Mál nr. 12/2017 Úrskurður 8. febrúar 2017
Mál nr. 12/2017 Eiginnafn: Lofthildur
Hinn 8. febrúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 12/2017:
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Lofthildur (kvk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Lofthildur tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lofthildar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Eiginnafnið Lofthildur (kvk.) skal fært á mannanafnaskrá.