Mál nr. 1/2017 Úrskurður 6. janúar 2017
Mál nr. 1/2017 Eiginnafn: Ónar
Hinn 6. janúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 1/2017:
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Ónar (kk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Ónar tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ónars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Eiginnafnið Ónar (kk.) skal fært á mannanafnaskrá.