Mál nr. 18/2016 Úrskurður 1. apríl 2016
Mál nr. 18/2016 Eiginnafn: Kinan
Hinn 1. apríl 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 18/2016 en erindið barst nefndinni 8. mars:
Eiginnafnið Kinan (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kinans, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kinan (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.