Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 177/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. mars 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 177/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17020017

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. febrúar 2017 kærði [...], fd. [...] (hér eftir nefndur kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. janúar 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd frá [...], synja honum um alþjóðlega vernd vegna aðstæðna í Grikklandi og synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar með vísan til 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Í gögnum málsins greinir að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd hjá lögreglunni á Suðurnesjum þann 12. nóvember 2016. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 25. nóvember 2016 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þann 26. janúar 2017 tók Útlendingastofnun ákvörðun í máli kæranda. Kærandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála við birtingu þann 7. febrúar 2017. Kærunefnd hefur borist greinargerð kæranda, dags. 10. mars 2017, ásamt viðbótargögnum.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi auk þess sem hann hefði fengið útgefið dvalarleyfi í Grikklandi sem gilti til 3. júní 2018. Lagði Útlendingastofnun það til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi væri [...] ríkisborgari eins og grískt dvalarleyfiskort og ferðaskilríki hans gæfu til kynna þrátt fyrir fullyrðingar kæranda um að hann væri frá [...].

Við meðferð málsins bar kærandi m.a. fyrir sig bágar aðstæður í Grikklandi. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði slegið því föstu að 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu legði ekki skyldu á aðildarríki til að sjá öllum sem dvelji innan lögsögu þeirra fyrir heimili og ekki almenna skyldu á aðildarríki að veita viðurkenndum flóttamönnum fjárhagsaðstoð í því skyni að gera þeim kleift að viðhalda tilteknum lífskjörum. Var það mat Útlendingastofnunar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Grikklands. Þá var kæranda synjað um alþjóðlega vernd vegna aðstæðna í Grikklandi þar sem kærandi, sem ríkisborgari [...], gæti ekki gæti ekki átt rétt á alþjóðlegri vernd sem flóttamaður vegna aðstæðna sinna í Grikklandi. Þá var kæranda synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga, og um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laganna

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun vísaði til þess að samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga frestaði kæra að meginreglu réttaráhrifum ákvörðunar um umsókn um alþjóðlega vernd. Með tilliti til atvika málsins var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæra skyldi fresta réttaráhrifum.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann vilji ekki fara aftur til Grikklands en þar hafi hann átt erfitt uppdráttar og verið hræddur. Árið 2015 hafi kærandi greitt smyglara til að komast frá Grikklandi til Ítalíu en á leiðinni hafi kærandi [...]. Þá sé kærandi [...] en hafi ekki leitað sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi því þar þurfi að greiða fyrir alla læknisþjónustu og lyf. Í Grikklandi hafi kærandi upprunalega verið skráður sem [...] í leit að alþjóðlegri vernd en hann sé í raun [...]. Hafi kærandi sagt rangt til um uppruna sinn í því skyni að hljóta alþjóðlega vernd enda hafi hann ekki átt annarra kosta völ þar sem grísk stjórnvöld hefðu sent hann til [...] hefðu þau haft vitneskju um raunverulegt ríkisfang hans.

Krafa kæranda um að verða ekki sendur aftur til Grikklands byggir aðallega á því að slík endursending jafngildi broti á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Við úrvinnslu málsins beri íslenskum stjórnvöldum að líta til þeirra gagna sem kærandi hafi lagt fram sem sýni fram á raunverulegt ríkisfang hans. Í rannsóknarskyldu stjórnvalda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, felist m.a. sú skylda stjórnvalds að sjá til þess, að eigin frumkvæði, að málsatvik stjórnsýslumáls séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin. Vegna þeirra upplýsinga um ríkisfang kæranda sem nú liggi fyrir, en kærandi lagði fram viðbótargögn sem hann kveður vera [...] fæðingarvottorð og skráningarskírteini, geti íslensk stjórnvöld ekki ábyrgst það að kærandi njóti löglegrar verndar í Grikklandi. Ríki því óvissa um það hvort hann verði sviptur þeirri vernd og sendur til heimaríkis þar sem líf hans sé í hættu. Sé því óheimilt, með vísan til 2. mgr. 42. gr. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, að senda kæranda til Grikklands.

Í greinargerð kæranda er einnig byggt á því að sérstakar ástæður, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, mæli með því að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Þá skuli, með vísan til 3. mgr. 36. gr. laganna, taka umsókn kæranda til efnismeðferðar þar sem óheimilt sé að endursenda hann til Grikklands enda væri slíkt brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement og samsvarandi ákvæði í 42. gr. laga um útlendinga.

Í framhaldinu er gerð grein fyrir ýmsum atriðum er varða aðstæður, aðbúnað og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi. Í alþjóðlegum skýrslum komi fram að skortur á samþættingar- og aðlögunarferlum hafi gert það að verkum að flóttamönnum í Grikklandi sé mismunað og jafnvel útskúfað félagslega og efnahagslega. Engin opinber stefna sé við lýði í landinu sem stuðli að atvinnuþátttöku viðurkenndra flóttamanna og aðgangur að atvinnu sé háður takmörkunum. Þá sé ekkert félagslegt húsnæði í boði í Grikklandi eða stuðningur, svo sem húsaleigubætur eða styrkir, til einstaklinga með alþjóðlega vernd. Að auki hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lýst yfir alvarlegum áhyggjum af kynþáttafordómum og mismunun sem ógni öryggi flóttafólks í Grikklandi. Kærandi upplifi óöryggi í Grikklandi og telji jafnvel ógerlegt að búa þar. Samkvæmt handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna geti einstaklingur hafa sætt meðferð sem í sjálfu sér jafngildi ekki ofsóknum en sé samtvinnuð öðru mótlæti. Þegar mismunandi þættir séu teknir saman sem ein heild við slíkar aðstæður geti einstaklingur rökstutt með skynsamlegum hætti staðhæfingar um ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Þá geti mismunun, t.d. á grundvelli kynþáttar, jafngilt ofsóknum brjóti hún gegn grundvallarmannréttindum.

Auk ofangreindra aðstæðna sem bíði kæranda í Grikklandi hafi hann orðið fyrir slysi í tilraun sinni til að komast frá Grikklandi til Ítalíu. [...]. Að mati kæranda sé hér um sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að ræða. Að sama skapi sé í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga áréttað að ef beiting 1. mgr. ákvæðisins leiði til þess að brotið verði gegn 42. gr. laganna, t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda eigi umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar.

Að lokum vísar kærandi til þess að í niðurstöðum Mannréttindadómstóls Evrópu hafi komið fram að aðildarríki mannréttindasáttmála Evrópu beri ólíkar skyldur gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd og einstaklingum með alþjóðlega vernd. Hins vegar sé síðarnefndi hópurinn einnig sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur og ekki ástæða til að greina á milli hópanna við mat á því hvort skilyrðum 3. gr. mannréttindasáttmálans sé fullnægt. Að mati kæranda jafnist aðstæður í Grikklandi á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka ekki til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd frá [...] og vísa honum frá landinu.

Í 1. mgr. 36. gr. núgildandi laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 3. júní 2018. Að mati kærunefndar hefur ekki þýðingu fyrir beitingu ákvæðisins að kærandi haldi því fram að hann sé í raun ríkisborgari [...] en ekki [...] og að alþjóðleg vernd hans í Grikklandi sé því byggð á röngum forsendum. Liggur þannig fyrir að kærandi hefur hlotið virka alþjóðlega vernd í Grikklandi og eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. laganna segir að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á 42. gr. laga um útlendinga verður m.a. að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður því að leggja mat á hvort aðstæður í Grikklandi brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. mannréttindasáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Kærunefndin hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2016 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 3. mars 2017),
  • 2015 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. apríl 2016),
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, nóvember 2015),

· ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015),

  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015) og

· State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2015 – Greece (Minority Rights Group International, 2. júlí 2015).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Samkvæmt ofangreindum skýrslum hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til Grikklands síðan árið 2009. Þá hefur stofnunin fjallað um slæm áhrif efnahagshrunsins á aðstæður í landinu og möguleika viðurkenndra flóttamanna á að aðlagast grísku samfélagi. Ljóst er að þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og eru stundum í raun félagslega útilokaðir. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til heilbrigðisþjónustu og félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér þau réttindi sem þeir eiga rétt á. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn flutningi þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til Grikklands. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má jafnframt ráða að kærandi geti leitað til lögreglu eða annarra stjórnvalda verði hann fyrir fordómum eða ofbeldi vegna kynþáttar.

Kærandi er [...] karlmaður. Eins og fram hefur komið kveðst kærandi hafa búið við bágar aðstæður í Grikklandi og orðið fyrir slysi þegar hann reyndi að komast til Ítalíu frá Grikklandi. Kveðst kærandi [...]. Þá kveðst kærandi vera [...]. Engin læknisfræðileg gögn hafa verið lögð fram fyrir kærunefnd um heilsufar kæranda. Það er mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Til stuðnings kröfu sinni hefur kærandi m.a. fært fram sjónarmið um að þær aðstæður sem hann megi búast við í Grikklandi falli undir ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og að íslenskum stjórnvöldum sé óheimilt að senda hann til landsins í ljósi ákvæða 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur slegið því föstu að 3. gr. mannréttindasáttmálans feli ekki í sér kröfu til aðildarríkja sáttmálans til þess að sjá öllum flóttamönnum fyrir heimili eða fjárhagslegri aðstoð til þess að viðhalda ákveðnum lífsskilyrðum, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) þann 2. apríl 2013.

Af fyrrnefndri ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu er ljóst að aðstæður kæranda sem einstaklings með alþjóðlega vernd, að því leyti sem þær lúta að skorti á húsnæði og fjárhagslegum stuðningi frá yfirvöldum í Grikklandi, verða ekki taldar til ómannlegrar og vanvirðandi meðferðar í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærunefnd hefur jafnframt lagt mat á aðstæður kæranda í Grikklandi að öðru leyti með þeirri niðurstöðu að þær verði ekki felldar undir ákvæði 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefndin komist að þeirri niðurstöðu að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem hafi áhrif á niðurstöðu málsins.

Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar, þegar horft er til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi og aðstæðna kæranda í heild sinni, að kærandi eigi ekki í yfirvofandi hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Grikklandi í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur þangað. Það er því niðurstaða kærunefndar að endursending kæranda til Grikklands feli ekki í sér brot á 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna, eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Þá er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í ljósi eðlis [...] sem kærandi kveðst þjást af og þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Grikklandi er það mat kærunefndar að leggja skuli til grundvallar í málinu að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 25. nóvember 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 12. nóvember 2016.

Fyrir liggur að kæranda hefur verið veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi. Kæranda hefur því verið veitt vernd í öðru ríki en heimaríki sínu. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd frá [...] og senda hann til Grikklands með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar var fjallað um rétt kæranda til þess að fá alþjóðlega vernd vegna aðstæðna í Grikklandi og komist að þeirri niðurstöðu að hann, sem ríkisborgari [...], gæti ekki átt rétt á alþjóðlegri vernd vegna aðstæðna sinna í Grikklandi þar sem hann hafði hlotið stöðu flóttamanns. Þá var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kærandi uppfyllti ekki skilyrði til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna.

Í 74. gr. núgildandi laga nr. 80/2016 um útlendinga er fjallað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í lokamálslið 1. mgr. 74. gr. laganna segir að ákvæðinu skuli ekki beitt nema skorið hafi verið úr um með efnismeðferð að útlendingur uppfylli ekki skilyrði alþjóðlegrar verndar. Kærunefnd telur ekki tilefni til að gera athugasemd við þá afstöðu Útlendingastofnunar að kærandi geti ekki átt rétt á alþjóðlegri vernd vegna aðstæðna sinna í Grikklandi þar sem hann er ríkisborgari [...]. Samkvæmt framansögðu og í ljósi lagaskilareglu 121. gr. laga nr. 80/2016 telur kærunefnd ekki skilyrði að lögum til útgáfu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða til handa kæranda, sbr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg I. Jónsdóttir

Frumrit:

Kærandi fær frumrit úrskurðar við birtingu.

Ljósrit:

Útlendingastofnun

Skógarhlíð 6

105 Reykjavík


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta