Mannanafnanefnd, úrskurður 24. nóvember 2006
Fundargerð
Ár 2006, föstudaginn 24. nóvember, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Baldur Sigurðsson og Ágústa Þorbergsdóttir. Tekið var fyrir:
1. Mál nr. 81/2006. Eiginnafn: Korka (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Korka (kvk.) tekur íslenska eignarfallsendingu, Korku, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Korka (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.