Mál nr. 63/2017 Úrskurður 27. október 2017
Mál nr. 63/2017 Eiginnafn: Ylfingur
Hinn 27. október 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 63/2017 en erindið barst nefndinni 26. október.
Eiginnafnið Ylfingur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ylfings og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ylfingur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.