Hoppa yfir valmynd

Nr. 582/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 582/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100046

 

Beiðni […] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 15. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2021 um að taka umsókn […], fd. […], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 19. apríl 2021.

Þann 15. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Dagana 21. og 26. október 2021 bárust upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda. Þann 28. október 2021 bárust andmæli kæranda.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá óskar kærandi eftir því að réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar verði frestað á meðan umrædd beiðni um endurupptöku er til meðferðar hjá kærunefnd með vísan til 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hans og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds er gerð sú krafa að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst sé að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 11. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 20. október 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsókna kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 21. október 2021, kemur fram að starfsmenn stoðdeildar hafi farið að hitta kæranda þann 4. október 2021 þar sem áætlað hafi verið að boða kæranda í Covid-19 sýnatöku vegna fyrirhugaðrar ferðar hans til Grikklands. Á umræddum fundi hafi starfsmenn stoðdeildar birt og kynnt kæranda „Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands“. Í umræddri tilkynningu kemur m.a. fram að frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar hafi runnið út og að stoðdeild ríkislögreglustjóra beri ábyrgð á flutningi hans til Grikklands. Þá var kærandi beðinn um að svara því hvort hann hygðist ætla að sýna samstarfsvilja í tengslum við flutning hans úr landi auk þess sem hann hafi fengið leiðbeiningar um tilhögun fyrirhugaðs flutnings og næstu skref í tengslum við hann. Kærandi svaraði því með neikvæðum hætti með því að merkja við viðeigandi svarreit í tilkynningunni. Í kjölfarið var kærandi spurður hvort hann myndi undirgangast Covid-19 sýnatöku til að liðka fyrir framkvæmd fyrirhugaðs flutnings. Kærandi kvaðst ekki ætla að undirgangast Covid-19 sýnatöku í tengslum við flutning hans og merkti við viðeigandi svarreit á tilkynningunni því til skjalfestingar. Kærandi neitaði að undirrita umrædda tilkynningu þar sem hann sagðist ekki þora því.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 26. október 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að Útlendingastofnun líti ekki svo á að kærandi hafi tafið mál sitt á meðan málið var til meðferðar hjá stofnuninni. Útlendingastofnun hafi hins vegar fengið upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þar sem fram komi að kærandi hafi neitað að sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings og ferðast af sjálfsdáðum án fylgdar stoðdeildar til viðtökuríkis. Þá hafi kærandi jafnframt neitað að undirgangast Covid-19 sýnatöku eða framvísa bólusetningavottorði vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Sé það því mat Útlendingastofnunar að rekja megi tafir á flutningi til viðtökuríkis til athafna eða athafnaleysis kæranda sem hann beri sjálfur ábyrgð á. Vegna umræddra tafa hafi ekki verið hægt að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn rann út og því geti tafir kæranda ekki talist óverulegar. Séu skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar þar með ekki uppfyllt.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 28. október 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar ríkislögreglustjóra og honum gefinn frestur til að koma á framfæri andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann sama dag. Í andmælum kæranda kom m.a. fram að ljóst væri að hann hafi ekki sýnt samstarfsvilja í tengslum við flutning hans til Grikklands með því að neita að undirgangast Covid-19 sýnatöku. Afstaða hans til endursendingar til Grikklands hafi verið ljós frá upphafi máls hans og á báðum stjórnsýslustigum. Að mati kæranda sé ótækt að ábyrgð sé sett á umsækjendur um alþjóðlega vernd að sýna samstarfsvilja og liðka fyrir eigin flutningi, með því að undirgangast líkamsrannsókn sem engin skilyrði séu fyrir því að skylda hann til að undirgangast. Að auki hafi stoðdeild fyrst haft samband við kæranda tæpum sex mánuðum eftir að fékk úrskurð í máli sínu og einni viku áður en 12 mánaða frestur í máli hans rynni út. Hafi framkvæmd stoðdeildar því verið tilviljunarkennd og ómarkviss. Þá fengi kærandi ekki séð að „Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands“ hafi borið það með sér að kæranda hafi verið gerð grein fyrir því að undirgangist hann ekki Covid-19 sýnatöku myndi hann teljast bera ábyrgð á töfum á flutningi. Í tilkynningunni hafi aðeins verið tekið fram að hann kynni að bera ábyrgð á töfum á flutningi ef hann sýndi ekki fram á gilt bólusetningarvottorð. Væri því ekki ljóst að kærandi hafi gert sér grein fyrir því að með því að sýna ekki samstarfsvilja vegna Covid-19 sýnatöku hafi hann fyrirgert rétti sínum til endurupptöku og efnismeðferðar vegna tímafresta, enda séu leiðbeiningar stoðdeildar hvað þetta varðar afar óljósar.

Líkt og að framan greinir sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi þann 11. október 2020. Þegar stoðdeild ríkislögreglustjóra hitti kæranda þann 4. október 2021 var því fullnægjandi tími til þess að framkvæma flutning á kæranda til viðtökuríkis áður en 12 mánaða fresturinn sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga rann út. Stoðdeild hitti kæranda til þess að boða hann í Covid-19 sýnatöku sem er skilyrði fyrir viðtöku grískra stjórnvalda á kæranda. Á umræddum fundi lýsti kærandi því yfir að hann myndi ekki undirgangast Covid-19 sýnatöku. Að mati kærunefndar er því ljóst að það sem komið hafi í veg fyrir framkvæmd á flutningi kæranda til viðtökuríkis innan tilskilins frests, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, hafi verið skortur á samstarfsvilja hans og afstaða um að undirgangast ekki Covid-19 sýnatöku sem hafi verið skilyrði fyrir viðtöku grískra stjórnvalda á kæranda. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning hans úr landi.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli hans, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.

Í ljósi framangreinds er ekki tilefni til þess að fjalla um kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa á grundvelli 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga á meðan beiðni hans um endurupptöku væri til meðferðar hjá kærunefnd.

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellants’ request is denied.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta