranda þann 23. og 31. mars 2021 og 7. og 28. apríl og 5., 11. og 12 maí 2021.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Grikklands.IV. Málsástæður og rök kærandaÍ greinargerð kæranda vísar hún m.a. til viðtals síns hjá Útlendingastofnun. Þar hafi kærandi m.a. greint frá því að eftir að hún hafi hlotið vernd í Grikklandi hafi framfærsla til hennar stöðvast og hafi henni hvorki verið veitt húsnæði né hafi hún getað orðið sér úti um heilbrigðisþjónustu. Þá hafi hún ekki haft leyfi til að stunda atvinnu eða fengið upplýsingar um að hún þyrfti að afla sér skattnúmers. Kærandi hafi fengið afhent blað þar sem að henni hafi verið tilkynnt að allri framfærslu og húsnæðisaðstoð lyki eftir að hún fengi vernd. Kærandi hafi greint frá því að hún óttist smyglara sem hafi svikið fjölskyldu hennar í Grikklandi og að hún hafi birt mynd af smyglaranum á samfélagsmiðlasíðu til aðvörunar fyrir aðra flóttamenn. Smyglarinn hafi brugðist við með því að hóta kæranda og fjölskyldu hennar og beitt móður hennar ofbeldi. Kærandi vísar til gagna sem hún hafi lagt fram um umrædd samskipti. Þá óttist kærandi að vera í Grikklandi og telur að þar sé mikið um óreglu og að stúlkur séu ekki öruggar. Kærandi hafi verið þolandi fordóma og ofbeldis í Grikklandi. Þá hafi hún verið rænd síma sínum í strætisvagni þar í landi og þegar hún hafi leitað til lögreglunnar hafi henni verið vísað frá.

Kærandi krefst þess að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar um viðmið í ákvæði reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 sem taka skuli tillit til við mat á því hvenær sérstakar ástæður geti átt við í máli umsækjanda. Kærandi telur að endursending hennar til Grikklands geti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir hana, bæði líkamlegar og andlegar.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi mótmælir mati Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu hennar í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að hún hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá heilsufarskvillum, m.a. hafi hún greint frá andlegri vanlíðan og að hún hafi reynt að fremja sjálfsvíg þegar hún dvaldi í Grikklandi. Þá vísar kærandi til framlagðra heilsufarsgagna máli sínu til stuðnings. Kærandi gerir einnig athugasemd við mat stofnunarinnar á aðgengi hennar að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð, atvinnu og húsnæði í Grikklandi. Þá andmælir kærandi mati stofnunarinnar á að hún geti leitað á náðir lögreglu eða annarra yfirvalda telji hún á sér brotið. Kærandi vísar til þess að hún sé í aukinni hættu á að verða fyrir ofbeldi vegna stöðu sinnar sem flóttakona. Kærandi fjallar um aðstæður og réttindi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar til skýrslna alþjóðlegra stofnana máli sínu til stuðnings. Kærandi mótmælir afstöðu Útlendingastofnunar hvað varðar mat á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður í Grikklandi. Þá gerir kærandi athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið fjallað um úrskurði kærunefndar útlendingamála í málum nr. KNU19110022 frá 25. mars 2020 og KNU19110026 frá 20. maí 2020 sem vísað hafi verið til í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar. Þess í stað hafi stofnunin fjallað um úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU20110009 frá 10. desember 2020. Kærandi gerir athugasemd við rökstuðning stofnunarinnar í hinni kærðu ákvörðun og vísar til 22. gr. stjórnsýslulaga máli sínu til stuðnings og til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU19100032 frá 29. janúar 2020, þar sem kærunefnd hafi tekið undir gagnrýni kæranda að skort hafi á rökstuðning hvað varðar tilvísun í fyrri úrskurði nefndarinnar. Þá byggir kærandi á því að mál hennar skuli tekið til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Endursending kæranda þangað teljist því vera brot á ákvæðinu og gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um bann við endursendingu (non-refoulement).Til vara er gerð sú krafa að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20110019 frá 4. febrúar 2021 þar sem nefndin hafi komist að því að upplýsingar um kennitölu og skattnúmer hafi þurft að liggja fyrir við ákvarðanatöku í máli kæranda. Kærandi gerir athugasemd við að hvergi í hinni kærðu ákvörðun sé fjallað um það hvort kærandi hafi fengið útgefna kennitölu eða skattnúmer í Grikklandi. Þá telur kærandi jafnframt að stofnunin hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga með því að hafa ekki látið þýða gögn um heilsufar kæranda, sbr. úrskurð kærunefndar í máli nr. KNU20120021 frá 18. febrúar 2021. Kærandi telur því að ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda í Grikklandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 17. október 2019 og hefur hún framvísað dvalarleyfisskírteini útgefnu af grískum yfirvöldum með gildistíma til 17. október 2022. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);• Amnesty International Report 2020/21 - Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/), sótt 12. maí 2021;
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 12. maí 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 12. maí 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða kennitölu sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu kennitölu (AMKA) breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer sem sé tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefna kennitölu (AMKA) sem teljist varanlegt úrræði. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá kennitölu gefna út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur, en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar.Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer, hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í skýrslunni að flóttakonur hafi orðið fyrir kynbundnu ofbeldi í flóttamannabúðunum í Grikklandi og að þeim standi til boða að dvelja tímabundið í skýlum á vegum stjórnvalda og að þær hafi aðgengi að lögfræðilegri aðstoð og sálfræðiþjónustu. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hún sofi ekki vel á næturnar. Kærandi hafi reynt að taka eigið líf í Grikklandi með því að taka inn of mikið magn lyfja. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 11. janúar 2021, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigð. Samkvæmt samskiptaseðli heilsugæslunnar Efstaleiti, dags. 26. janúar 2021, hafi kærandi leitað á heilsugæslu vegna vökva sem kæmi úr munni, stíflu í nefi, þrýstings í andliti og höfuðverkja og hafi hún fengið ávísað lyfjum vegna þess. Í samskiptaseðli heilsugæslunnar Efstaleiti, dags. 3. febrúar og 1. mars 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað á heilsugæslu vegna verkja í kvið og baki og vegna óreglulegra blæðinga og hafi kærandi fengið tilvísun til kvensjúkdómalæknis vegna þess. Þá hefur kærandi notið þjónustu sálfræðings í tvö skipti, sbr. gögn frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 15. febrúar og 10. maí 2021, en þar kemur fram að kærandi hafi m.a. greint frá því að hún hafi reynt að svipta sig lífi í Grikklandi. Einnig kemur fram að kærandi sofi ekki og líði illa. Samkvæmt læknabréfi, dags. 21. apríl 2021, hafi kærandi hitt kvensjúkdómalækni hjá Lífsteini þann 11. mars 2021 vegna kviðverkja, bakverkja og óreglu á blæðingum. Kærandi hafi ekki viljað kvenskoðun af trúarlegum ástæðum og hafi hún fengið ávísað getnaðarvarnarpillunni. Samkvæmt gögnum frá heilsugæslunni Efstaleiti, dags. 3. maí 2021, fékk kærandi ávísað lyfjum vegna sveppasýkingar á húð og kinnholubólgu.

Í tölvupósti kæranda til kærunefndar, dags. 31. mars 2021, er óskað eftir því að kærunefnd hlutist til um að fullnægjandi mat verði lagt á andlegt heilsufar kæranda. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar hennar, m.a. frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 15. febrúar 2021. Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 13. janúar 2021, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 17. mars og 12. apríl 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu og bárust frekari gögn m.a. dagana 31. mars, 7. og 28. apríl, 5., 11. og 12. maí 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla sálfræðimats.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við henni sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verði rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikkland þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar þar sem hún hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi.

Kærunefnd vill þá árétta að líkt og að framan greinir, og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá telur kærunefnd það sama eiga við um útgáfu kennitalna (AMKA) til flóttamanna, sem veitir þeim m.a. aðgang að heilbrigðisþjónustu í landinu. Í fyrrgreindum málum var það m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi að mestu heilbrigð og vinnufær kona sem kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hún þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. afla sér skattnúmers og kennitölu, hafi hún ekki þegar fengið þau útgefin, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hún óttist um öryggi sitt í Grikklandi en kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún óttist ákveðinn smyglara í Grikklandi. Þá telur kærandi að hún eigi á aukinni hættu að verða fyrir ofbeldi vegna stöðu sinnar sem flóttakona í Grikklandi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi, þ. á m. hafi konur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi í flóttamannabúðunum þar í landi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hún fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá má ráða af framangreindum gögnum að konum sem séu þolendur kynbundins ofbeldis, standi til boða úrræði, þ. á m. aðgengi að skýlum á vegum grískra stjórnvalda og sálfræðiaðstoð. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hún vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verður komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Grikklandi sveiflast nokkuð en samkvæmt síðarnefndu vefsíðunni er nýgengi smita í Grikklandi síðustu tvær vikur undir meðaltali EES ríkjanna. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, vinnustöðum og almenningssamgöngum, banni við að ferðast innanlands nema vegna sérstakra ástæðna, landamæraskimun og sóttkví. Til að greiða fyrir áframhaldandi málsmeðferð og þjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa yfirvöld útlendingamála í Grikklandi (e. Asylum Service Offices) opnað rafrænan vettvang þar sem einstaklingar eiga þess kost að sækja um vernd. Jafnframt hafa stjórnvöld framlengt gildistíma á útrunnum dvalarleyfisskírteinum sjálfkrafa en ný dvalarleyfisskírteini er hægt að sækja með því að panta tíma fyrirfram hjá yfirvöldum útlendingamála. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna aðstoðað grísk stjórnvöld í baráttunni við veiruna, m.a. með því að veita aðstoð til flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í landinu. Hefur stofnunin m.a. veitt viðeigandi stuðning svo flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisstofnunum og annarri þjónustu. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem eru við lýði vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar og komi ekki til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum hefur verið aflétt. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á fjórum tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá hefur bólusetning hafist í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hennar eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna umfjöllunar í greinargerð kæranda um úrskurð kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020, telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindu máli. Í forsendum úrskurðar kærunefndar í framangreindum úrskurði kemur m.a. fram að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrðu á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Jafnframt bárust fréttir af erfiðleikum grískra stjórnvalda við að ná tökum á aðstæðum. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar stofnunarinnar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í maí 2020 m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu í Grikklandi í haust og aftur nú í vor, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. í Grikklandi. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 13. janúar 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína þann 22. desember 2021.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er af yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr. kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann verði þar eða við flutninginn fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hennar til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og rannsókn stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda.

Kærandi gerir athugasemd við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hennar, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hennar var henni leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga með því að hafa látið hjá líða að þýða gögn um heilsufar hennar frá Grikklandi og vísar í því sambandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20120021 frá 18. febrúar 2021. Í fyrrgreindum úrskurði hafði kærandi borið fyrir sig að í framlögðum gögnum um heilsufar hans væri að finna ítarlega úttekt á þeim pyndingum sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Var það mat kærunefndar að umrædd gögn bæru með sér að hafa þýðingu fyrir mál kæranda og að í ljósi frásagnar hans og fyrirliggjandi heilsufarsgagna hefði verið tilefni að senda gögnin í þýðingu til að kanna hvert væri innihald þeirra. Þá leit kærunefnd jafnframt til þess að ekki lágu fyrir í málinu sambærileg gögn, sem gætu varpað ljósi á það sem kæmi fram í hinu óþýdda skjali. Í fyrirliggjandi máli hefur kærandi lagt fram handskrifaðar nótur að sögn kæranda frá sálfræðingi í Grikklandi. Kærunefnd telur hin framlögðu gögn í fyrrgreindum úrskurði og fyrirliggjandi gögn í máli kæranda ekki vera sambærileg. Þá hefur kærandi átt þess kost að njóta sálfræðiaðstoðar hér á landi og liggja fyrir komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. 15. febrúar og 10. maí 2021, þar sem fram kemur að kærandi hefur notið þjónustu sálfræðings í tvö skipti hér á landi. Kærunefnd telur því að rannsókn á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda sé ekki ábótavant þrátt fyrir að umrædd gögn hafi ekki verið þýdd.

Í greinargerð kæranda er vísað til þess að í hinni kærðu ákvörðun sé ekki fjallað um hvort kærandi hafi kennitölu í Grikklandi og að ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda. Kærandi vísar í því sambandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20110019 frá 4. febrúar 2021. Af því tilefni tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindum úrskurði. Í framangreindum úrskurði var það mat kærunefndar að í ljósi þess að kærandi væri í hópi þeirra sem gætu átt á hættu að glíma við alvarleg veikindi af völdum Covid-19 vegna veikinda sinna og þeirra aðgangshindrana sem gætu verið til staðar í Grikklandi að sérstakt tilefni hefði verið til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Kærunefnd telur einstaklingsbundnar aðstæður kæranda í fyrrgreindu máli og því máli sem er til meðferðar ekki sambærilegar og verður það ekki talið leiða til þess að ógilda beri ákvörðun Útlendingastofnunar að ekki hafi verið hlutast til um hvort kærandi hefði kennitölu í Grikklandi.

Í greinargerð kæranda er m.a. gerð athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun er varðar tiltekna úrskurði kærunefndar sem kærandi hafi vísað til í greinargerð sinni til stofnunarinnar. Kærandi hafi vísað til úrskurða kærunefndar nr. KNU19110022 frá 25. mars. 2020 og KNU19110026 frá 20. maí 2020 og fært rök fyrir því að leggja ætti úrskurðina til grundvallar ákvarðanatöku í málinu en í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið fjallað um fyrrgreinda úrskurði. Þess í stað hafi stofnunin vísað til úrskurðar kærunefndar nr. KNU20110009 frá 10. desember 2020 og ekki fjallað frekar um málsástæðu kæranda að því leyti. Ljóst er að þegar ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda var tekin, þann 15. febrúar 2021, höfðu verið kveðnir upp úrskurðir þar sem umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd hér á landi, sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd í Grikklandi, var synjað um efnismeðferð, m.a. í málum nr. KNU20110005 og KNU20110009 frá 10. desember 2020. Kærunefnd áréttar að Útlendingastofnun er bundin af fordæmum sem kærunefnd setur og verður að mati kærunefndar ekki séð annað en að Útlendingastofnun hafi farið eftir þeim viðmiðum og sjónarmiðum sem sett voru af kærunefnd með úrskurðum þeim sem upp voru kveðnir þann 10. desember 2020. Þá hefur kærunefnd fjallað um að framan að ekki sé unnt að jafna aðstæðum kæranda í því máli sem hér er til meðferðar við stöðu kærenda í fyrrgreindum úrskurði nr. KNU19110022 frá 25. mars 2020. Kærunefnd tekur þó undir athugasemd kæranda að skort hafi rökstuðning í hinni kærðu ákvörðun er varðar tilvísun kæranda í úrskurð kærunefndar útlendingamála nr. KNU19110022 frá 25. mars 2020. Í ákvörðun stofnunarinnar er aðeins vísað til úrskurðarins en ekki fjallað frekar um hann í tengslum við umfjöllun kæranda í greinargerð sinni. Beinir kærunefnd þeim tilmælum til Útlendingastofnunar að gætt verði að þessu í ákvörðunum stofnunarinnar svo að rökstuðningur stjórnvaldsákvörðunar, sbr. 1. og 2. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga, geti talist fullnægjandi. Að öðru leyti telur kærunefnd ekki tilefni til að fjalla frekar um athugasemdir kæranda er lúta að skorti á rökstuðningi Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana að öðru leyti.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 22. desember 2020. Hún sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og verða alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                 Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta