Mál nr. 85/2021 Úrskurður 26. júlí 2021
Mál nr. 85/2021 Eiginnafn: Casandra (kvk.)
Hinn 26. júlí 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 85/2021, en erindið barst nefndinni 20. júlí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Casandra uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Casöndru, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið Casandra telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c er ekki hluti af íslensku stafrófi. Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Casandra að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
- Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
- Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
- Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
- Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
- Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.
Eiginnafnið Casandra er af erlendum uppruna. Það á rætur að rekja til gríska nafnsins Kassandra en hefur verið tekið upp með rithættinum Casandra í t.d. spænsku og rúmensku. Rithátturinn telst því uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna, sbr. 4. lið þeirra.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Casandra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.