Hoppa yfir valmynd

Nr. 77/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 21. febrúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 77/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120062

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. desember 2018 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. desember 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 27. febrúar 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 16. nóvember 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 5. desember 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 21. desember 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 18. janúar 2019. Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd þann 7. febrúar 2019. Viðbótargögn bárust frá kæranda þann 14. febrúar 2019.

III.        Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna hótana af hálfu ISIS liða.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.        Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé fæddur og uppalinn í Sulaymaniyah í Kúrdistan. Kærandi hafi flúið heimaríki vegna þess að hann hafi tilkynnt meðlim ISIS samtakanna til lögreglunnar og hafi verið hótað í kjölfarið. Kærandi hafi haft ákveðnar grundsemdir um nágranna sinn [...] en hann hafi átt mikið af peningum og eytt miklu. Þá hafi hann notað gervihnattasíma sem ekki sé hægt að rekja. Kærandi hafi reynt að afla upplýsinga um [...] til að gera lögreglunni viðvart. Í heimaríki hafi kærandi verið leigubílstjóri. Þann 2. febrúar 2018 hafi [...] óskað eftir því að kærandi keyrði sig að landamærum Írans en hann ætti þar von á gestum. Við landamærin hafi þrír menn mætt en tveir þeirra hafi komið inn í leigubíl kæranda. Hafi [...] skipað honum að fara aðra leið til baka til að komast hjá því að fara í gegnum eftirlitsstöðvar. Kærandi hafi verið hræddur á þessum tímapunkti og ekki þorað öðru en að hlýða fyrirskipun hans. Þegar þeir hafi nálgast Sulaymaniyah hafi [...] sagt kæranda að stoppa og ekki byrja að keyra aftur fyrr en eftir myrkur. Þegar myrkrið hafi skollið á hafi [...] beðið hann um að keyra í flóttamannabúðirnar í Tanjaro. Síðar um kvöldið eftir að hafa komið frá Tanjaro hafi kærandi tilkynnt öryggislögreglunni, Asayish, um grunsemdir sínar um nágranna sinn og mennina sem hann hafi keyrt. Í kjölfarið hafi lögreglan komið og sótt kæranda og beðið hann um að vísa þeim á staðinn sem hann hafi keyrt [...] til. Hafi kærandi verið með í för en lögreglan hafi sett poka yfir höfuðið hans. Öryggislögreglan hafi handtekið fjóra menn en [...] hafi ekki verið á meðal þeirra. Lögreglan hafi síðan brotist inn í hús [...] og haldlagt fjölda gagna. Í kjölfarið hafi [...] hringt í kæranda mjög reiður og hótað honum. Hafi hann sagst ætla brenna kæranda og fjölskyldu hans. Kærandi hafi óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar. Kærandi hafi þann 5. febrúar 2018 farið á [...] lögreglustöðina og lagt fram kæru á hendur [...]. Kærandi hafi tvisvar reynt að mæla sér mót við [...] ásamt óeinkennisklæddum lögreglumönnum en [...] hafi ekki látið sjá sig. [...] hafi ekki náðst og gangi laus. Kærandi telji sig ekki geta fengið vernd hjá lögreglunni því hún sé máttlítil. Kærandi hafi greint frá því að [...] hafi verið ákærður samkvæmt 4. gr. laga um hryðjuverk. Þá hafi allir mennirnir sem hafi verið handteknir verið ISIS-liðar og tveir þeir hafi játað að hafa unnið fyrir hryðjuverkasamtökin.

Þá kemur fram í greinargerð að kærandi hafi tjáð talsmanni sínum þann 16. nóvember 2018 að lögreglan hafi náð að handsama [...]. Þrátt fyrir að lögreglan hafi náð [...] þá telji kærandi sig ekki öruggan þar sem hann óttist hefndaraðgerðir gegn sér af hálfu einstaklinga tengdum [...] og félögum hans sem hafi verið handteknir.

Í greinargerð kæranda er að finna almenna umfjöllun um ástand mannréttindamála í Írak og vísað í alþjóðlegar mannréttindaskýrslur því til stuðnings. Meðal helstu mannréttindabrota í landinu séu m.a. morð af hálfu öryggissveita ríkisins, mannshvörf, kúganir, pyndingar, illvígar og lífshættulegar aðstæður í fangelsum, handahófskenndar frelsissviptingar, inngrip í einkalíf fólks, takmarkanir á tjáningarfrelsi, víðtæk spilling hins opinbera og umtalsverð mildun refsinga fyrir svokölluð heiðursmorð. Í Írak séu dauðarefsingar við líði og hafi landið eina hæstu tíðni aftaka í heiminum. Þá sé afstaða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna varðandi endursendingar til Íraks á þann veg að hún hvetji ríki til að snúa ekki nokkrum Íraka aftur til heimaríkis gegn vilja sínum, sem komi frá svæðum í Írak sem séu undir áhrifum af stríðsátökum, teljist óörugg eftir að hafa verið losuð undan stjórn ISIS eða séu undir stjórn ISIS . Löggæsla í Kúrdistan sé nokkuð markvissari og skilvirkari en í suður- og mið-Írak. Hvort yfirvöld Kúrda geti veitt vernd geti þó farið eftir því hver það sé sem standi að baki ofsóknum. Myndu yfirvöld t.a.m. ekki veita vernd hafi einstaklingur átt í deilum við kúrdískan stjórnmálamann. Þá veigri fólk sér við því að leita til lögreglu eða dómstóla. Aðgengi að réttarkerfinu velti á því hvaða þjóðernis- eða trúarhópa sé um að ræða, hvaða ættbálki viðkomandi tilheyri og tengslum viðkomandi.

Þá er í greinargerð fjallað almennt um aðstæður á yfirráðasvæði Kúrda í Írak. Fram kemur að með breytingu á stjórnarskrá Íraks árið 2005 hafi yfirráðasvæði Kúrda í Írak (e. the Kurdistan Region of Iraq (KRI)) verið viðurkennt sem sjálfstjórnarsvæði með eigin stofnanir, svo sem svæðisbundin stjórnvöld, þing, forsetaembætti og öryggissveitir. Vísað er til þess að með atkvæðagreiðslu, í september 2017, um stofnun sjálfstæðs ríkis á yfirráðasvæði Kúrda í Írak hafi magnast upp á ný spenna á milli kúrdíska minnihlutans og yfirvalda í Bagdad og hafi átök átt sér stað í kjölfarið. Samkvæmt heimildum eigi íröksk og kúrdísk stjórnvöld í viðræðum um ágreiningsefni sín. Einnig sé efnahagsástandið í Kúrdistan á niðurleið og þar ríki í raun fjármálakreppa. Þá standi Kúrdum nú hætta af hendi Tyrkja gegn þeim.

Aðalkrafa kæranda byggir á því að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið taki mið af tilskipun Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnist alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Við túlkun á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi einnig að taka tillit til þeirra alþjóðlegu mannréttindasamninga og alþjóðareglna sem reglan um viðbótarvernd byggist á og Ísland sé skuldbundið af. Einkum sé þar um að ræða ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 3. gr. samnings gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Kærandi telur að hann eigi í hættu á að sæta illri meðferð eða verða tekinn af lífi af bandamönnum [...] og hinna ISIS-liðanna sem hafi verið handteknir fyrir hans tilstuðlan. Kærandi vísar til þess að heimildir beri með sér að grunaðir ISIS-liðar eigi það á hættu að verða teknir af lífi og því geti verið að fjölskyldur ISIS-liðanna sem kærandi hafi sagt til vilji hefna þeirra. Með vísan til framangreinds þurfi kærandi á vernd að halda og telji hann að hann geti ekki fengið vernd í Kúrdistan eða Írak. Þá telur kærandi að síðari hluti 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi jafnframt við í hans máli en í heimildum sé ástandinu í heimaríki hans lýst sem óstöðugu jafnframt sem það geti versnað snögglega. Kærandi eigi ekki raunhæfan möguleika á vernd enda hafi yfirvöld hvorki getu né vilja til að veita honum þá vernd sem hann þarfnist. Kærandi vísar til þess að í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sé að finna nánari skilgreiningu á því hverjir það geti verið sem geti verið valdir að ofsóknum skv. 37. gr. Samkvæmt c-lið geti það verið aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir. Í tilfelli kæranda séu það ISIS-liðar sem ógni öryggi hans og fjölskyldu hans þar sem hann hafi verið valdur að handtöku þeirra. Jafnframt óttist hann fjölskyldur ISIS-liðanna sem nú séu í haldi lögreglu. Kærandi telur að þrátt fyrir að lögregla hafi brugðist við þegar hann hafi leitað til hennar þá sé ekki þar með sagt að yfirvöld og lögregla geti verndað hann fyrir ISIS-liðunum. Sérstaklega ekki núna þar sem hann geti í raun ekki bent á þá einstaklinga sem hann óttist þar sem hann viti ekki deili á fleiri ISIS-liðum heldur en þeim sem hann hafi tilkynnt. Kærandi geti því ekki aðstoðað lögreglu frekar við að hafa um á fleiri ISIS-liðum. Þá sé ljóst að langvarandi stríðsástand hafi ríkt í Írak. Ástandinu í landinu sé lýst sem óstöðugu og óvissu og að það geti versnað snögglega.

Kærandi telur að með því að senda hann til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Varakrafa kæranda byggir á því að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Í þessu sambandi vísar kærandi til þess að í athugasemdum við 74. gr. frumvarpi til laga um útlendinga komi fram að erfiðar almennar aðstæður geti m.a. tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við langvarandi stríðsástand í heimaríki. Í sambandi við framangreint vísar kærandi til þess að langvarandi stríðsástand hafi ríki í heimaríki hans og sé hryðjuverkaógn enn mikil. Þrátt fyrir að lýst hafi verið yfir sigri gegn ISIS og ástandið hafi batnað að einhverju leyti þá beri heimildir með sér að það sé enn slæmt. Telur kærandi því að skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt og beri því að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að það sem fram komi í landaupplýsingum um heimaríki kæranda bendi til þess að Kúrdistan sé öruggt land og að yfirvöld þar séu í stakk búin að veita vernd sé eftir henni leitað. Kærandi taki undir það að fyrir ákveðna einstaklinga sé Kúrdistan öruggt land en það sé hins vegar ekki öruggt land fyrir einstakling í hans stöðu sem komið hafi því til leiða að meðlimir í sérstaklega hættulegum hryðjuverkasamtökum hafi verið handteknir.

Í greinargerð kæranda er fjallað um innri flutning og m.a. vísað til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og lögskýringargagna með lögum um útlendinga.

V.         Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað ljósmynd af skírteini sem staðfesti leyfi hans til aksturs leigubifreiðar. Þar sem um ljósmynd sé að ræða hafi ekki verið hægt að kanna áreiðanleika skírteinisins með fullnægjandi hætti. Yrði því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar að í ljósi þess að kærandi talaði og skildi sorani, hefði ágæta þekkingu á stöðu mála og staðarháttum í Sulaymaniyah í Kúrdistan þá yrði lagt til grundvallar í málinu að hann væri sannarlega frá Sulaymaniyah í Kúrdistan. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því byggt á því í málinu að kærandi sé frá Kúrdistan. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Annual Report 2017/18 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual report on the human rights situation in 2018 – Iraq (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • Country Information and Guidance Iraq: Return/Internal relocation (UK Home Office, júní 2017);
  • Country Information and Guidance Iraq: Security situation in the ‘contested’ areas (UK Home Office, ágúst 2016);
  • Country Policy and Information Note Iraq: Security and humanitarian situation (UK Home Office, mars 2017);
  • EASO COI Meeting Report – Iraq (European Asylum Support Office, júlí 2017);
  • Freedom in the World 2017 - Iraq (Freedom House, 2. júní 2017);
  • Irak: Basisinfo (Landinfo, 6. janúar 2016);
  • Iraq: Travel documents and other identity documents (Landinfo, 16. desember 2015):
  • Irak: Politi og rettsvesen i de tre kurdiskstyrte provinsene (KRI) (Landinfo, 27. október 2016);
  • Iraq Flash Update (UNHCR, 26. mars 2018);
  • Iraq 2016 Human Rights Report (U.S. Department of State, 29. mars 2017);
  • Iraq 2017 Human Rights Report (U.S. Department of State, 20. apríl 2018);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Alternative (IFA/IRA) (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Alternative (IFA/IRA): Ability of Persons Originating from (Previously or Currently) ISIS-Held or Conflict Areas to Legally Access and Remain in Proposed Areas of Relocation (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Iraq: Security situation in Sulaymaniyah; activities of muslim fundamentalist groups, including ISIS 2015-February 2016 (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. mars 2016);
  • Iraq 2018 Crime & Safety Report: Erbil (U.S. Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 7. mars 2018);

  • Northern Iraq – Security situation and the situation for internally displaced persons (IDPs) in the disputed areas, incl. possibility to enter and access the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (Danish Immigration Service, 5. nóvember 2018),
  • Oil and Borders: How to Fix Iraq's Kurdish Crisis (International Crisis Group 17. október 2017);
  • Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);
  • Security and Human Rights in South/Central Iraq (Danish Immigration Service, 10. September 2010);
  • Operation Inherent Resolve and other overseas contingency operatations (LEAD IG Report to the United States Congress, 31. desember 2018);
  • The Kurdistan Region of Iraq (KRI) Access, Possibility of Protection, Security and Humanitarian Situation (Danish Immigration Service, apríl 2016) og
  • UNHCR position on returns to Iraq (UNHCR, 14. nóvember 2016.

Samkvæmt framangreindum gögnum er Írak lýðræðisríki með rúmlega 32 milljónir íbúa. Írak varð til eftir fyrri heimsstyrjöld þegar sigurvegarar stríðsins skiptu Mið-Austurlöndum á milli sín. Ríkið var breskt yfirráðasvæði fram til ársins 1932, þá tók við tímabil sem einkenndist af pólitískum óstöðugleika sem lauk árið 1958 þegar komið var á fót lýðveldi. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1994 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2008. Ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011 og alþjóðasamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010. Þá fullgilti ríkið jafnframt samning um réttindi einstaklinga með fötlun árið 2013.

Í framangreindum gögnum kemur þá fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarsvæði Kúrda, Kúrdistan (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í Kúrdistan, sé það landsvæði borið saman við suður og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé Kúrdistan einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum ISIS- hryðjuverkasamtakanna, sem einnig eru þekkt undir nafninu Daesh, og annarra tengdra samtaka.

Í framangreindum gögnum kemur fram að frá árinu 1968 til 2003 hafi Írak verið alræðisríki sem hafi lotið stjórn Ba‘ath-flokksins. Stjórn flokksins hafi verið steypt af stóli í kjölfar innrásar bandaríska hersins og bandamanna þeirra í Írak árið 2003. Frá innrásinni hafi ástandið á mörgum svæðum í Írak verið óstöðugt. Hafi samtök sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIS) hafið uppreisn árið 2014 og náð undir sig stórum landsvæðum. Frá þeim tíma hafi íröksk stjórnvöld, með aðstoð alþjóðasamfélagsins, náð miklum árangri í að ná aftur fullri stjórn yfir ríkinu þótt enn séu lítil svæði í vesturhluta landsins sem uppreisnarmenn hafi á valdi sínu. Þá hafi íröksk yfirvöld ekki fulla stjórn yfir hersveitum sínum og dæmi séu um að hersveitir á vegum yfirvalda fremji mannréttindabrot gegn almennum borgurum, þ. á m. ólögmætar aftökur og pyndingar í varðhaldi. Alvarleg mannréttindabrot og brot á mannúðarlögum hafi haft mikil áhrif á almenna borgara á þeim svæðum í Írak sem átökin hafi náð til. Af þeim sökum hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum Íraka frá þeim svæðum þar sem átök geisi og þar sem ástandið sé óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn ISIS. Þá sé það mat stofnunarinnar að vegna almenns ástands í Írak, þ.m.t. vegna fjölda þeirra sem hafi þurft að flýja innanlands, sé í miklum meirihluta mála ekki grundvöllur til að líta svo á að Írakar frá þessum svæðum geti notið verndar í öðrum hlutum landsins.

Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa Kúrdistan að tilstuðlan forseta Kúrdistan þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis Kúrdistan. Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og viðurkenndu ekki niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan Kúrdistan og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti Kúrdistan sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í Kúrdistan en það eru PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í nýafstöðnum kosningum sem hafi farið fram þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í Kúrdistan. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna sem hann hafi orðið fyrir af hálfu nágranna síns sem hann telji að hafi tengsl við ISIS hryðjuverkasamtökin. Kærandi hafi verið leigubílsstjóri í heimaríki og hafi þann 2. febrúar 2018 keyrt nágranna sinn, [...], að landamærum Írans til að ná í tvo menn þar og hafi svo keyrt alla þrjá mennina í flóttamannabúðir í Tarjano. Um kvöldið sama dag hafi kærandi tilkynnt nágranna sinn og mennina tvo til lögreglu og Asaiysh öryggissveitarinnar. Asaiysh hafi handtekið fjóra menn í Tarjano en ekki nágranna kæranda þar sem hann hafi ekki verið á staðnum. Nágranninn hafi í kjölfarið hringt í kæranda og hótað honum og því hafi kærandi flúið frá heimaríki. Kærandi telji lögregluna ekki geta verndað sig.

Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd þann 7. febrúar 2019. Var vitnisburður kæranda í meginatriðum sambærilegur þeim sem hann gaf í viðtölum hjá Útlendingastofnun.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir af hendi írakskra stjórnvalda eða einstaklinga á þeirra vegum. Þá benda gögn málsins heldur ekki til þess að kærandi eigi slíkt á hættu. Kærunefnd leggur til grundvallar frásögn kæranda um að hann hafi orðið fyrir hótunum ákveðins einstaklings í heimaríki og að líkur séu á að sá einstaklingur hafi tengsl við hryðjuverkasamtök. Hins vegar styðja gögn málsins, einkum framburðar kæranda og ljósmynd af skjali útgefnu af lögreglunni í Sulaymaniyah, að lögregluyfirvöld hafi tekið kvörtun hans alvarlega og brugðist við. Jafnframt rennur frásögn kæranda stoðum undir það að Asaiysh öryggissveitin sé virk í hlutverki sínu að berjast gegn hryðjuverkum en hún hafi þann 2. febrúar 2018 strax brugðist við tilkynningum hans um mennina sem hann taldi hafa tengsl við hryðjuverkasamtök. Í greinargerð kæranda sem lögð var fram til kærunefndar kom fram að hann hafi tjáð talsmanni sínum þann 16. nóvember 2018 að lögreglan hafi náð að handsama nágranna hans, [...]. Í viðtali hjá kærunefnd staðfesti kærandi aðspurður framangreint.

Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um réttarvörslukerfið í KRI, þ.m.t. skýrsla dönsku útlendingastofnunarinnar frá 2016, benda jafnframt eindregið til þess að lögregla og öryggissveitir í KRI myndu bregðast án tafar við upplýsingum um mögulega virkni ISIS samtakanna innan sjálfsstjórnarsvæðisins. Að mati kærunefndar benda gögn málsins, bæði þau sem kærandi hefur sjálfur lagt fram og skýrslur um aðstæður í heimaríki kæranda, því ekki til þess að lögreglan geti ekki eða vilji ekki veita honum viðeigandi vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, árásir eða hótanir. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hann telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Eins og rakið er í greinargerð kæranda hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum einstaklinga til Íraks sem koma frá þeim svæðum þar sem átök geisa; þar sem ástandið er óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn ISIS samtakanna eða þeim svæðum þar sem ISIS er enn við völd. Þá telur Flóttamannastofnun óráðlegt að senda einstaklinga frá slíkum svæðum til annarra svæða innan Íraks. Samkvæmt þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar er ljóst að heimabær kæranda, Sulaymaniyah, sé á öruggu svæði í KRI. Verður því ekki talið að viðvörun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eigi við um einstaklinga sem séu í sambærilegri stöðu og kærandi.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Eins og að framan greinir benda skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur farið yfir eindregið til þess að svæði KRI sé talið öruggt og að lögregla og öryggissveitir Kúrda séu öflugar og vel búnar. Þá sé heimabær kæranda, Sulimaniyah, langt inni í landi KRI þar sem lögregla og öryggissveitir hafi stjórn á aðstæðum. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu í KRI, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til KRI. Jafnframt er það mat kærunefndar, með vísan til skýrslna um aðstæður í heimaríki kæranda, að honum standi til boða vernd og aðstoð lögreglu í KRI telji hann sig þurfa á slíkri aðstoð að halda.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Þótt fallist verði á að langvarandi stríðstástand hafi ríkt í heimaríki kæranda hafa aðstæður í heimahéraði kæranda einkennst fremur af stöðugleika. Verður því ekki fallist á að kærandi hafi ríka þörf á vernd vegna þess stríðsástands sem ríkir í öðrum héruðum heimaríkis hans. Þá heldur kærandi því fram að yfirvöld í heimaríki geti ekki veitt honum þá vernd sem hann þarfnist. Eins og að framan hefur verið rakið er það niðurstaða kærunefndar að í heimahéraði kæranda standi honum til boða vernd og aðstoð lögreglu telji hann sig þurfa á slíkri aðstoð að halda.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi almennt heilbrigður. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir þar um. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 27. febrúar 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa sjálfviljugur landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Anna Tryggvadóttir                                                                        Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta