Mál nr. 52/2019 úrskurður 7. ágúst 2019
Mál nr. 52/2019 Eiginnafn: Mordekaí
Hinn 7. ágúst 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 52/2019, en erindið barst nefndinni 25. júní.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Mordekaí tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Mordekaís, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.