Hoppa yfir valmynd

Nr. 562/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 562/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090063

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 7. september 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2023, um að synja […], fd. […]; ríkisborgara Gvatemala (hér eftir aðili), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 7. september 2023. Hinn 15. september 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 22. september 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

AðilI krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hún hyggist bera ákvörðun Útlendingastofnunar, sem staðfest hafi verið með úrskurði kærunefndar, undir dómstóla. Í greinargerð aðila kemur fram að hún eigi rétt á að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur með réttlátri málsmeðferð fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Aðili byggir beiðni sína á 70. gr stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðili byggir á því að sjónarmið sem fjallað sé um í athugasemdum við 35. gr. laga um útlendinga í frumvarpi sem varð að lögum, eigi við um hana. Aðili óttist meðferð í heimaríki sínu sem kunni að vera í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á frestun réttaráhrifa væri íþyngjandi og líkleg til að valda henni tjóni.

Í greinargerð kemur fram að aðili hafi verið barn að aldri þegar hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og sé rétt rúmlega 18 ára í dag. Ólíkt því sem stjórnvöld hafi lagt til grundvallar hafi aðili ekki traust bakland í heimaríki. Hún hafi lýst ofbeldi og vanlíðan á heimili sínu og hafi traustara bakland á Íslandi en í Gvatemala. Hún eigi tvær systur hér á landi sem hafi verið umönnunar- og framfærsluaðilar hennar undanfarna mánuði og ár. Í heimahéraði aðila, Jutiapa, sé gífurlega há glæpatíðni einkum gagnvart einhleypum ungum konum og börnum. Aðili hafi sjálf orðið fyrir hótunum og ofbeldi. Enn fremur hafi hún ekki getað notað verndar lögreglu þegar hún hafi þurft á henni að halda. Frásögn aðila af hættunni sem hún standi frammi fyrir og vangeta ríkisins til að veita vernd fái stoð í traustum heimildum. Aðili byggi á því að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ófullnægjandi að mati kærunefndar útlendingamála enda hafi nefndin séð ástæðu til að senda talsmanni viðbótarspurningar til að varpa ljósi á aðstæður kæranda á heimili hennar og í heimahéraði. Þau svör sem aðili hafi veitt við spurningunum og hafi borist kærunefnd séu öll til þess fallin að varpa ljósi á alvarlegri aðstæður aðila á heimili sínu og í heimahéraði en áður höfðu komið fram. Þrátt fyrir að aðili hafi náð 18 ára aldri hafi ekkert við aðstæður hennar breyst. Hún sé enn barnung og háð stuðningi fjölskyldu sinni. Í Gvatemala muni hún búa við sama ofbeldi á heimili sínu og vera berskjölduð fyrir glæpum í heimahéraði sínu. Aðili byggir á því að framkvæmd úrskurðarins muni valda henni óafturkræfum skaða.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta verður til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfa að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Af gögnum um heimaríki aðila er ljóst aðili geti átt samskipti við lögmann sinn hér á landi í gegnum síma og/eða samskiptaforrit. Ennfremur benda gögn málsins ekki til annars en að aðili geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi án vegabréfsáritunar á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020. 

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu séu haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er ekki ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar.

 

Úrskurðarorð:

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant´s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta