Mál nr. 65/2012, úrskurður 18. október 2012
Mál nr. 65/2012 Eiginnafn: Leila
Hinn 18. október 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 65/2012 en erindið barst nefndinni 5. október:
Eiginnafnið Leila (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Leilu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Leila (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.