Mál nr. 83/2014 úrskurður 21. nóvember 2014
Mál nr. 83/2014 Eiginnafn: Karol
Hinn 21. nóvember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2014 en erindið barst nefndinni 31. október:
Eiginnafnið Karol (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Karolar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Karol (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.