Mál nr. 7/2016 Úrskurður 5. febrúar 2016
Mál nr. 7/2016 Eiginnafn: Gígí
Hinn 5. febrúar 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2016 en erindið barst nefndinni 27. janúar:
Eiginnafnið Gígí (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Gígíar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Gígí (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.