Hoppa yfir valmynd

Nr. 280/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 10. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 280/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23010013

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 9. janúar 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. janúar 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 3. nóvember 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 12 daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. janúar 2023. Hinn 9. janúar 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjölum. Viðbótargögn og rökstuðningur bárust kærunefnd 10. janúar 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í rökstuðningi kæranda kemur m.a. fram að hann telji að umsókn sinni hafi verið synjað vegna misskilnings. Fulltrúi sendiráðsins hafi upplýst kæranda um að flug- og hótelbókun hans væri óstaðfest en það hafi ekki verið rétt. Mistök hafi orðið hjá hótelinu þegar fulltrúanum hafi verið sagt að kærandi væri ekki með bókaða gistingu þar. Lagði kærandi fram skjáskot af tölvupóstsamskiptum við hótelið þar sem fram kemur að hann ætti bókaða gistingu. Þá mótmælir kærandi því að flugbókun hans sé ekki gild. Kærandi hafi lagt fram öll gögn sem óskað hafi verið eftir. Hann sé viðskiptamaður og ljóst sé að hann hafi efni á ferðinni.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að að upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlunina væru áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun og því liggur ekki fyrir í máli kæranda frekari rökstuðningur Útlendingastofnunar vegna synjunar á umsókn hans.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, þar sem málsmeðferð umsóknar kæranda hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi lítið ferðast út fyrir Indland. Ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun frá Mumbai til Reykjavíkur, eingöngu frá Reykjavík til Mumbai. Kærandi hafi ekki verið með staðfesta hótelbókun í Reykjavík og hafi kærandi sagst ætla að senda utanríkisráðuneytinu nýja staðfestingu en ekki gert það. Starfsmaður sendiráðsins hafi hringt í hótelið og fengið þær upplýsingar að það væri ekki með skráða bókun frá kæranda. Í símaviðtali hafi kærandi m.a. verið spurður út í ferðasögu sína og hafi hann greint frá því að hafa ferðast víða um Víetnam og Indland. Þegar kærandi hafi verið spurður út í ferðaáætlun sína hafi hann svarað því að hann hygðist ferðast frá 14. til 25. janúar 2023. Kærandi hafi greint frá því að hafa verið í marga mánuði að undirbúa ferð til Íslands en hann hafi þó ekki getað sagt nákvæmlega hvað hann væri að fara að gera hér á landi þegar hann hafi verið spurður. Kærandi kvaðst elska ferðalög og mat. Hafi kærandi sagst vilja fara til Íslands til að fara á söfn, keyra hringveginn og Gullna hringinn. Kærandi hafi sagst hafa skipulagt ferðina í marga mánuði, en hann hyggist ferðast einn og leigja bíl hér á landi. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda væri þó ljóst að kærandi myndi ekki keyra hringinn. Misræmi hafi verið milli frásagnar kæranda og þess sem fram hafi komið í ferðaáætlun hans og þegar kærandi hafi verið spurður nánar út í ferðaáætlun sína hafi hann ekki viljað segja nákvæmlega hvað hann hygðist gera hér á landi þar sem það gæti breyst vegna veðurs. Kærandi hafi greint frá því að hann myndi lenda í Reykjavík og ganga um borgina fyrsta daginn en gista síðan á tveimur hótelum, annars vegar í Reykjavík og hins vegar á Akureyri, en mögulega á Höfn eða Selfossi. Hafi kærandi sagst vera spenntastur fyrir því að skoða Reykjavíkurborg og mögulega fara í hvalaskoðun, Bláa Lónið, Hörpu tónlistarhús og sjá norðurljósin. Kærandi hafi verið spurður hvers vegna hann hafi valið Ísland sem áfangastað og hafi hann svarað því að það væri vegna safna en þegar hann hafi verið spurður út í hvaða söfn hann hygðist skoða hafi hann ekki getað svarað því. Síðar í viðtalinu hafi hann minnst á víkinga. Kærandi hafi verið spurður hvort hann ætti fjölskyldu eða vini í Evrópu og hafi hann svarað því neitandi og greint frá því að eiga einungis vini í Indlandi. Kvaðst kærandi hafa gert ferðaáætlun sína sjálfur og hafi hann ekki getað svarað því hvers vegna hótelbókun hans í Reykjavík fyndist ekki. Kærandi kvaðst reka eigið fyrirtæki í Indlandi sem gengi vel. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Var umsókn hans synjað af Útlendingastofnun í kjölfarið líkt og áður greinir.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að misræmi var á milli frásagnar kæranda og ferðaáætlunarinnar sem hann lagði fram. Kvaðst kærandi ætla að keyra hringinn í kringum landið en þó eingöngu gista á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þá benti ferðaáætlun kæranda ekki til þess að hann hefði áform um að fara hringinn í kringum landið. Í símaviðtali kvaðst hann aðallega vera að fara til Íslands til að skoða söfn en aðspurður hafi hann ekki getað nefnt nein sérstök söfn. Jafnframt kvaðst hann hafa undirbúið ferð sína til Íslands í marga mánuði en hafi ekki getað sagt nákvæmlega hvað hann hygðist gera hér á landi. Þá hefur kærandi ekki sýnt fram á sterk tengsl við heimaríki sitt. Þá var ekki hægt að staðfesta hótelbókanir kæranda.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii.-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta