Mál nr. 8/2019 Úrskurður 28. janúar 2019
Mál nr. 8/2019 Eiginnafn: Baldína (kvk.)
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Baldína (kvk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Baldína tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Baldínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Baldína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.