Hoppa yfir valmynd

Nr. 289/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 13. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 289/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030053

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 25. mars 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Verði ekki fallist á það krefst kærandi í öðru lagi að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 20. desember 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Við umsókn framvísaði kærandi ítölsku ferðaskilríki með gildistíma til 9. desember 2020. Þann 10. janúar 2019 var ítölskum stjórnvöldum send beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda þar í landi. Í svari ítalskra yfirvalda, dags. 11. febrúar 2019, kemur fram að kærandi hafi hlotið viðbótarvernd þar í landi og sé með gilt dvalarleyfi með gildistíma til 9. desember 2020. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 6. febrúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 6. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 12. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 25. mars 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 2. apríl 2019 ásamt fylgigögnum.

III.           Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi búið á Ítalíu í fimm ár. Kærandi finni fyrir verk í hægri handlegg sem hann hafi ekki fengið aðstoð við á Ítalíu og hann glími við sálrænan vanda. Kærandi hafi verið í miklu uppnámi í viðtali hjá Útlendingastofnun yfir aðstæðum sínum. Hann hafi m.a. lýst því yfir að hann finni oft fyrir hröðum hjartslætti og hafi ekki stjórn á sjálfum sér og tilfinningum sínum. Kærandi kveður að lífið á Ítalíu hafi verið slæmt, hann hafi verið heimilislaus og betlað á götum sér til framfærslu. Kærandi hafi fundið fyrir fordómum þegar hann hafi heimsótt lækna þar í landi og hafi þeir m.a. ekki skoðað á honum rétta hönd. Ennfremur hafi verið mjög löng bið eftir læknisþjónustu og þá hafi hann ekki alltaf haft ráð á því að kaupa lyf sem hann hafi fengið uppáskrifuð. Kærandi hafi þá reynt að fá vinnu á Ítalíu en án árangurs og hafi aldrei fengið húsnæði á vegum yfirvalda en hafi fengið föt og mat hjá góðgerðarsamtökum. Þá hafi kærandi áhyggjur af erfiðleikum yfir því að endurnýja dvalarleyfi sitt á Ítalíu á næsta ári þegar það renni út. Kærandi kveðst jafnframt hafa upplifað mikil áföll á lífsleiðinni en hann hafi misst foreldra sína ásamt því að hann hafi upplifað mjög erfiða tíma á flóttaleið sinni. Í komunótum kæranda frá Göngudeild sóttvarna hér á landi komi m.a. fram að honum líði hvorki vel andlega né líkamlega, hann hafi hitt sálfræðing, geti hvorki lesið né skrifað og að hann hafi verið sendur í röntgenmyndatöku sem sýni áverka í hálshrygg og þurfi að koma í frekara eftirlit hjá lækni af þeim sökum.

Kærandi vísar til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar hvað varðar aðstæður og réttindi einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu og vísar jafnframt til nýlegrar skýrslu Human Rights Watch þar sem máluð sé upp dökk mynd af aðstæðum í landinu. Kærandi gerir jafnframt ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir m.a. athugasemd við að stofnunin segi að frásögn hans beri ekki með sér að hann hafi leitað sérstaklega eftir aðstoð ítalskra yfirvalda. Kærandi bendir á í þessu samhengi að hann sé ólæs og óskrifandi og þar af leiðandi erfiðara fyrir hann en aðra að leita sér upplýsinga um réttindi sín. Þá bendir kærandi á að í hinni kærðu ákvörðun horfi stofnunin algjörlega framhjá opinberum og áreiðanlegum heimildum um ástandið á Ítalíu og raunverulegum aðgangi flóttafólks að réttindum þar í landi. Kærandi bendir einnig á að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að stofnuninni hafi borist skeyti frá ítölskum stjórnvöldum þess efnis að gerðar hafi verið breytingar til úrbóta á húsnæðisúrræðum þar í landi með lögum frá árinu 2018. Í hinni kærðu ákvörðun komi jafnframt fram að lögin eigi að tryggja einstaklingum með alþjóðlega vernd búsetuúrræði en þó hafi skortur á búsetuúrræðum komið niður á framkvæmd kerfisins. Gerir kærandi alvarlega athugasemd við að stofnunin vísi til löggjafar, sem vitað sé til að sé ekki að fullu virt, til þess að rýra trúverðugleika frásagnar kæranda. Vísar kærandi jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála, nr. 103/2019 frá 13. mars 2019, máli sínu til stuðnings þar sem fjallað hafi verið um hið nýja búsetuúrræði og annmarka á því. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að hann eigi ekki á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun á Ítalíu í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 og bendir á að skilyrði reglugerðarinnar séu þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 og úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Að lokum gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur þá niðurstöðu ekki standast, sérstaklega í ljósi frásagnar hans og komunótna frá sálfræðingi, en margt bendi til þess að hann glími við einhvers konar geðraskanir. Þá komist Útlendingastofnun að þessari niðurstöðu án þess að hafa aflað sérfræðiálits um afleiðingar reynslu hans og sé slík málsmeðferð jafnframt í andstöðu við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi í fyrsta lagi til þess að ótækt sé að beita a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar non-refoulement reglu þjóðaréttar, sem sé m.a. lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Með vísan til alls sem að framan hafi verið rakið um aðstæður kæranda og einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu telji kærandi að aðstæður hans á Ítalíu, t.a.m. varðandi möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu, séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi í öðru lagi til þess að sérstakar ástæður eigi við í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga með vísan til andlegra og líkamlegra kvilla hans. Þá hafi hann ekki fengið neina aðstoð frá ítölskum yfirvöldum á meðan hann hafi dvalið þar í landi. Kærandi vísar jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 352/2018 frá 16. ágúst 2018 í máli einstaklings sem hafi verið með dvalarleyfi á Ítalíu, verið haldinn alvarlegum lungnasjúkdómi og verið í virkri meðferð hér á landi. Hann hafi verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hafi mál hans verið tekið til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi telur að miðað við frásögn kæranda af aðstæðum sé ekki líklegt að hann geti fengið fullnægjandi meðferð við veikindum sínum á Ítalíu. Kærandi vísar jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 í máli fjölskyldu sem hlotið hafði alþjóðlega vernd á Grikklandi, þar sem nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar þar sem aðstæður þeirra væru verulega síðri en almennings og til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 103/2019 að því er varðar umfjöllun um heilbrigðiskerfið á Ítalíu. Þá telur kærandi ljóst að hann hafi átt mjög erfitt uppdráttar á Ítalíu, m.a. vegna þeirrar kerfislægu mismununar sem þar þrífist gagnvart flóttafólki og sé því staða hans þar í landi verulega síðri en staða almennings á Ítalíu og séu því fyrir hendi sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, í máli hans. 

V.            Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kæranda verið veitt viðbótarvernd á Ítalíu og hefur hann gilt dvalarleyfi þar til 9. desember 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára gamall karlmaður sem kom hingað einn til lands. Í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann sé með verki í brjósti og hendi. Hann finni þá fyrir vanlíðan og geti stundum ekki stjórnað tilfinningum sínum. Í komunótum kæranda frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að hann sé með disklækkun í hálshrygg og hafi fengið uppáskrifuð lyf af þeim sökum. Þá kemur einnig fram að kærandi hafi rætt við sálfræðing hér á landi.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. komunótur frá Göngudeild sóttvarna, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.  

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

·         Italy 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);

·         Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);

·         Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019);

·         Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • Mutual Trust is still not Enough – The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish and Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);

·         Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);

  • Integration of Refugees in Greece, Hungary and Italy: Comparative Analysis (European Parliament, desember 2017);

·         ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);

·         Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);

·         Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);

·         Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);

·         Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);

·         UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);

  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og

·         Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára. Unnt er að endurnýja leyfin að fimm árum liðnum en biðtími eftir slíkri endurnýjun getur verið langur. Þá geta einstaklingar sem hafa dvalið á Ítalíu í fimm ár sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar sé af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld reka þó búsetuúrræðin SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) sem eru eingöngu ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar, fylgdarlausum börnum og þeim sem hafa dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þegar einstaklingar hafa fengið inngöngu í SIPROIMI úrræði mega þeir dvelja þar í sex mánuði. Aftur á móti eru ekki nógu mörg SIPROIMI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hefur fengið alþjóðlega vernd. Í framangreindum skýrslum kemur jafnframt fram að sambærileg félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaga séu aðgengileg einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar og ítölskum ríkisborgurum þó einhver dæmi séu um að sveitarfélög geri kröfu um búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma til að öðlast rétt til aðgangs að slíkum úrræðum. 

Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og eigi útlendingar oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi. Einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu eiga almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu. Aftur á móti er í einhverjum tilvikum gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. er tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafa búið í tíu ár á Ítalíu. 

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning er háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt getur verið hindrun fyrir einstaklinga sem eru án fastrar búsetu. Í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að skráningin í heilbrigðiskerfið falli ekki sjálfkrafa úr gildi meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins stendur en að í framkvæmd geti einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar eru utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Í skýrslu Asylum Information Database kemur þó fram að mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar en eru utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, m.a. vegna tungumálaörðugleika.  

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni, við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki, nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hans sem einstaklings með alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Í því sambandi áréttar kærunefnd að ekki er fallist á með kæranda að aðstæður hans þar feli í sér ofsóknir gagnvart kæranda eða að þær séu að öðru leyti þess eðlis að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.


 

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. 

Áður hefur verið greint frá einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun sem og í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi dvalið á Ítalíu í um það bil fimm ár og að hann hafi ekki fengið neina aðstoð frá ítölskum stjórnvöldum er varðar húsnæði eða framfærslu þar í landi. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar einkum erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum. Kærandi hefur þó sömu réttindi og ítalskir ríkisborgarar og aðrir sem hafa rétt til dvalar í landinu. Hann hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og ítalskir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár ítalskra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. 

Samkvæmt framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu má þá ráða að þeir eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður á Ítalíu og gagna í máli kæranda, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála þar í landi. Það er því mat kærunefndar að fyrirliggjandi gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017, 552/2017, 581/2017, 583/2017, 586/2017, 352/2018, 393/2018 og 103/2019 verður tekið fram að kærunefnd telur mál hans ekki sambærilegt framangreindum málum, m.a. þar sem í þeim málum er ýmist um að ræða önnur viðtökuríki, barnafjölskyldur, þungaðar konur, alvarleg veikindi eða synjun um efnismeðferð á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013.

Með vísan til alls framangreinds er það því mat kærunefndar að aðstæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 6. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 20. desember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir í greinargerð sinni við rannsókn og málsmeðferð Útlendingastofnunar, þ. á m. mat stofnunarinnar á viðkvæmri stöðu hans og réttindum einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu, auk þess að gera athugasemd við beitingu Útlendingastofnunar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Þá hefur kærunefnd tekið mið af nýjustu skýrslum er varða aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Í því sambandi verður tekið fram að rökstuðningur Útlendingastofnunar í máli kæranda ber með sér að rannsókn stofnunarinnar hafi tekið mið af aðstæðum einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 16. desember 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann 20. desember 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Anna Tryggvadóttir

               

Gunnar Páll Baldvinsson                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                               


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta