Mál nr. 64/2017 Úrskurður 27. október 2017
Mál nr. 64/2017 Eiginnafn: Alíana
Hinn 27. október 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 64/2017 en erindið barst nefndinni 26. október.
Eiginnafnið Alíana (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Alíönu og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Alíana (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.