Mál nr. 139/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 13. janúar 2022
Mál nr. 139/2021 Endurupptökubeiðni
Eiginnafn: Moon (kvk.)
Hinn 13. janúar 2022 tekur mannanafnanefnd fyrir beiðni, dags. 23. september 2021, þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 40/2018 Moon.
Með úrskurði mannanafnanefndar frá 26. júní 2018 í máli nr. 40/2018 var umsókn um millinafnið Moon hafnað. Niðurstaða nefndarinnar var að nafnið uppfyllti ekki skilyrði 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn, nr. 45/1996, sem kveður á um að millinafn skuli vera dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Í endurupptökubeiðninni er óskað eftir því að nefndin taki afstöðu til þess hvort heimilt sé að samþykkja nafnið Moon (kvk.) sem eiginnafn. Nefndin sér ekkert því til fyrirstöðu að fallast á beiðnina og taka málið upp á ný. Nýr úrskurður í málinu fylgir hér á eftir sem fengið hefur málsnúmerið 139/2021.
Hinn 13. janúar 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 139/2021:
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Moon (kvk.), borið fram Mún, uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslenskt máls þar sem o er ekki ritað tvöfalt í íslenskri stafsetningu. Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Moon að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
- Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
- Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
- Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
- Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
- Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna, sbr. 2. lið þeirra, eiginnafnið Moon í þjóðskrá. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Rithátturinn uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Moon er af erlendum uppruna. Nafn með þessum rithætti hefur t.d. verið notað í ensku og til er kóreskt eiginnafn sem ýmist er umritað Moon eða Mun með latínuletri.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Moon (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.