Mál nr. 103/2023 Úrskurður 2. október 2023
Mál nr. 103/2023 Eiginnafn: Brynylfa (kvk.)
Hinn 2. október 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 103/2023 en erindið barst nefndinni 22. ágúst.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Brynylfa (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Brynylfu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Brynylfa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.