Mál nr. 10/2017 Úrskurður 9. febrúar 2017
Mál nr. 10/2017 Millinafn: Kelddal
Hinn 9. febrúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2017 en erindið barst nefndinni 27. janúar:
Millinafnið Kelddal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Kelddal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Kelddal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.