Mál nr. 8/2016 Úrskurður 5. febrúar 2016
Mál nr. 8/2016 Eiginnafn: Lói
Hinn 5. febrúar 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 8/2016 en erindið barst nefndinni 27. janúar:
Eiginnafnið Lói (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lóa, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lói (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.