Mál nr. 39/2022 Úrskurður 5. apríl 2022
Mál nr. 39/2022 Eiginnafn: Eyvin (kk.)
Hinn 5. apríl 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2022 en erindið barst nefndinni 28. mars. Nefndina skipa í máli þessu Auður Björg Jónsdóttir, formaður, Finnur Ágúst Ingimundarson og Jóhannes Bjarni Sigtryggsson
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Eyvin (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eyvins, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eyvin (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.