Hoppa yfir valmynd

Nr. 334/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 26. júlí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 334/2018

í stjórnsýslumálum nr. KNU18050061 og KNU18050062

Kæra [...]

og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 30. maí 2018 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 9. maí 2018 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda þau til Þýskalands.

Þess er krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kærenda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Til vara er gerð krafa um að hinar kærðu ákvarðanir verið felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málin til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 6. mars 2018. Þar sem kærendur höfðu fengið útgefna vegabréfsáritun af þýskum stjórnvöldum var þann 12. mars 2018 beiðni um viðtöku kærenda og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. 4. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 13. apríl 2018 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kærenda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 9. maí 2018 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þau skyldu endursend til Þýskalands. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 15. maí 2018 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 30. maí 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 8. júní 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd yrðu ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi og þau skyldu endursend til Þýskalands. Flutningur kærenda til Þýskalands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var það niðurstaða stofnunarinnar að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur voru ekki talin í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál þeirra. Kærendur skyldu yfirgefa Ísland og bæri að senda þau til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda er rakin ástæða þess að kærendur, sem séu [...], hafi flúið heimaríki sitt. M hafi stundað þar viðskipti með [...] en [...] séu [...]. Kærendur hafi lent í útistöðum við [...] vegna þessara viðskipta. M hafi verið hótað lífláti, ökutæki hans hafi verið brennt og hann hafi verið laminn af hópi manna. Kærendum sé því ekki vært í [...]. Fram kemur í greinargerð kærenda að M sé við ágæta líkamlega heilsu en þjáist andlega af ótta vegna þess sem hafi komið fyrir hann á [...]. Þá hafi ofbeldi það sem M hafi orðið fyrir haft slæm áhrif á K. Hún finni fyrir kvíða og sorg, sé óttaslegin og sorgmædd. Þá hafi henni einnig verið hótað ofbeldi ef fjölskyldan flytti ekki í burtu. Þá hafi þau ekki sótt um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, þau hafi aðeins dvalið þar í 5 daga sem ferðamenn.

Í greinargerð kærenda er að finna ítarlega umfjöllun um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi með vísan til fjölda alþjóðlegra skýrslna, m.a. nýjustu ársskýrslna mannréttindasamtakanna Amnesty International og gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og útlaga, Asylum Information Database. Þar komi m.a. fram að gríðarlegt álag hafi verið á hæliskerfinu í Þýskalandi. Til að flýta fyrir meðferð umsókna og vinna á fjöldanum hafi þýsk stjórnvöld komið á fót sérstakri flýtimeðferð, sem gagnrýnd hafi verið fyrir að tryggja ekki nægjanlega réttláta málsmeðferð umsókna sem settar séu í þann farveg. Gistimiðstöðvar séu yfirfullar og ekki fái allir umsækjendur um alþjóðlega vernd úthlutað gistirými í þeim. Umsækjendur um alþjóðlega vernd njóti einnig takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar á meðan umsókn þeirra sé til meðferðar og þá séu umsækjendur ekki upplýstir nægjanlega um réttindi sín á meðan viðtali þeirra vegna umsóknar um alþjóðlega vernd standi. Þá hafi stefna þýskra stjórnvalda í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna tekið breytingum á síðustu árum. Þýska þingið hafi samþykkt breytingar á löggjöf um útlendinga sem hafi m.a. haft talsverð áhrif á vernd persónuupplýsinga hvað varða umsækjendur, takmarkað hafi réttindi til dvalarleyfis og víkkað hafi heimildir til varðhalds. Enn fremur hafi andúð, ógnanir og ofbeldi gagnvart flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd verið vandamál um allt Þýskaland.

Kærendur byggja á því að taka skuli mál þeirra til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, til greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, og til nýlegrar úrskurðarframkvæmdar kærunefndar útlendingamála. M hafi greint frá því að hann sé fórnarlamb ofbeldis sem hafi að öllum líkindum haft áhrif á andlega heilsu hans. Hann hafi búið við stöðugan ótta og óöryggi síðastliðin ár. Þá hafi K verið hótað. Erfið reynsla þeirra og umdeild stefna þýskra yfirvalda í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna leiði til þess að fyrir hendi séu slíkar sérstakar ástæður sem skylda íslensk stjórnvöld til að taka beiðni kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Varakrafa kærenda er reist á því að rannsókn Útlendingastofnunar í málunum og rökstuðningur fyrir niðurstöðu þeirra sé verulega áfátt. Gagnrýni kærendur að Útlendingastofnun skuli ekki hafa metið þau í sérstaklega viðkvæmri stöðu og að skort hafi á rannsókn þess efnis hvort þau muni eiga erfitt uppdráttar í Þýskalandi. Enn fremur bendi kærendur á að Útlendingastofnun hafi legið svo mikið á að synja kærendum um efnislega meðferð umsóknar þeirra hér á landi að stofnunin hafi ekki gefið sér tíma til að bíða eftir niðurstöðum úr viðtölum þeirra við sálfræðing. Ákvarðanir stofnunarinnar hafi verið teknar 9. maí 2018 en kærendur hafi hins vegar fengið tíma hjá sálfræðingi þann 22. maí s.á.

Loks benda kærendur á að þau hafi lagt fram umsóknir sínar um alþjóðlega vernd þann 6. mars sl. en þá hafi reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga ekki tekið gildi. Vegna sjónarmiða um bann við afturvirkni íþyngjandi laga og reglna sé íslenskum stjórnvöldum óheimilt að beita reglugerðinni í málum kærenda. Jafnframt telja kærendur að efni umræddrar reglugerðar gangi að miklu leyti gegn almennri túlkun og skýringu á útlendingalögum, og eigi því ekki nægjanlega stoð í lögum nr. 80/2016 um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kærendum á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærendur hafi fengið útgefna vegabréfsáritun til Þýskalands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærendur voru ekki metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál þeirra hjá Útlendingastofnun. K greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún finni stundum til verkja í baki auk þess sem hún sé óttaslegin og sorgmædd. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 15. mars 2018 til 22. maí 2018, kemur m.a. fram að K hafi glímt við [...] í nokkra mánuði og hafi verið [...]. M greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi verið beittur ofbeldi og hótað lífláti í heimaríki. Hann finni fyrir kvíða og ótta og eigi við svefnvandamál að stríða. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 15. mars 2018 til 22. maí 2018, kemur m.a. fram að M hafi [...] sem bendi til [...] og sé með [...].

Framburður kærenda ber með sér að M sé þolandi ofbeldis og M og K glími við andlega vanlíðan. Að mati kærunefndar bera gögn málsins, þ. á m. komunótur frá Göngudeild sóttvarna, þó ekki með sér að heilsufar kærenda sé með þeim hætti að þau séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls þeirra hér á landi, enda verður ekki talið að persónulegir eiginleikar þeirra og aðstæður séu þess eðlis að þau teljist hafa sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls þeirra hér auk þess sem ekki verður talið að þau geti ekki að fullu eða öllu leyti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018),
  • Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar skuli sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Lögum samkvæmt eiga umsækjendur rétt á gistirými í tímabundnum móttökumiðstöðvum (þ. Aufnahmeeinrichtung) í allt að sex mánuði frá því að þeir lögðu umsókn sína fram. Að þeim tíma liðnum eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að fá úthlutað gistirými í öðrum móttökumiðstöðvum (þ. Gemeinschaftsunterkünfte). Samkvæmt bráðabirgðatölum frá þýsku útlendingastofnuninni, sem vísað er til í skýrslu Asylum Information Database, var meðalmálsmeðferðartími umsókna um alþjóðlega vernd sem bárust eftir 1. janúar 2017 rúmlega 2 mánuðir. Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Þýskalandi geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá Útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsóknir eru metnar og þær samþykktar séu þær ekki álitnar bersýnilega tilhæfulausar. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla. Þá benda gögnin til þess að úr málum umsækjenda um alþjóðlega vernd sé leyst á einstaklingsgrundvelli.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. lyfjum og geðheilbrigðisþjónustu. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hafi fjölgað á undanförnum árum en nýlega hafi stjórnvöld gert aðgerðaráætlun til að sporna við fordómum þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement).

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kærenda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærendum séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Aðstæður kærenda hafa þegar verið raktar. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærendur geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá fær kærunefnd ekki séð að kærendur glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í málum kærenda er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að umsækjendur eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfi á að halda fram að brottflutningi þeirra frá landinu. Telur kærunefnd því ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærendur hafi aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem kærendur lögðu fram með kærum sínum, svo og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Þýskalandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. og 12. apríl 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 6. mars 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Til stuðnings varakröfu sinni vísa kærendur m.a. til þess að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant þar sem stofnunin hafi ekki beðið eftir niðurstöðum úr viðtölum kærenda við sálfræðing, en kærendur hafi fengið viðtal hjá sálfræðingi þann 22. maí sl. Ákvörðun Útlendingastofnunar hafi hins vegar verið tekin þann 9. maí sl. Þá taka kærendur sérstaklega fram að í ákvörðunum Útlendingastofnunar komi fram að kærendur hafi ekki lagt fram læknisfræðileg gögn í málinu, en stofnuninni hafi mátt vera kunnugt að engin gögn hafi verið til staðar enda hafi kærendur ekki farið til sálfræðings.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og rannsókn Útlendingastofnunar, auk þess að hafa farið yfir gögn málsins, en þar á meðal eru komunótur frá Göngudeild sóttvarna dagsettar frá 15. mars 2018 til 22. maí 2018, sem fylgdu með greinargerð kærenda til kærunefndar. Af komunótum frá Göngudeild sóttvarna verður ráðið að kærendur hafi hvort um sig hitt hjúkrunarfræðing á deildinni m.a. dagana 24. og 26. apríl 2018 og lýst þar andlegri heilsu sinni. Kærendur voru einnig spurð út í andlega heilsu sína í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 7. mars og 11. og 12. apríl 2018. Kærendum var þá leiðbeint að öll læknisfræðileg gögn gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli þeirra. Þá var þeim leiðbeint að ef þau leituðu til læknis eða sálfræðings vegna kvilla sem þau teldu hafa þýðingu í málinu, að fá skriflegar upplýsingar um heilsufar sitt og leggja þær fram hjá Útlendingastofnun. Var veittur tveggja vikna frestur til að leggja fram gögn í málinu. Engin læknisfræðileg gögn voru lögð fram hjá Útlendingastofnun af hálfu kæranda. Að mati kærunefndar fengu kærendur því fullnægjandi leiðbeiningar við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun um gögn sem kynnu að hafa þýðingu fyrir úrlausn málsins, sbr. 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl., voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kærenda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á að setning reglugerðarinnar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga að því er varðar aukna áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins enda sé ljóst að vilji löggjafans hafi staðið til þess að slíkt samstarf hefði vægi við beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá tekur kærunefnd ekki undir það sjónarmið kærenda að með reglugerðarbreytingunni hafi verið horfið frá þeirri þróun að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærendur komu hingað til lands þann 5. mars 2018. Þau sóttu um alþjóðlega vernd þann 6. mars s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur skulu flutt til Þýskalands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kærendum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kærendur til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decision‘s of the Directorate of Immigration are affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson                                                      Anna Tryggvadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta