Mál nr. 83/2020 Úrskurður 21. september 2020
Mál nr. 83/2020 Eiginnafn: Morten (kk.)
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Morten (kk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Morten tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Mortens, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Morten (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.