Mál nr. 20/2016 Úrskurður 1. apríl 2016
Mál nr. 20/2016 Eiginnafn: Silfra
Hinn 1. apríl 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 20/2016 en erindið barst nefndinni 18. febrúar:
Eiginnafnið Silfra (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Silfru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Silfra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.