Mál nr. 11/2016 Úrskurður 4. mars 2016
Mál nr. 11/2016 Eiginnafn: Toddi
Hinn 4. mars 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 11/2016 en erindið barst nefndinni 12. febrúar:
Eiginnafnið Toddi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Todda, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Toddi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.