Mál nr. 31/2013, úrskurður 16. maí 2013
Mál nr. 31/2013 Eiginnafn: Rea
Hinn 16. maí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 31/2013 en erindið barst nefndinni 15. maí:
Eiginnafnið Rea (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Reu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Rea (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.