Nr. 118/2022 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 3. mars 2022 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 118/2022
í stjórnsýslumáli nr. KNU21120065
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 30. desember 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. desember 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.
Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og til vara með vísan til 42. gr. sömu laga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna.
Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 3. ágúst 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, hinn 9. ágúst 2021, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Frakklandi. Hinn 20. ágúst 2021 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 2. september 2021, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað hinn 14. desember 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda hinn 16. desember 2021 og kærði kærandi ákvörðunina hinn 30. desember 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 25. janúar 2022. Hinn 11. febrúar 2022 bárust kærunefnd viðbótarathugasemdir kæranda og frekari gögn.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að frönsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Frakklands.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð sinni vísar kærandi m.a. til viðtala sinna hjá Útlendingastofnun, greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins hvað málsatvik varðar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa verið beittur ítrekuðu kynferðisofbeldi í Frakklandi. Þá hafi kærandi verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og tíu ára endurkomubanns til Frakklands fyrir að hafa stungið herbergisfélaga sinn sem hafi beitt hann kynferðisofbeldi. Kærandi hafi afplánað hluta dómsins í fangelsi en síðar verið fluttur á réttargeðdeild. Kærandi kveðst einnig hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í fangelsinu og ítrekað hafa reynt að fremja sjálfsvíg. Þá kvað kærandi yfirvöld í Frakklandi ekkert hafa aðhafst vegna þeirra brota sem hann hafi mátt þola og að lögregla hafi neitað að rannsaka málin.
Kærandi kveður andlega heilsu sína vera slæma en hann glími m.a. við þunglyndi. Kærandi kveðst einnig óttast ákveðna aðila í Frakklandi. Þá greinir kærandi frá því að hafa dvalið fyrstu tvo mánuðina á götunni í Frakklandi en svo fengið aðgang að húsnæði sem flóttamaður. Kærandi kveður ekki hafa reynt á þá þjónustu sem hann hafi átt að fá sem handhafi alþjóðlegrar verndar þar sem hann hafi verið í fangelsi eða á réttargeðdeild þegar hann hafi fengið viðbótarvernd.
Í greinargerð sinni kveðst kærandi hafa verið misnotaður kynferðislega í búsetuúrræði Útlendingastofnunar hér á landi. Í kjölfarið hafi hann kært brotið til lögreglu og fengið áfallahjálp. Kærandi hafi síðar verið lagður inn á bráðamóttöku geðdeildar. Þar hafi kærandi einnig talið að hann hafi verið beittur kynferðisofbeldi, m.a. með þátttöku lækna sem hafi annast hann. Kærandi hafi síðar verið útskrifaður gegn læknisráði.
Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sem leggi þá skyldu á íslensk stjórnvöld að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi. Í 32. gr. a og b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum sé að finna viðmið um hvenær sérstakar ástæður teljist vera fyrir hendi, s.s. ef umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærandi kveður þær aðstæður sem hann hafi upplifað og muni standa frammi fyrir verði hann endursendur til Frakklands uppfylla umrædd viðmið að öllu leyti. Ljóst sé að kærandi muni mæta gífurlegum hindrunum við aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, lögfræðiaðstoð, húsnæði og atvinnuþátttöku í Frakklandi. Auk þess beri heimildir með sér að fordómar séu vaxandi vandamál þar í landi. Þá muni staða kæranda verða verulega síðri en staða almennings í Frakklandi. Í því samhengi vísar kærandi m.a. til þess að í janúar 2020 hafi verið gerðar takmarkandi breytingar á aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu þar sem umsækjendur þurfi nú að bíða í a.m.k. þrjá mánuði frá því umsókn er lögð fram og þar til þeir geti sótt um aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu í Frakklandi.
Auk framangreinds gerir kærandi margvíslegar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum hans og vísar til þess að í reglugerð um útlendinga sé einungis að finna viðmið um hvenær sérstakar ástæður séu fyrir hendi en ekki tæmandi talningu á slíkum tilvikum. Þá gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar á áhrifum Covid-19 á aðbúnað og réttindi umsækjenda um vernd og telur stofnunina ekki vísa til heimilda máli sínu til stuðnings.
Kærandi byggir varakröfu sína á því að hann muni standa frammi fyrir ómannúðlegum aðstæðum í Frakklandi og með endursendingu myndu íslensk stjórnvöld því gerast brotleg gagnvart grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), auk samsvarandi ákvæða íslenskra laga og mannréttindasamninga sem Ísland á aðild að, þ.e. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga, 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi vísar til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.H. o.fl. gegn Frakklandi (nr. 28820/13) frá 2. október 2020 þar sem dómstóllinn hafi fordæmt aðstæður umsækjanda um alþjóðlega vernd í Frakklandi. Þá vísar kærandi til dóms stjórnsýsludómstóls í Þýskalandi þar sem komist var að því að endursending mæðgna til Frakklands hafi falið í sér brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, m.a. vegna erfiðleika við að fá umsókn um alþjóðlega vernd skráða í kerfið þar í landi.
Kærandi byggir þrautavarakröfu sína á því að mat Útlendingastofnunar á raunverulegum aðstæðum hans í Frakklandi hafi byggst á ónægum og þar af leiðandi ófullnægjandi upplýsingum. Kærandi sé alvarlega veikur á geði og ekki hafi verið framkvæmt mat á því hvort hann geti gætt hagsmuna sinna sjálfur eða hvort hann sé í stakk búinn til að sækja sér sjálfur þá aðstoð sem hann þurfi á að halda veikinda sinna vegna. Forsenda fyrir ákvörðun í máli kæranda sé að fyrir liggi mat geðlæknis á þörfum hans fyrir heilbrigðisþjónustu sem og hvaða afleiðingar það geti haft fyrir líf og heilsu kæranda verði rof á heilbrigðisþjónustu við hann. Með vísan til þessa hafi Útlendingastofnun ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni. Beri því að ógilda hina kærðu ákvörðun og senda umsókn kæranda til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Hinn 11. febrúar 2022 bárust kærunefnd viðbótarathugasemdir frá kæranda. Þar greinir kærandi frá því að hafa verið nauðungarvistaður í 21 dag frá 13. janúar 2022. Kærandi ítrekar kröfur sínar og telur alvarleika veikinda sinna þess eðlis að ekki sé forsvaranlegt að senda hann aftur til Frakklands nema fyrir liggi ótvírætt svar frá frönskum yfirvöldum um að kærandi muni eiga greiðan aðgang að nauðsynlegri grunnheilbrigðisþjónustu.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...] sem er staddur einsamall hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá flótta sínum frá heimaríki til Evrópu. Hann hafi komið til Svíþjóðar árið 2015, þar sem hann hafi dvalið til ársins 2018 en hafi verið synjað um alþjóðlega vernd. Þá hafi hann farið til Frakklands þar sem hann hafi, samkvæmt gögnum málsins, fengið viðbótarvernd hinn 30. apríl 2019. Kærandi hafi farið til Þýskalands í október 2020 og til Danmerkur í maí 2021, þar til hann hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 3. ágúst 2021. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, húsnæði, framfærslu og atvinnu eftir að hann hafi verið vistaður í fangelsi í Frakklandi. Þá eigi hann á hættu að fá fangelsisdóm verði hann sendur aftur þangað. Kærandi hafi orðið fyrir fordómum af hálfu yfirvalda og lögreglu þar í landi. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að kærandi glími við alvarleg andleg veikindi og sé líklega með geðklofa.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður í Frakklandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2020 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 30. mars 2021),
- 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
- Amnesty International Report 2020/21 – France (7. apríl 2021),
- Annual Report 2020 (International Committee of the Red Cross (ICRC), 1. júlí 2021),
- Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 30. ágúst 2021),
- Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 18. mars 2021),
- First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
- France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 24. september 2020),
- Freedom in the World 2021 – France (Freedom House, 3. mars 2021),
- Guide for Asylum Seekers in France (Directorate General for Foreign Nationals in France, september 2020),
- Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
- Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),
- Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðisráðuneytis Frakklands (www.solidarites-sante.gouv.fr),
- Upplýsingar af vefsíðu utanríkisráðuneytis Frakklands (www.diplomatie.gouv.fr),
- Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 3. mars 2022),
- Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 3. mars 2022),
- Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
- World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 2021).
Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í mars 2021 kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fái umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geti sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fari greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Samkvæmt frönsku útlendingalöggjöfinni (f. Code de l‘entreée et du séjour des étrangers et du roit d‘asile) séu tilteknir hópar nefndir í dæmaskyni sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ. á m. einstæðir foreldrar með ung börn á framfæri sínu, einstaklingar sem eiga við alvarleg veikindi að stríða, þ. á m. geðræn veikindi, einstaklingar sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og þolendur mansals. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), taki svo efnisákvörðun í málinu.
Umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geti kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins fresti almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoði bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA sé hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fari formleg endurskoðun. Þeir umsækjendur sem synjað hafi verið um alþjóðlega vernd eigi möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir í máli umsækjenda geti skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eigi almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína en það fari þó eftir því í hvaða móttökumiðstöð þeir séu vistaðir. Þegar umsókn hafi verið lögð fram geti þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skuli leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geti einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veiti lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð sé í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi einnig rétt á að því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.
Í framangreindri skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum móttökumiðstöðvum, PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Þeir sem séu endursendir til Frakklands njóti sömu réttinda til húsnæðis og þeir umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð. Árið 2017 hafi einnig verið komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geti verið á meðan beðið sé eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á hæliskerfinu í Frakklandi hafi þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fái úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fái gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildi í eitt ár, en slíkt vottorð geri umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti þeir leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og áður hefur komið fram.
Í skýrslunni kemur einnig fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi sé tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæti hefðbundinni málsmeðferð hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfi þó að sækja um aðgang að kerfinu og að hafa dvalið í Frakklandi í þrjá mánuði. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá geti umsækjendur sem hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd nýtt sér aðgang að sjúkratryggingakerfinu í ákveðinn tíma eftir synjun og í framhaldi af því hafi þeir aðgang að ríkisaðstoð (f. Aide médicale d‘Etat (AME)) sem geri þeim kleift að fá ókeypis meðferð á sjúkrahúsum sem og á læknastofum. Á grundvelli PUMA eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum komi þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tali frönsku þjónustu. Í umsóknarferlinu sé skimað eftir einstaklingum sem séu í viðkvæmri stöðu m.a. vegna alvarlegra veikinda og hafi sérþarfir vegna þess.
Þá kemur fram að heimilt sé að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald í Frakklandi en einungis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. ef þeir hafa fengið synjun á umsókn sinni og talin sé hætta á að þeir muni koma sér undan brottvísun. Landamæralögreglan hafi umsjón með varðhaldsmiðstöðvum og sé vistun í varðhaldsmiðstöð stjórnvaldsákvörðun. Þá séu umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir séu í varðhald aldrei vistaðir með almennum föngum. Þá benda framangreind gögn, m.a. skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2021, jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita m.a. umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni. Ákvæðinu verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Líkt og að framan greinir er kærandi karlmaður á [...] sem hefur notið talsverðrar heilbrigðisþjónustu hér á landi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hans væri góð en að hann glími við andleg heilsufarsvandamál. Kærandi kvaðst vera haldinn streitu, þunglyndi og fá martraðir. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. til 9. september 2021, kemur fram að kærandi sé hraustlegur en að hann hafi greint frá því að eiga við andleg og kynferðisleg vandamál að stríða. Kærandi sé hræddur, reiður og sofi illa þar sem hann endurupplifi kynferðisbrot sem hann kveðst hafa mátt þola.
Samkvæmt gögnum frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 28. september 2021, fór kærandi í viðtal hjá þeim að beiðni Útlendingastofnunar. Í viðtalinu hafi kærandi greint frá því að hann hafi verið með sjálfsvígshugsanir en að hann vilji lifa og fá aðstoð. Samkvæmt gögnum frá sálfræðiþjónustu Neyðarmóttökunnar hlaut kærandi áfallahjálp dagana 6. október og 18. nóvember 2021, í kjölfar kynferðisbrots sem hann kveðst hafa mátt þola hér á landi. Í viðtölum hafi kærandi greint frá því að brotist hafi verið inn í herbergi hans og hann beittur kynferðisofbeldi. Samkvæmt geðskoðun sem framkvæmd hafi verið á kæranda af sálfræðingi, hinn 18. nóvember 2021, kemur fram að það beri á geðrofseinkennum. Hann lýsi hugmyndum sem virki eins og ranghugmyndir um að fólk sé á eftir honum og ætli honum illt. Þá hafi kærandi ekki verið metinn í bráðri sjálfsvígshættu. Samkvæmt gögnum málsins leitaði kærandi til Heilsugæslunnar Sólvangi, dags. 12. október og 5. nóvember 2021, m.a. vegna verkjar í brjóstkassa og fékk þar aðhlynningu.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi lagður inn á móttökugeðdeild hinn 26. nóvember til 1. desember 2021. Í nótu frá geðlækni kemur fram að kærandi sé með aðsóknarranghugmyndir og hugmyndir um kynferðisofbeldi á deildinni sem í ljósi aðstæðna og fyrri sögu verði að teljast ranghugmynd. Talin sé hætta á ofbeldi og sjálfsskaða ef ómeðhöndlaður. Þá séu allar líkur á því að kærandi sé með alvarlegan geðrofssjúkdóm, líklega geðklofa. Kærandi hafi lýst því yfir að vilja útskrifast af deildinni og hafi það verið samþykkt gegn læknisráði. Samkvæmt læknabréfi, dags 7. febrúar 2022, var kærandi á bráðageðdeild Landspítalans frá 10. janúar til 7. febrúar 2022. Kærandi hafi við komu verið nauðungarvistaður í 72 klukkustundir, að þeim tíma liðnum hafi hann verið nauðungarvistaður til 21 dags og sú vistun hafi verið framlengd í allt að 12 vikur. Samkvæmt áðurnefndu læknabréfi stóð nauðungarvistun kæranda þó yfir í skemmri tíma, en kærandi var útskrifaður hinn 7. febrúar 2022. Í bréfinu kemur m.a. fram að kærandi hafi verið talinn hættulegur sér og öðrum í upphafi legu og hafi m.a. reynt að fremja sjálfsvíg. Kærandi hafi verið mjög veikur af geðrofi með mjög alvarlegar og áleitnar aðsóknarranghugmyndir sem og heyrnarofskynjanir. Við útskrift hafi kærandi verið metinn rauntengdur og ekki lengur með heyrnarofskynjanir né hugsanatruflanir. Þá meðtaki kærandi ráðleggingar og sjái að hann þurfi að taka lyf. Þá kemur fram að kærandi sé líklegast með geðklofa en til þess að staðfesta það þurfi gögn frá fyrri meðferð hans í Frakklandi, þar sem hann hafi legið inni í a.m.k. 12 mánuði, að liggja fyrir. Bókaður sé tími í eftirfylgni á göngudeild geðsviðs hinn 15. febrúar 2022 og hjá sálfræðingi hinn 11. mars 2022.
Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að liggja verði fyrir mat geðlæknis áður en ákvörðun verði tekin í máli hans. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar frá Göngudeild sóttvarna, sálfræðiþjónustu Neyðarmóttökunnar og bráðageðdeild Landspítalans. Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, hinn 2. september 2021, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 30. desember 2021 og 7. febrúar 2022 um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar kæranda hinn 11. febrúar 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla frekara mats frá geðlækni líkt og kærandi gerir kröfu um.
Líkt og fram hefur komið hefur kærandi glímt við andleg veikindi og hefur m.a. verið nauðungarvistaður á geðsviði Landspítalans. Af heilsufarsupplýsingum sem liggja fyrir í málinu má ráða að kærandi sé nú ekki í innlögn á sjúkrastofnun vegna veikinda sinna. Þá kemur m.a. fram í læknabréfi dags. 7. febrúar 2022, að ekki séu lengur forsendur fyrir nauðungarvistun. Kærandi sé fús til þess að taka lyf og þiggja aðstoð. Þá hafi kærandi greint frá því að hafa áður verið í langtímalyfjameðferð með geðrofslyfjum og sinnt því ágætlega. Af framburði kæranda svo og af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Frakklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum, þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga þeir sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd rétt á heilbrigðisþjónustu. Því telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Framangreind gögn um heilbrigðisþjónustu í Frakklandi benda að auki til þess að þó svo að kærandi þurfi að bíða í þrjá mánuði eftir að öðlast full réttindi í heilbrigðiskerfinu hafi hann fram að því aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í samræmi við frönsk lög. Þá hefur kærandi sjálfur greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Frakklandi þar til hann hafi verið vistaður í fangelsi. Þá hafi hann m.a. verið vistaður á réttargeðdeild vegna andlegrar heilsu sinnar.
Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu. Auk þess er gerð sú krafa í samþykki franskra stjórnvalda á viðtöku kæranda, dags. 2. september 2021, að upplýsingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eða sérstakar þarfir sé miðlað til franskra yfirvalda a.m.k. 20 virkum dögum fyrir flutning.
Kærandi hefur greint frá því að hann hafi orðið fyrir aðkasti í Frakklandi og að hann óttist tiltekna aðila þar. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá ber kærandi fyrir sig að hann muni standa frammi fyrir mismunun í Frakklandi. Umsækjendum standi ekki til boða gjaldfrjáls lögfræðiaðstoð, húsnæðisúrræði séu af skornum skammti og heimildir beri með sér að fordómar séu vaxandi vandamál þar í landi. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafi ekki fengið lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi geti óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð á grundvelli efnahags auk þess sem þeir geti leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veiti lögfræðilega aðstoð. Enn fremur kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins sem sé í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Að mati kærunefndar muni kæranda því standa lögfræðiaðstoð til boða. Hvað varðar búsetuúrræði þá telur kærunefnd ljóst að kæranda muni einnig standa slík úrræði til boða. Í því sambandi lítur kærunefnd til framangreindra heimilda og þess að kærandi hefur sjálfur greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa fengið aðgengi að húsnæði í Frakklandi.
Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu kemur fram að rúmlega 77% þjóðarinnar sé fullbólusett.
Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað.
Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru umsækjenda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkisins, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.
Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hinn 24. ágúst 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína hinn 3. ágúst 2021.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.
Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.
Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, þ.m.t. möguleika kæranda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá frönskum yfirvöldum. Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.
Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun
Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi og rannsókn stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum hans.
Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á raunverulegri stöðu kæranda í Frakklandi og telur það vera byggt á ónægum og þar af leiðandi ófullnægjandi upplýsingum. Kærandi telur það vera forsendu fyrir því að taka ákvörðun í máli kæranda að fyrir liggi mat geðlæknis á þörfum hans fyrir heilbrigðisþjónustu sem og hvaða afleiðingar það geti haft fyrir líf og heilsu hans verði rof á henni við kæranda. Telur kærandi Útlendingastofnun ekki hafa fullnægt rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga hvað þetta atriði varðar. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi í viðtal hjá Útlendingastofnun, dags. 2. og 15. september 2021, ásamt talsmanni sínum og greindi þar frá heilsufari sínu. Af endurriti viðtalsins má ráða að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt kæranda nánar út í heilsufar hans, sérstaklega andlega heilsu hans. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint í viðtalinu um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Af ákvörðun Útlendingastofnunar má sjá að lagt hafi verið til grundvallar að kærandi glími við ýmsa andlega kvilla sem meðal annars lýsi sér í ranghugmyndum og aðsóknarhugmyndum, áhyggjum, martröðum og svefnþunga ásamt mikilli vanlíðan. Þá áréttar kærunefnd að við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kærandi lagt fram frekari heilbrigðisgögn, m.a. læknabréf frá geðsviði Landspítalans, dags. 7. febrúar 2022, þar sem fram kemur að hann hafi verið nauðungarvistaður. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda er ekki að sjá að ítarlegri rannsókn Útlendingastofnunar á heilsufari kæranda og framlagning frekari gagna hefði haft áhrif á niðurstöðu í máli hans. Kærunefnd áréttar jafnframt að við meðferð málsins hjá bæði nefndinni og Útlendingastofnun hafi verið fallist á og lagt til grundvallar að kærandi glími við þá heilsufarskvilla sem hann hefur greint frá við meðferð málsins. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda er þetta varðar og með hliðsjón af framangreindu er varakröfu kæranda hafnað.
Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.
Frávísun
Kærandi kom hingað til lands hinn 3. ágúst 2021 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Frakklands eins fljótt og unnt er nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Gunnar Páll Baldvinsson