Mannanafnanefnd, úrskurður 1. desember 2011
Mál nr. 87/2011 Eiginnafn: Elba
Hinn 1. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 87/2011 en erindið barst nefndinni 28. nóvember:
Eiginnafnið Elba (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elbu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Elba (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.