Mál nr. 14/2016 Úrskurður 4. mars 2016
Mál nr. 14/2016 Eiginnafn: Ára
Hinn 4. mars 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2016 en erindið barst nefndinni 3. mars:
Eiginnafnið Ára (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Áru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ára (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.