Hoppa yfir valmynd

Nr. 304/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. október 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 304/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20070015

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. júlí 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Gana (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. júní 2020, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd, skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara og þrautaþrautaþrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. eða 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 28. desember 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 2. júní 2020 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 29. júní 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 14. júlí 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 5. ágúst 2020 ásamt fylgigögnum. Í greinargerð óskaði kærandi eftir því að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna þjóðernis síns.Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi. Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi m.a. greint frá því í þjónustuviðtölum hjá Útlendingastofnun að vera fæddur og uppalinn í bænum […] í Volta umdæmi í Gana. Þá kvaðst kærandi tilheyra þjóðernishópnum [...]. Hafi kærandi greint frá því að hafa flúið frá heimaríki vegna átaka á milli fólks frá […] og […] en langvarandi deilur hafi verið á milli þeirra vegna ágreinings um landsvæði. Íbúar […] tilheyri þjóðernishópnum […]. Ítrekaðar tilraunir yfirvalda í Gana til að stilla til friðar hafi ekki borið árangur. Deilurnar hafi lýst sér í tíðum árásum og að kærandi hafi oft orðið á vegi vopnaðra einstaklinga og neyðst til að flýja. Þá hafi kærandi orðið vitni að því að einstaklingur af sama uppruna og hann hafi verið tekinn af lífi af hálfu íbúa […] auk þess sem faðir hans hafi verið sleginn með exi í höfuðið en lifað af og frændi hans hafi verið myrtur. Í viðtali hafi kærandi greint frá því að hann eigi erfitt með að rifja umrædda atburði upp auk þess sem hann væri þunglyndur sem hafi haft áhrif á minni hans. Enn fremur væri kærandi hvergi óhultur í Gana þar sem auðvelt væri að bera kennsl á uppruna hans vegna mállýsku íbúa […].

Þá greinir kærandi frá aðstæðum í Gana. Helstu mannréttindabrot sem viðgangist í landinu séu m.a. manndráp stjórnvalda á andófsmönnum, lífshættulegar aðstæður í fangelsum landsins og spilling á öllum sviðum ríkisvaldsins. Þá sé ofbeldi af hálfu lögreglu og spilling mikið vandamál í landinu og skortur sé á því að mál séu rannsökuð auk þess sem lögum sé ekki framfylgt í þeim efnum. Líkt og að ofan greinir kveðst kærandi óttast íbúa […] vegna deilna þeirra við íbúa […], bænum sem kærandi kveðst koma frá. Deilurnar megi rekja til ársins […] og séu þær tilkomnar vegna landsvæðis sem íbúar […]búi á en íbúar […] telji sig eiga tilkall til. Friðarviðræður með aðkomu ríkisstofnana og samtaka hafi ekki skilað árangri. Þá hafi stjórnvöld í Gana m.a. ákveðið að setja upp herstöð á svæðinu árið 2017 til að draga úr blóðugum átökum. Fram kemur að lögreglustjórinn í […]héraði, sem bæði […] og […] tilheyra, hafi lýst […] sem starfsstöð fyrir vopnaframleiðslu sem hafi gert svæðið enn hættulegra.

Kærandi gerir athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar og trúverðugleikamat stofnunarinnar. Frásögn kæranda hafi þótt ónákvæm og óskýr þrátt fyrir samræmi í framburði hans í fyrra og seinna viðtali hjá stofnuninni. Hafi Útlendingastofnun m.a. byggt á því að frásögn kæranda varðandi áðurnefndar deilur um landsvæði væri yfirborðskennd og hafi kæranda t.a.m. verið ómögulegt að greina frá því hve lengi þær hefðu staðið yfir og hvaða landshluta […] umdæmi tilheyri innan Gana. Að auki hafi það þótt ótrúverðugt að faðir kærandi hafi lifað af árás með exi auk þess sem lýsing kæranda á notkun Voodoo töfra til þess að verjast árásum hafi þótt fjarstæðukennd. Í greinargerð byggir kærandi á því að í Gana sé venjan að líta á tíma sem röð atvika í stað þess að skilgreina hann í daga og klukkustundir eins og tíðkist hér á landi. Þá sé kærandi með lágmarksmenntun og því ósanngjarnt að gera kröfu um að hann viti hvar Volta umdæmið sé staðsett á korti. Hafi Útlendingastofnun ekki þótt frásögnin nægilega skýr hafi stofnuninni borið að eiga frumkvæði að því að leitast eftir nánari útskýringum, s.s með frekari spurningum. Þá bendi kærandi á að fyrirliggjandi heimildir beri með sér að íbúar […] trúi gjarnan á sérstaka guði sem verndi þá gegn hættu. Þá fái kærandi ekki séð á hvaða grundvelli Útlendingastofnun hafi metið það ótrúverðugt að faðir hans hafi lifað af árás með exi, enda sé ljóst að slíkar árásir geti verið með ýmsum hætti. Kærandi gerir jafnframt athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar en kærandi hafi m.a. ekki verið látinn gangast undir tungumála- og/eða staðháttarpróf til að ganga úr skugga um hvort hann eigi uppruna að rekja til […].

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga sem hafi falið í sér brot gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Mál skuli nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin og í því sambandi vísar kærandi til sjónarmiða, er varða túlkun á rannsóknarreglunni, sem komið hafi fram í úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli KNU17040035 frá 2. júní 2017. Líkt og áður hefur komið fram gerir kærandi athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli hans og að ekki hafi verið gripið til allra tiltækra úrræða til að upplýsa málið, s.s. með framkvæmd tungumála- og/eða staðháttarprófi. Vegna þessa hafi mál hans ekki verið nægjanlega upplýst áður en ákvörðun hafi verið tekin. Sé því um brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga að ræða sem leiða eigi til ógildingar á umræddri ákvörðun. Beri því að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar að nýju.

Varakröfu sína byggir kærandi á því að hann sé flóttamaður í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna þjóðernis síns, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga. Kærandi tilheyri þjóðernishópi […] en einstaklingar innan þess eigi sameiginlegan uppruna, tali sömu mállýskuna sem sé frábrugðin öðrum mállýskum og aðgreini sig frá öðrum í samfélaginu vegna menningarlegra hefða. Myndi einstaklingar […] því sérstakan þjóðernishóp í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Framburður kæranda og fyrirliggjandi gögn beri það með sér að átök hafi ítrekað brotist út með tilheyrandi ofbeldi og dauðsföllum á milli þjóðernishópanna […] og […]. Litlar líkur séu á því að friður náist og því sé mikil hætta á að kærandi verði fyrir ofsóknum í heimaríki verði honum gert að snúa aftur þangað. Sé um ástæðuríkan ótta við ofsóknir að ræða þar sem frændi kæranda hafi verið myrtur af umræddum aðilum auk þess sem faðir hans hafi orðið fyrir árás með exi. Þá hafi kærandi orðið vitni að aftöku og margsinnis komist nálægt því að vera gripinn af þeim. Umræddar ofsóknir stafi frá aðilum ótengdum ríkinu, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, en vegna þess að yfirvöldum í Gana hafi ekki tekist að stilla til friðar á milli hópanna sé kæranda ekki fært að leita sér verndar hjá yfirvöldum í Gana. Vegna framangreinds eigi kærandi rétt á alþjóðlegri vernd á grundvelli 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga.

Þrautavarakröfu sína byggir kærandi á því að hann sé flóttamaður í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Í því sambandi vísar kærandi til þeirra átaka sem geisað hafi á milli hópa […] og […] sem áður hefur verið greint frá. Þá sé flutningur innanlands hvorki raunhæfur né sanngjarn kostur í máli kæranda þar sem átök á milli umræddra hópa hafi náð utan […] umdæmis auk þess sem auðvelt sé að bera kennsl á kæranda vegna mállýsku […] þjóðernishópsins. Skorti kæranda að auki allt stuðningsnet, glími við heilsufarsvandamál auk þess sem ferðir innan Gana séu ákaflega erfiðar utan höfuðborgar landsins vegna lélegs vegakerfis og ræningja sem sitji um vegi. Þar sem kærandi sé flóttamaður í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eigi hann rétt á alþjóðlegri vernd, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.

Þrautaþrautavarakröfu sína byggir kærandi á því að honum skuli veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, þar sem hann hafi ríka þörf fyrir vernd. Kröfu sinni til stuðnings byggir kærandi m.a. á því að hann sé uppalinn á svæði þar átök hafi geisað alla hans tíð, yfirvöld hafi ekki vilja eða getu til að leysa átökin upp, hann hafi tapað öllum tengslum við fjölskyldu sína og eigi við andlega erfiðleika að stríða. Séu skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða því uppfyllt í máli kæranda.

Þrautaþrautaþrautavarakröfu sína byggir kærandi á því að honum skuli veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þar sem 18 mánuðir séu liðnir frá því að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og hann hafi ekki enn fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi. Stafliðir 2. mgr. 74. gr. laganna standi ekki í vegi fyrir því kæranda skuli veitt vernd á grundvelli ákvæðisins. Hvað b-lið varðar þá hafi kærandi lagt fram ljósmynd af fæðingarvottorði sínu og frumrit af skólavottorði til að sanna á sér deili en hann hafi aldrei fengið útgefið vegabréf í heimaríki. Þá eigi stafliðir 3. mgr. 74. gr. sömu laga heldur ekki við í tilviki kæranda. Vegna framangreinds beri íslenskum stjórnvöldum að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað ljósmynd af fæðingarskráningarvottorði og einkunnaskírteini sínu. Þar sem ómögulegt hafi verið að kanna áreiðanleika og uppruna umræddra gagna leysti stofnunin úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Það var mat Útlendingastofnunar að kærandi sé ríkisborgari Gana. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefur tilefni til að draga í efa þjóðerni kæranda. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram frumrit af einkunnaskírteini, útgefnu árið 2009 af skóla í heimaríki hans. Þá hefur kærandi lagt fram frumrit af skjali sem hann kveður vera fæðingarvottorð. Á skjalinu koma m.a. fram upplýsingar um nafn kæranda og foreldra hans, en á því er hvorki mynd af kæranda, fingrafar eða annað sem tengt gæti kæranda við skjalið. Umrædd gögn voru send til rannsóknar hjá skilríkjarannsóknastofu lögreglunnar á Suðurnesjunum þann 29. september 2020. Var það niðurstaða rannsóknarinnar að bæði skjöl væru traust og að þar væri enga fölsun að sjá. Í skýrslunni kom fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um skráningar fæðinga í Gana væri ekki óalgengt að þær væru gerðar löngu eftir fæðingu. Slík skráning byggði þá á eiðsvörnum vitnisburði upplýsingagjafa, sem oftast væri foreldri eða náinn ættingi einstaklings, til staðfestingar á persónuupplýsingum hans. Slíkar síðbúnar skráningar kynnu að vera ónákvæmar. Þá væri útgáfuferli fæðingarskráningarvottorða ótraust að því leyti að vitnisburðir sem liggja til grundvallar útgáfunni væru varðveittir á pappír í sex mánuði í höfuðstöðvum útgáfuyfirvaldsins (e. Births and Deaths Registry in Accra) áður en þeim væri eytt. Því væri ekki hægt að ganga úr skugga um að umsækjandi hafi ekki áður sent inn umsókn undir öðru auðkenni eða hvort upplýsingar sem sendar væru inn til að fá endurútgefið fæðingarskráningarvottorð væru réttar. Er það mat kærunefndar, m.t.t. niðurstöðu úr umræddri skjalarannsókn, að framangreind gögn upplýsi ekki með fullnægjandi hætti til um auðkenni kæranda. Við úrlausn málsins verður því lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Gana, en að öðru leyti sé auðkenni hans óljóst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Gana m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • BTI 2018 Country Report – Ghana (Bertelsmann Stiftung, 2018);
  • Constitution of the Republic of Ghana (https://www.refworld.org/docid/3ae6b5850.html, skoðað 23. júlí 2019); 
  • Country Policy and Information Note – Ghana: Medical and healthcare issues (U.K. Home Office, júní 2019);
  • Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, Ghana: State involvement in chieftaincy matters, such as blood rituals for deceased chiefs and their successors, including legislation; consequences of divulging a secret ritual to another member of the same ethnic group, including the Kotokoli in the Volta region; state protection available to individuals that do not comply with chieftaincy rules and traditions (2014-April 2017) (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 2. maí 2017);
  • Freedom in the World 2020 – Ghana (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Ghana National Social Protection Policy (Ministry of Gender, Children and Social Protection, nóvember 2015);
  • Ghana: Act No. 456 of 1993, Commission of Human Rights Act (https://www.refworld.org/docid/44bf7f804.html, skoðað 16. júlí 2020);
  • Ghana: Act No. 29 of 1960, Criminal Offences Act (https://www.refworld.org/docid/44bf823a4.html, skoðað 16. júlí 2020);
  • Ghana: Scrap death penalty and end grim conditions for scores on death row (Amnesty International, 12. júlí 2017);
  • Ghana 2018 Human Rights Report (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Ghana 2020 Crime and Safety Report (Overseas Security Advisory Council, 8. maí 2020);
  • Ghana 2019 Human Rights Report (U.S. Department of State, 11. mars 2020);
  • Ghana 2019 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 10. júní 2020);
  • National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex of Human Rights Council resolution 16/21 – Ghana (General Assembly, United Nations, 25. ágúst 2017);
  • Quality of Health Care in Ghana: Mapping of Interventions and the Way Forward (Ghana Medical Journal, 16. janúar 2017);
  • Social Security Programs Throughout the World: Africa, 2019 – Ghana (U.S. Social Security Administration, september 2019);
  • Ghana: Current Peace and Security Dynamics in Perspective (West Africa Network for Peacebuilding (WANEP), júní 2019);
  • […];
  • […];
  • Statement on Visit to Ghana, by Professor Philip Alston, United Nations Special Rapporteur on extreme poverty and human rights (United Nations Human Rights Office of the High Commissioner (OHCHR), 18. apríl 2018) og
  • The World Factbook – Ghana (CIA, 11. ágúst 2020).

Samkvæmt upplýsingum frá World Factbook er Gana lýðræðisríki með rúmlega 29 milljónir íbúa. Gana var fyrsta nýlendan í Vestur-Afríku sem lýsti yfir sjálfstæði árið 1957 og sama ár gerðist Gana aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti mannréttindasáttmála Afríku árið 1989 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990 og valfrjálsa viðbótarbókun um þátttöku barna í vopnuðum átökum við þann samning árið 2014. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 2000. Gana fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2000 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2016. Þá fullgilti ríkið sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2007.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að alvarlegustu mannréttindabrotin í Gana séu m.a. handahófskennd og manndráp af hálfu yfirvalda, slæm aðstaða fanga í fangelsum, ofbeldi gagnvart blaðamönnum, spilling á öllum stigum ríkisstjórnar og ofbeldi gagnvart konum og börnum. Einnig séu dæmi um að lögregla beiti almenna borgara ofbeldi og bregðist ekki við kvörtunum. Þá sé refsileysi embættismanna vandamál, þrátt fyrir að stjórnvöld hafi tekið skref í áttina að því að refsa embættismönnum sem gerist sekir um misbeitingu valds í störfum sínum, bæði hjá öryggissveitum og í öðrum ríkisstofnunum. Lögreglueftirlitið (e. The Office of the Inspector General of Police), sjálfstæð mannréttindanefnd (e. The Commission on Human Rights and Administrative Justice (CHRAJ)) og skrifstofa lögreglu um faglega staðla (e. The Police Professional Standards Bureau (PPSB)) rannsaki tilkynningar um misbeitingu valds af hálfu öryggissveita. PPSB rannsaki einnig mannréttindabrot og misferli af hálfu lögreglumanna. Undir ágústlok 2018 höfðu 1.144 kvartanir vegna mismunandi brota af hálfu lögreglu borist PPSB á því ári, þar af hafi 210 rannsóknum verið lokið og 934 væru enn í rannsókn. Ekki hafi borist neinar tilkynningar um handahófskenndar handtökur eða þvinguð mannshvörf af hálfu lögreglu.

Fram kemur í skýrslu Freedom House frá 2020 að sjálfstæði dómstóla sé tryggt í stjórnarskrá og löggjöf ríkisins og hlutleysi dómstóla hafi aukist á undanförnum árum. Þó standi dómskerfið enn frammi fyrir áskorunum vegna spillingar og mútuþægni. Í kjölfar skýrslu sem gefin hafi verið út af rannsóknarblaðamanni árið 2015 um spillingu innan dómskerfisins í Gana hafi forseti Hæstaréttar þar í landi komið á fót sérstakri nefnd sem rannsaki ásakanir um spillingu innan dómskerfisins. Rannsóknir nefndarinnar hafi leitt til brottreksturs tólf hæstaréttardómara, 22 lægra settra dómara og 19 annarra starfsmanna innan dómskerfis ríkisins. Árið 2018 hafi fjórum hæstaréttardómurum til viðbótar verið vikið úr starfi af forseta landsins eftir að hafa orðið uppvísir að spillingu. Þá sé einnig sérstök deild innan ganverska dómsmálaráðuneytisins sem taki á móti kvörtunum frá almenningi, m.a. vegna óréttlátrar málsmeðferðar, ólögmætrar handtöku, ólögmæts gæsluvarðhalds og spillingu af hálfu dómara. Stjórnvöld virði almennt úrskurði dómara og stjórnarskrárvarin réttindi sakborninga séu að mestu leyti tryggð. Stjórnvöldum beri þó ekki skylda til að útvega sakborningum lögfræðing og því þurfi margir sem hafi ekki efni á lögfræðiaðstoð að verja sig sjálfir. Í skýrslu frjálsu félagasamtakanna Amnesty International frá 2018 kemur fram að aðgengi að dómstólum sé takmarkað, þá einkum fyrir efnalítið fólk og minnihlutahópa. Ganversk stjórnvöld haldi þó úti endurgjaldslausri lögfræðiþjónustu sem kallist Ghana Legal Aid Scheme sem hugsuð séu til að aðstoða framangreindan hóp fólks. Sökum skorts á fjármagni séu þó einungis 23 lögfræðingar sem bjóði lögfræðiaðstoð á vegum verkefnisins í öllu ríkinu.Á síðustu áratugum hafi náðst nokkur árangur við að bæta gæði og aðgengi að heilbrigðisþjónustu í landinu. Skortur sé á læknum og hjúkrunarfræðingum en fjöldi þeirra á hvern íbúa hafi þó aukist. Þá hafi stefnur og aðgerðaráætlanir verið gerðar og kynntar og grunnheilbrigðisþjónusta hafi verið efld. Í samanburði við önnur lönd í Afríku sé heilbrigðiskerfið í Gana þróað og sé almennt með fullnægjandi hætti að mati alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Árið 2003 hafi sjúkratryggingakerfi landsins (e. The National Health Insurance Scheme (NHIS)) verið stofnað til þess að tryggja ódýra grunnheilbrigðisþjónustu fyrir alla íbúa landsins. Þá hafi mæðravernd verið gerð gjaldfrjáls árið 2008, sem og geðheilbrigðisþjónusta árið 2012. Gagnrýnt hafi þó verið að aðgengi og þjónusta sé misgóð eftir landsvæðum og íbúar á þéttbýlli svæðum og efnameiri fjölskyldur hafi verið í betri stöðu en aðrir íbúar landsins. Þá sé algengt að þeir sem eigi fjármagn greiði fyrir heilbrigðisþjónustu hjá einkareknum sjúkrahúsum þar sem gæði þjónustunnar séu talin betri þar.

Lög kveði á um skyldubundna aðild almennings að almannatrygginga- og lífeyriskerfinu í Gana (e. Social Security and National Insurance Trust Pension Scheme) sem og sjúkratryggingakerfinu (e. National Health Insurance Scheme). Sú aðild sé þó ekki alltaf tryggð á hinum óformlega vinnumarkaði. Lengi vel hafi ekki verið félagslegt kerfi á vegum ríkisins í Gana. Þá hafi einstaklingar í erfiðri félagslegri stöðu, t.d. atvinnulausir, þurft að reiða sig á fjölskyldumeðlimi. Aðgangur að félagslegri aðstoð hjá ganverskum yfirvöldum sé því tiltölulega nýtilkominn. Árið 2007 hafi ganversk yfirvöld samþykkt framkvæmdaáætlun, The Ghana National Social Protection Strategy (GNSPS). Tilgangur hennar sé að draga úr fátækt, minnka ójöfnuð og auka lífsgæði Ganverja. Þessum markmiðum skuli m.a. náð með því að koma á fót félagslegu kerfi þar sem hægt sé að sækja um fjárhagsaðstoð. Sem dæmi hafi ganversk stjórnvöld sett á stofn styrktarsjóðinn LEAP (e. the Livelihood Empowerment Against Poverty Programme). Tilgangur sjóðsins sé að veita þeim allra fátækustu í samfélaginu aðstoð í formi reiðufjár og sjúkratryggingar. Styrkurinn veiti börnum fátækra fjölskyldna möguleika á menntun og fjölskyldunum tækifæri á að standa skil á skuldum sínum. Aðgengi að LEAP-verkefninu sé þó bundið við sárafátækar fjölskyldur með gamalmenni, fatlað fólk, munaðarlaus eða viðkvæm börn eða ungabörn undir tveggja ára aldri á sínu framfæri. Styrktarsjóður LEAP sé fjármagnaður af ganverskum yfirvöldum, Alþjóðabankanum og bresku þróunarsamvinnustofnuninni (e. Department for International Development). Einnig séu til staðar aðrar áætlanir á vegum stjórnvalda sem aðstoði fjölskyldur í efnahagslegum vanda við að borga skólamáltíðir og skólagjöld barnanna.

Samkvæmt skýrslu ráðgjafaráðs öryggismála frá árinu 2019 hafi höfðingjadeilur verið viðvarandi í marga áratugi í Gana, einkum á svæði Brong Ahafo og í norður og norðaustur hluta landsins. Höfðingjadeilurnar hafi myndast í tengslum við samkeppni um landsvæði og náttúruauðlindir á svæðunum og einstaklingar hafi slasast og látið lífið í slíkum deilum auk þess sem eignatjón hafi verið talsvert. Þá leiði átök vegna slíkra deilna ítrekað til þess að fólk þurfi að yfirgefa heimili sín og leita á náðir hjálparsamtaka um aðstoð. Í skýrslu kanadísku flóttamannastofnunar kemur fram að lögreglan eigi það til skipta sér ekki af ættbálkamálum þar sem hún forðist að blanda sér í ættbálkahefðir. Það fari eftir alvarleika brotsins hvort lögreglan skipti sér af þessum hefðum. Ganverska stjórnarskráin banni stjórnvöldum að standa í vegi fyrir framkvæmd hefða í landinu, en hún skyldar jafnframt stjórnvöld til að standa vörð um mannréttindi. Af ofangreindum heimildum má ráða að deilur séu á milli annars vegar íbúa í bænum […]og hins vegar íbúa í bænum […]. Deiluna megi rekja allt til ársins […]en grundvöllur hennar sé ágreiningur um tiltekið landsvæði, en á umræddu svæði megi finna ýmsar verðmætar auðlindir. Deilan hafi í a.m.k. átta tilvikum leitt til átaka þar sem ofbeldi hafi verið beitt, þ.e. árin 1923, 1983, 2003, 2004, 2012, 2013, 2015 og 2017. Í síðasta skráða tilviki hafi m.a. þrjár manneskjur misst lífið í árás sem hafi borið þess merki að um umsátur hafi verið að ræða. Þá liggi fyrir að stjórnvöld hafi í gegnum tíðina gripið til ýmissa úrræða til þess að koma á friði á umræddu svæði, s.s. með sáttamiðlunarnefndum. Stjórnvöld hafi lýst yfir áætlunum að koma herstöð fyrir á svæðinu til að draga úr átökum á því. Úrræðin hafi þó enn sem komið er ekki skilað tilætluðum árangri.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hann óttist ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til aðildar hans að tilteknum þjóðernishópi sem eigi í útistöðum við einstaklinga innan annars þjóðernishóps vegna ósættis um ákveðið landsvæði. Deilur hópanna séu þess eðlis að kærandi sé í stöðugri hættu á að vera tekinn af lífi og að hann geti hvorki leitað ásjár lögreglu eða yfirvalda né flutt sig um set innan heimaríkis þar sem hann sé hvergi óhultur.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri frá bænum […] í Gana. Kærandi hafi flúið þaðan vegna ótta við íbúa frá […], sem sé nágrannabær […]. Kærandi hafi margsinnis neyðst til að flýja íbúa […] sem hafi ætlað sér að elta hann uppi. Þá hafi kærandi orðið vitni að því að óþekktur einstaklingur hafi verið hálshöggvinn af íbúum […]. Til viðbótar hafi faðir hans orðið fyrir árás með exi og hlotið skaða af auk þess sem frændi hans hafi verið myrtur.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram það mat stofnunarinnar að frásögn hans af umræddum landsvæðadeilum hafi verið yfirborðskennd og ekki þótt bera þess merki að hún kæmi frá íbúa sem búið hefði á svæðinu nær alla sína ævi. Þá hafi frásögn kæranda af notkun Voodoo töfra til þess að vernda íbúa […] fyrir árásum íbúa […], auk þess sem einhvers konar töfrar hafi mögulega hjálpað föður hans að komast lífs af undan árás sem áður hefur hefur verið greint frá, þótt fjarstæðukennd. Enn fremur hafi kærandi ekki lagt fram nein gögn sem rennt gætu stoð undir frásögn hans af atburðum sem hann hafi upplifað og tengdust deilum íbúa […] og […].

Að virtum framburði kæranda í viðtölum hjá Útlendingastofnun frá því hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd og þegar litið er til ófullkominnar rannsóknar stofnunarinnar á þessu atriði telur kærunefnd að leggja skuli til grundvallar að kærandi hafi verið búsettur í bænum […] í heimaríki. Eftir að hafa kynnt sér endurrit af viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun er það þó mat kærunefndar að frásögn kæranda af atburðum á umræddu svæði hafi verið yfirborðskennd og ónákvæm á köflum, einkum þegar tillit er tekið til þess að kærandi kveðst hafa upplifað þá af eigin raun eða frétt af þeim frá aðilum tengdum honum. Þá er til þess að líta að samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér hafi aðeins átta tilvik verið skráð þar sem ofbeldi hafi verið beitt á milli íbúa […] og […] vegna fyrrnefndrar deilu á þessari og síðustu öld. Í ljósi þess hversu fá tilvik hafi verið skráð þar sem ofbeldi hefur verið beitt í deilum á milli þessara hópa þá er það mat kærunefndar að frásögn kæranda þess efnis að hann hafi annars vegar orðið vitni að því að einstaklingur hafi verið hálshöggvinn og hins vegar að tveir fjölskyldumeðlimir hans hafi lent í alvarlegum árásum af hálfu íbúa […], n.t.t. að frændi hans hafi verið myrtur og faðir hans verið sleginn í höfuðið með exi, sé ótrúverðug og verður hún ekki lögð til grundvallar í málinu. Þá lítur kærunefnd einnig til þess að kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem sýna fram á að umræddir atburðir hafi í raun gerst.

Kærandi kvaðst einnig vera í stöðugri hættu á að verða fyrir árás af hálfu íbúa […]. Kvað kærandi það vera nóg fyrir umræddan hóp að heyra hann tala þar sem einstaklingar innan hans myndu þekkja mállýsku hans. Vegna þess væri kærandi hvergi óhultur í Gana. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér í málinu bera með sér að spenna sé á því svæði sem kærandi kveðst vera frá vegna fyrrnefndrar deilu milli íbúa í […] og […]. Ofangreindar heimildir benda hins vegar til þess að ýmsar tilraunir hafi verið gerðar til þess að stilla til friðar á svæðinu, þ. á m. af hálfu stjórnvalda. Í því sambandi hafi stjórnvöld t.a.m. komið á útgöngubanni á svæðinu, sent friðarsveitir á svæðið frá árinu 2002 auk þess sem herlið hafi einnig verið staðsett á svæði sem aðskilji bæina […] og […]. Af þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér þá átti síðasta skráða árás á milli umræddra hópa sér stað árið 2017 eða fyrir um þremur árum síðan. Þá ítrekar kærunefnd það sem áður hefur komið fram að aðeins hafi átta árásir verið skráðar á síðustu 100 árum þar sem ofbeldi hafi verið beitt í deilum umræddra hópa. Gögn málsins og þær heimildir sem kærunefnd hefur kynnt sér benda því ekki til þess að einstaklingar frá […], hvar kærandi kveðst vera uppalinn, eigi á hættu meðferð sem talist geti ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Gana sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Jafnframt hefur ekki verið sýnt fram á að stjórnvöld í Gana geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hann telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi byggir á því að aðstæður í heimaríki hans séu erfiðar vegna fyrrnefndrar deilu og átaka á milli íbúa í bæjunum […] og […]. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Kærandi byggir einnig á því að félagslegar aðstæður hans verði erfiðar í heimaríki, en hann hafi tapað öllum tengslum við fjölskyldu sína og hafi ekkert félagslegt bakland. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki og þess að kærandi eigi fjölskyldu og hafi getað séð fyrir sér með vinnu í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu, að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði skv. 37. og 39. gr. laganna. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-lið 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi er, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd þann 28. desember 2018. Kærandi hefur ekki enn fengið niðurstöðu í máli sínu hjá kærunefnd útlendingamála. Frá því kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, dags. 17. september 2020, eru liðnir 18 mánuðir. Kærandi telst því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd framvísaði kærandi frumritum af fæðingarskráningarvottorði og einkunnaskírteini frá Gana vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd hér á landi. Líkt og að ofan greinir voru umrædd skjöl send í skjalarannsókn hjá lögreglunni á Suðurnesjunum þann 29. september sl. Niðurstöður úr rannsókninni bárust kærunefnd þann 23. október sl. og var skýrslan send talsmanni kæranda til andmæla þann 27. október sl. Svar frá talsmanni barst samdægurs þar sem kom fram að ekki væri talin þörf á því að koma andmælum á framfæri við skjalarannsóknarskýrsluna. Í skýrslunni kom m.a. fram að skjölin hafi í grunninn verið traust og að enga fölsun hafi verið að sjá. Einnig kom fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um skráningar fæðinga í Gana væri ekki óalgengt að þær væru gerðar löngu eftir fæðingu. Þá byggði skráning kæranda á eiðsvörnum vitnisburði upplýsingagjafa, þ.e. föður kæranda, til staðfestingar á persónuupplýsingum hans en að slíkar síðbúnar skráningar kunni að vera ónákvæmar. Auk þess væri útgáfuferli fæðingarskráningarvottorða ótraust að því leyti að vitnisburðir sem liggja til grundvallar útgáfunni væru varðveittir á pappír í sex mánuði í höfuðstöðvum útgáfuyfirvaldsins (e. Births and Deaths Registry in Accra) áður en þeim væri eytt. Því væri ekki hægt að ganga úr skugga um að umsækjandi hafi ekki áður sent inn umsókn undir öðru auðkenni eða hvort upplýsingar sem sendar væru inn til að fá endurútgefið fæðingarskráningarvottorð væru réttar. Á heimasíðu bandaríska utanríkisráðuneytisins má m.a. finna upplýsingar um skráningar fæðinga og útgáfu fæðingarskráningarvottorð í Gana. Þar segir m.a. að fæðingarskráningar sem séu ekki gerðar innan árs frá fæðingu séu ekki áreiðanleg sönnun fyrir auðkenni viðkomandi aðila þar sem oft sé gengið frá skráningum, og þá sérstaklega síðbúnum skráningum, að beiðni aðila án þess að beiðnin sé studd fullnægjandi fylgigögnum.

Á meðal skilyrða fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða er að ekki leiki vafi á því hver umsækjandi um alþjóðlega vernd er, sbr. b-liður 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Af afdráttarlausu orðalagi ákvæðisins má ráða að þröskuldurinn fyrir sönnun á auðkenni umsækjenda um alþjóðlega vernd sé hár. Þarf fullyrðing umsækjenda um auðkenni sitt því að vera studd með fullnægjandi gögnum, s.s. vegabréfi eða öðru traustu auðkennisskírteini útgefnu af stjórnvöldum í heimaríki umsækjanda. Af fyrirliggjandi gögnum í málinu, þ. á m. skjalarannsóknarskýrslu lögreglunnar á Suðurnesjunum og upplýsingum af heimasíðu bandaríska utanríkisráðuneytisins, er ljóst að nokkur óvissa ríki um áreiðanleika framlagðs fæðingarskráningarvottorðs kæranda. Þó svo að fallast megi á að fæðingarskráningarskírteinið gefi til kynna hver kærandi sé verði áreiðanleiki þess ekki slíkur að ekki leiki vafi á því hver hann sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá telji kærunefnd að einkunnaskírteini geti ekki verið fullnægjandi grundvöllur fyrir því að umsækjandi teljist hafa sýnt fram á auðkenni sitt. Er það því mat kærunefndar að þó að framlögð gögn í máli kæranda hafi, metin saman, leitt líkur að því að hann sé sá sem hann kveðst vera, sé skilyrði b-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga ekki uppfyllt í máli hans, þar sem enn ríki nokkur óvissa um auðkenni hans.

Með vísan til fyrri umfjöllunar telur kærunefnd hvorugt vottorðanna sýna fram á auðkenni kæranda svo ekki leiki vafi á því hver hann er, sbr. b-liður 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá hefur kærandi ekki lagt fram önnur gögn sem gætu staðfest auðkenni hans. Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði því ekki skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem kærandi uppfyllir ekki skilyrði b-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verður honum ekki veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laganna.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar á frásögn hans. Var það mat kæranda að Útlendingastofnun hefði m.a. borið að leggja frekari spurningar fyrir hann og láta framkvæma tungumála- eða staðháttarpróf til þess að ganga úr skugga um hvort að kærandi ætti uppruna sinn að rekja til […]. Þar sem það hafi ekki verið gert hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Vegna þessa bæri að ógilda hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd telur að það hefði verið í betra samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að kanna betur uppruna kæranda, t.d. með tungumála- og staðháttaprófi, ef uppruninn hefði haft veruleg áhrif á niðurstöðu. Í ljósi þess að kærunefnd féllst á frásögn kæranda um uppruna sinn innan Gana er ekki ástæða til að gera frekari athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar að þessu leyti. Kærunefnd telur þó að ummæli Útlendingastofunnar, um að skýringar kæranda á því af hverju faðir kæranda lifði af ætlaða árás með exi hafi verið fjarstæðukenndar, teljist ekki viðeigandi og úr nokkrum tengslum við þann menningarheim sem kærandi virðist koma úr.

Hins vegar, eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt mat á trúverðugleika frásagnar kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun í meginatriðum. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera frekari athugasemdir við hana eða rannsókn stofnunarinnar. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 27. desember 2018 og sótti um alþjóðlega vernd 28. desember 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun. Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi COVID-19 faraldursins er athygli kæranda einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.  

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Sandra Hlíf Ocares                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta